49.990 kr.
Xiaomi Truclean W20 ryksugu- og skúringarvél ryksugar og blautmoppar gólfið í sömu umferð með 15.000 Pa sogkraft. Hún er þráðlaus, gengur í um 30 mín. á hleðslu og þvær rúlluna sjálf í hleðslustöðinni.
Upplýsingar
Vélin ryksugar, blautmoppar og þvær rúlluna jafnóðum, svo þurr og blaut óhreinindi fara í einni umferð. Kolalaus mótor skilar 15.000 Pa sogkrafti. Sumir blettir, einkum eftir vökva, geta þurft fleiri en eina umferð.
Venjuleg stilling er fyrir dagleg þrif og önnur stilling sýgur upp vökva sem hefur hellst niður. Þegar hnappinum er haldið inni í 1,5 sek. fer vélin á aukið sog fyrir föst óhreinindi.
Rafhlaðan er 2.500 mAh og endist í um 30 mín. á venjulegri stillingu.
Hreint vatn og óhreint er í aðskildum tönkum, svo gólfið er alltaf þvegið með hreinu vatni. Tankarnir eru 780 ml og 550 ml og sjaldan þarf að fylla á eða tæma í miðjum þrifum.
Rúllan er stöðugt skoluð með rennandi vatni á meðan hún blautmoppar gólfið. Óhreina vatnið er skafið af henni og sogað upp í tankinn, svo óhreinindin dreifast ekki aftur um gólfið.
Rúllan nær út að brún hægra megin á hausnum, svo vélin þrífur meðfram veggjum, út í horn og í þröngum rýmum.
Skafa með þéttum tönnum skefur óhreinindi og hár af rúllunni svo þau vefjist síður utan um hana. Hún kemur þó ekki alveg í veg fyrir hárflækjur.
Með einum hnappi skolar vélin rúlluna og rörin með rennandi vatni og þeytir svo vatnið úr rúllunni. Best er að gera þetta eftir hver þrif, svo vélin sé tilbúin fyrir næstu notkun.
Rúllan dregur vélina áfram og hausinn snýst lipurlega, svo hægt er að stýra henni með annarri hendi í kringum stólfætur og húsgögn.
Vélin er 27,1 × 23 × 109,3 cm og vegur 4,2 kg. Hleðslustöðin vegur 0,55 kg. Málaflið er 200 W.
Í kassanum fylgir:
Í kassanum fylgir:
Nánari upplýsingar
Algengar spurningar