Dreame H15 Pro Heat ryksugu- og skúringarvél

Dreame H15 Pro Heat ryksugu- og skúringarvél

Upprunalegt verð var: 149.990 kr.
Núverandi verð er: 127.492 kr.
Þú sparar 22.498 kr.

Original price was: 149.990 kr..Current price is: 127.492 kr..

Dreame H15 Pro Heat ryksugu- og skúringarvél ryksugar og blautmoppar með 22.000 Pa sogkraft og getur blautmoppað með 85 °C heitu vatni sem leysir upp fitu. Armur með sköfu þrífur alveg upp að gólflistum og stöðin þvær rúlluna í 100 °C heitu vatni og þurrkar hana með 90 °C heitu lofti.

– Sogkrafturinn er 22.000 Pa
– Blautmoppar með 85 °C heitu vatni
– Allt að 72 mín. á hljóðlátri stillingu
– 800 ml tankur fyrir hreint vatn
– Armur sem þrífur alveg upp að gólflistum
– Skafa sem sker á hárflækjur
– Stöðin þvær rúlluna í 100 °C heitu vatni
– Þurrkar rúlluna með 90 °C heitu lofti
– Liggur flöt, 180° og er stýrt úr appinu
– Skynjar óhreinindi og stillir sogið sjálf
– Þyngd 6,2 kg
Tækjatrygging er í boði fyrir þessa vöru
Nánar um tækjatrygginguna

Uppselt

Fá tölvupóst þegar vara kemur á lager

Vörunúmer: HHR48A
Strikamerki: 6978515250484

Upplýsingar

Sogkrafturinn er 22.000 Pa

Vélin tekur blaut og þurr óhreinindi í sömu umferð með 22.000 Pa sogkrafti. Rúllan snýst 480 snúninga á mínútu og er stöðugt skoluð með hreinu vatni og óhreina vatnið er sogað upp svo nánast engir vatnsblettir sitja eftir.

Blautmoppar með 85 °C heitu vatni

Á heitavatnsstillingu hitar vélin vatnið í allt að 85 °C við úttakið og rúllan nær um 55 °C. Með fituleysandi hreinsilegi leysir það upp fitu og fasta bletti í eldhúsinu og stillingin skemmir ekki viðargólf.

Allt að 72 mín. á hljóðlátri stillingu

Rafhlaðan er 6 × 5.000 mAh. Á hljóðlátri stillingu endist hún í allt að 72 mín. og nær yfir allt að 520 fermetra. Á heitavatnsstillingu endist hún í allt að 20 mín., eða um 150 fermetra. Full hleðsla tekur 4 klst.

800 ml tankur fyrir hreint vatn

Hreint og óhreint vatn er í aðskildum tönkum, svo gólfið er alltaf þvegið með hreinu vatni. Tankurinn fyrir hreint vatn tekur 800 ml. Óhreini tankurinn tekur 650 ml þegar vélin er upprétt og 400 ml þegar hún liggur flöt.

Armur sem þrífur alveg upp að gólflistum

Þegar vélin nálgast vegg fer armur með sköfu niður framan við rúlluna og tekur óhreinindin sem annars sitja eftir í um 2 cm rönd við listann. Rúllan nær líka út að brún báðum megin, svo þrifið er upp að köntum á þrjá vegu.

Skafa sem sker á hárflækjur

TangleCut skafan er með hvössum kambtönnum sem skera á hár á meðan þrifið er, svo þau vefjist ekki utan um rúlluna og ekki þurfi að hreinsa hana í höndunum.

Stöðin þvær rúlluna í 100 °C heitu vatni

Stöðin leggur rúlluna í bleyti í allt að 100 °C heitu vatni og snýr henni í báðar áttir, líkt og þegar þvegið er í höndunum. Skynjari metur hve óhrein rúllan og stöðin eru og lagar þvottinn að því. Rúllan og skafan þola hitann.

Þurrkar rúlluna með 90 °C heitu lofti

Hraðþurrkun með 90 °C heitu lofti tekur 5 mín. og mildari þurrkun með 85 °C lofti 30 mín. Vélin mælir rakann og lagar þurrktímann að honum og hljóðið við þurrkun er um 63 dB.

Liggur flöt, 180° og er stýrt úr appinu

Vélin leggst alveg flöt til að komast undir rúm og sófa. Í Dreamehome appinu má stýra henni eins og ryksuguvélmenni inn á lága staði. GlideWheel drifið léttir undir bæði áfram og aftur á bak og vélin réttir sig sjálf upp þegar þrifum lýkur.

Skynjar óhreinindi og stillir sogið sjálf

RGB skynjari greinir mismunandi óhreinindi og bletti og stillir sogið eftir því. Stillingarnar eru fjórar: snjallstilling, eingöngu sog, heitt vatn og sérsniðin stilling.

Þyngd 6,2 kg

Vélin vegur 6,2 kg og málaflið er 400 W.

Í kassanum fylgir:

Í kassanum fylgir:

  • Skúringarvél
  • Handfang
  • Hleðslustöð
  • Aukarúlla
  • Aukasía
  • Hreinsibursti
  • Hreinsilögur
  • Skúringarvél
  • Handfang
  • Hleðslustöð
  • Aukarúlla
  • Aukasía
  • Hreinsibursti
  • Hreinsilögur

Nánari upplýsingar

Algengar spurningar

Tengdar vörur