Xiaomi TV S Mini LED 98″ 2026 sjónvarp

Xiaomi TV S Mini LED 98″ 2026 sjónvarp

499.990 kr.

Frí heimsending um allt land
– QD-Mini LED 4K (3840×2160) upplausn
– Google TV stýrikerfi
– 144Hz endurnýjunartíðni
– 30W Dolby Atmos og DTS:X hljóðkerfi
– Dolby Vision IQ, HDR10+ og HLG myndvinnsla
– 3x HDMI 2.1, 1x USB 2.0, 1x USB 3.0, AUX, Wi-Fi 6 og Bluetooth 5.2
– Fjögurra kjarna Cortex A73 örgjörvi
– 50 kg þyngd og rammalaus hönnun
– VESA 600 x 500 mm festingarmöguleikar
– Google Assistant, Google Cast og Apple AirPlay
Tækjatrygging er í boði fyrir þessa vöru
Nánar um tækjatrygginguna

2 stk eftir á lager

Vörunúmer: 71284
Strikamerki: 6941948709324

Upplýsingar

QD-Mini LED 4K (3840×2160) upplausn

Skjárinn er 98 tommu QD-Mini LED með 4K upplausn (3840 x 2160) og 880 dimmusvæðum. Þetta tryggir skýra og bjarta mynd með allt að 1.200 nits hámarksbirtu og 12.000.000:1 kraftmikilli birtuskilaupplausn. Litrófið nær yfir 94% af DCI-P3, sem þýðir yfir 1.07 milljarða lita fyrir mjög nákvæma mynd. Það býður upp skýra og litríka mynd með djúpum dimmum tónum og björtum og fallegum litum sem að bætir upplifunina af efninu.

Google TV stýrikerfi

Sjónvarpið notast við Google TV stýrikerfið sem að er byggt á Android TV OS. Það leyfir þér að nálgast allar helstu streymisveitur, fjölda forrita og fleira til. Forrit eins og Netflix, YouTube og Prime Video eru foruppsett en einnig er hægt að hala niður ótal forritum eins og RÚV, Plex og fleirum.

144Hz endurnýjunartíðni

Með 144Hz endurnýjunartíðni er allar hreyfingar á skjánum einstaklega mjúkar og skýrar, sem er tilvalið fyrir leiki og íþróttir. Sjónvarpið styður einnig allt að 288Hz í leikjastillingu á lægri upplausnum, ásamt VRR og ALLM fyrir enn betri leikjaupplifun. Stuðningur er fyrir AMD FreeSync Premium fyrir leikjaspilun.

30W Dolby Atmos og DTS:X hljóðkerfi

Tækið er búið tveimur 15W hátölurum sem styðja Dolby Atmos og DTS:X afkóðun. Þetta skapar stórtækt og ríkulegt rýmishljóð sem dregur þig inn í efnið, hvort sem það er kvikmynd eða tónlist. Hljóðkerfið er fínstillt af Xiaomi til að skila sem bestum gæðum.

Dolby Vision IQ, HDR10+ og HLG myndvinnsla

Sjónvarpið styður alla helstu HDR staðla, þar á meðal Dolby Vision IQ og HDR10+. Dolby Vision IQ notar ljósnema til að fínstilla birtu og birtuskil myndarinnar eftir umhverfisljósi í herberginu, sem tryggir alltaf bestu mögulegu myndgæði með djúpum svörtum tónum og björtum hápunktum.

3x HDMI 2.1, 1x USB 2.0, 1x USB 3.0, AUX, Wi-Fi 6 og Bluetooth 5.2

Tækið er vel búið tengimöguleikum. Það hefur þrjú HDMI 2.1 tengi (þar af eitt með eARC) sem styðja 4K 144Hz, VRR og ALLM, sem er fullkomið fyrir leikjatölvur. Einnig eru tvö USB tengi (2.0 og 3.0), Ethernet, optískur hljóðútgangur og 3.5mm heyrnartólstengi. Þráðlaus tenging er með Wi-Fi 6 og Bluetooth 5.2.

Fjögurra kjarna Cortex A73 örgjörvi

Öflugur Quad-Core Cortex A73 örgjörvi ásamt Mali-G52 (2EE) MC1 skjákorti og 3GB vinnsluminni sér um að sjónvarpið gangi hratt og vel. Einnig er stýrikerfið fljótt í vinnslu og 4K efni streymir án nokkurra vandræða.

50 kg þyngd og rammalaus hönnun

Sjónvarpið er með rammalausa hönnun sem hámarkar skjáflötinn og gefur því nútímalegt útlit. Það er smíðað með blöndu af málmi og plasti, sem veitir styrk og stílhreint útlit sem passar vel inn á flest heimili.

VESA 600 x 500 mm festingarmöguleikar

Sjónvarpið styður VESA 600 x 500 mm festingar, sem gerir auðvelt að festa það á vegg. Þrátt fyrir stærðina er tækið hannað til að vera þunnt, sem lágmarkar fjarlægðina frá veggnum þegar það er fest upp.

Google Assistant, Google Cast og Apple AirPlay

Með Google TV fylgja ýmsir snjalleiginleikar eins og t.d. Google Cast sem að er innbyggt í sjónvarpið. Innbyggður Google Assistant gerir þér kleift að stjórna sjónvarpinu með raddskipunum. Einnig styður það Miracast og Apple Airplay sem gerir þér kleift að spegla efni af öðrum tækjum.

Í kassanum fylgir:

Í kassanum fylgir:

  • Xiaomi TV S Mini LED 98 2026
  • Fjarstýring
  • Fætur og skrúfur til að festa
  • Rafmagnssnúra
  • Leiðbeiningabæklingur
  • Xiaomi TV S Mini LED 98 2026
  • Fjarstýring
  • Fætur og skrúfur til að festa
  • Rafmagnssnúra
  • Leiðbeiningabæklingur

Nánari upplýsingar

Algengar spurningar

Tengdar vörur