39.990 kr. Original price was: 39.990 kr..35.991 kr.Current price is: 35.991 kr..
Xiaomi Robot Vacuum S40 ryksugar með 10.000 Pa sogkrafti og blautmoppar í sömu ferð. Vélin kortleggur heimilið með skanna og vinnur í allt að 180 mínútur á einni hleðslu. Hún kemur með hleðslustöð en ekki sjálftæmingarstöð, svo rykhólfið er tæmt í höndunum.
Upplýsingar
Sogkrafturinn er 10.000 Pa á hæstu stillingu og nær ryki, sandi og hárum upp af gólfum og úr teppum.
5.200 mAh rafhlaða endist í allt að 180 mínútur á venjulegri stillingu. Ef hleðslan klárast í miðjum þrifum fer vélin sjálf í hleðslustöðina, hleður sig og heldur svo áfram þar sem frá var horfið.
Vélin dregur raka moppu á eftir sér um leið og hún ryksugar og nær þannig fína rykinu sem ryksugun ein skilur eftir. Í appinu er hægt að velja á milli þriggja stillinga á vatnsmagni eftir gólfefni.
Vélin kemst yfir þröskulda og lista sem eru allt að 2 cm á hæð. Ef þröskuldarnir heima eru hærri hentar vél sem lyftir sér betur.
Vélin er 9,8 cm á hæð með skannanum og kemst því undir húsgögn sem eru með um 10 cm bil frá gólfi eða meira.
Skanni kortleggur heimilið allan hringinn og vélin getur geymt kort af fleiri en einni hæð. Í appinu velur þú hvaða herbergi á að þrífa og hvar hún má ekki fara.
Aðalburstinn er V-laga og með innbyggðum kambi sem greiðir hár úr honum og hliðarburstinn er hannaður þannig að hár vefjist síður utan um hann. Það hentar vel á heimilum með gæludýr.
Í Xiaomi Home-appinu er hægt að velja á milli fjögurra sogstillinga, frá hljóðlátri upp í hámarksafl, eftir því hvað gólfið er óhreint.
Engin sjálftæmingarstöð fylgir, svo þú tæmir rykið og fyllir á vatnið sjálf/ur. Rykhólfið er 520 ml og vatnstankurinn 270 ml.
Vélin vegur 4,12 kg. Hleðslustöðin er lítil og tekur nánast ekkert pláss.
Nánari upplýsingar
Algengar spurningar