Xiaomi Electric Scooter 6 Lite rafmagnshlaupahjól

Xiaomi Electric Scooter 6 Lite rafmagnshlaupahjól

69.990 kr.

Frí heimsending um allt land

Xiaomi Electric Scooter 6 Lite rafmagnshlaupahjól er létt og einfalt hjól í daglegar ferðir, 18,1 kg með drægni allt að 25 km og 25 km/klst. hámarkshraða. Það er á 10″ loftfylltum dekkjum, með fjöðrun að framan og mótor sem skilar mest 500 W.

– Drægni allt að 25 km
– Hámarkshraði 25 km/klst.
– Mótor sem skilar mest 500 W
– Burðargeta 100 kg
– 10 tommu loftfyllt dekk og fjöðrun að framan
– Tvær bremsur: tromla að framan og E-ABS að aftan
– 216 Wh rafhlaða, hleðsla um 8 klst.
– 18,1 kg og brotið saman í þremur skrefum
– Framljós, bremsuljós, skjár og Xiaomi Home
– IPX4 vatnsvörn
– Stærð 114 × 51,2 × 126,4 cm
Tækjatrygging er í boði fyrir þessa vöru
Nánar um tækjatrygginguna

Á lager

Oft keypt með

Xiaomi Commuter Helmet M (Black)

  • Sterkbyggður reiðhjólahjálmur
  • Passar fyrir höfuð með 55-58cm ummál
  • Skel úr PC og millilag úr EPS
  • Léttur og þæginlegur

Navee 5-talna keðjulás

Navee 4L taska á rafmagnshlaupahjól

Navee 4L taska á rafmagnshlaupahjól er hörð taska sem hangir framan á stýrinu og rúmar 4 lítra. Hún er fest með fjórum stillanlegum ólum og ber 3 kg.

Handfang

Geymslutaska fyrir rafmagnshlaupahjól

  • Geymslutaska fyrir rafmagnshlaupahjól
  • Vatnsfráhrindandi efni
  • Rúmar flest rafmagnshlaupahjól, þó ekki stærstu týpurnar eins og Dualtron, Zero10X og svipaðar týpur

Wildman taska á rafmagnshlaupahjól m. símaglugga

  • Festist á rafmagnshlaupahjól eða reiðhjól með frönskum rennilásum
  • Gluggi fyrir síma
  • 1L pláss

Farsímastandur fyrir rafmagnshlaupahjól - X-Holder

Farsímastandur fyrir rafmagnshlaupahjól - 360° snúningur m. sílíkon teygjum

Brúsahaldari fyrir rafmagnshlaupahjól - Plast

Vörunúmer: BHR08R6GL
Strikamerki: 6932554477738

Upplýsingar

Drægni allt að 25 km

Drægnin er allt að 25 km á fullri hleðslu miðað við jafnan 15 km/klst. hraða á sléttu malbiki, 75 kg á hjólinu og um 25 °C hita. Á fullum 25 km/klst. í Sport-stillingu er drægnin um 20 km. Brekkur, kuldi, mótvindur og tíð stopp stytta drægnina.

Hámarkshraði 25 km/klst.

Þrjár stillingar eru á hjólinu: stilling fyrir gönguhraða með 6 km/klst., venjuleg stilling með 15 km/klst. og Sport með 25 km/klst. Þannig má halda hraðanum niðri á meðan verið er að læra á hjólið eða þar sem margt fólk er á ferð.

Mótor sem skilar mest 500 W

Mótorinn er með 300 W stöðugt afl og fer mest í 500 W þegar á reynir. Hjólið ræður við allt að 15% halla miðað við 75 kg á hjólinu.

Burðargeta 100 kg

Grindin er úr sterku stáli og hjólið ber allt að 100 kg. Hjólið er ætlað ökumönnum sem eru 140–200 cm á hæð og á aldrinum 16–50 ára.

10 tommu loftfyllt dekk og fjöðrun að framan

Dekkin eru 10″ og loftfyllt, sem mýkir aksturinn yfir hraðahindranir, möl og ójöfnur. Að framan er fjöðrun með tveimur gormum sem gefa eftir um 2,5 cm og draga úr höggum upp í stýrið.

Tvær bremsur: tromla að framan og E-ABS að aftan

Á framhjólinu er lokuð bremsa með tromlu sem þolir vel bleytu og óhreinindi. Á afturhjólinu er rafræn E-ABS bremsa í mótornum. Þær vinna saman þegar tekið er í bremsuna.

216 Wh rafhlaða, hleðsla um 8 klst.

Rafhlaðan er 216 Wh (10 Ah) og full hleðsla tekur um 8 klst., svo þægilegast er að hlaða yfir nótt. Rafhlaðan er með sex þátta vörn, meðal annars gegn of mikilli hleðslu, ofhitnun og skammhlaupi.

18,1 kg og brotið saman í þremur skrefum

Hjólið vegur um 18,1 kg og er það léttasta í Scooter 6 línunni. Stöngin með stýrinu er losuð með handfangi, lögð niður og krækt föst. Þá má halda á hjólinu, taka það með í vinnuna eða setja það í bílinn.

Framljós, bremsuljós, skjár og Xiaomi Home

Framljósið er 2,5 W og lýsir um 15 m fram fyrir hjólið og afturljósið blikkar þegar bremsað er. Hraðinn sést á skjá hjólsins. Í Xiaomi Home appinu má sjá drægni sem eftir er, læsa mótornum og skoða yfirlit yfir ferðir.

IPX4 vatnsvörn

Hjólið er með IPX4 vatnsvörn og rafhlaðan sjálf með IPX6. Sjá nánar um IP-vottun

Stærð 114 × 51,2 × 126,4 cm

Útbreitt er hjólið 114 × 51,2 × 126,4 cm (lengd × breidd × hæð). Samanbrotið er það 114 × 51,2 × 55,5 cm. Þyngdin er um 18,1 kg.

Í kassanum fylgir:

Í kassanum fylgir:

  • Xiaomi Electric Scooter 6 Lite rafmagnshlaupahjól
  • Hleðslutæki
  • Sexkantur
  • 7 skrúfur
  • Handbók
  • Xiaomi Electric Scooter 6 Lite rafmagnshlaupahjól
  • Hleðslutæki
  • Sexkantur
  • 7 skrúfur
  • Handbók

Nánari upplýsingar

Algengar spurningar

Tengdar vörur