14.990 kr.
Redmi Watch 6 Lite er létt snjall- og heilsuúr með björtum AMOLED skjá, innbyggðu GPS og yfir 150 íþróttastillingum. Úrið fylgist með heilsunni allan sólarhringinn, styður símtöl í gegnum Bluetooth og endist í allt að 18 daga á einni hleðslu.
Upplýsingar
Skjárinn er með 410 × 502 díla upplausn (332 PPI), 73,2% skjáhlutfall og yfir 50 Hz endurnýjunartíðni. Innbyggður birtuskynjari aðlagar birtuna sjálfkrafa að umhverfinu og hægt er að hafa kveikt á Always-on Display (AOD).
470 mAh rafhlaðan endist í allt að 18 daga við létta notkun og allt að 12 daga við hefðbundna notkun. Við mikla notkun með Always-on Display virkt er endingin allt að 6 dagar.
Innbyggt staðsetningarkerfi (GNSS) styður fimm gervihnattakerfi (GPS, Galileo, Glonass, BeiDou og QZSS) ásamt rafrænum áttavita. Úrið er með yfir 150 íþróttastillingar.
Úrið er með innbyggðan hátalara og hljóðnema og styður símtöl í gegnum Bluetooth þegar það er tengt við síma. Bluetooth 5.3 tengingin nær allt að 200 metra drægni á opnu svæði og allt að 50 metrum þar sem fyrirstöður eru.
Innbyggðir skynjarar fylgjast með hjartslætti, súrefnismettun í blóði (SpO₂), streitu og svefni allan sólarhringinn. Einnig er hægt að skrá og fylgjast með tíðahring.
Úrið er 5ATM vatnsvarið og með sérstaka sundstillingu sem nýtir 9-ása hreyfiskynjara. Stillingin mælir meðalhraða, breytingar á hjartslætti í vatni og SWOLF-skilvirkni, með 94,4% nákvæmni í ferðatalningu og 97,5% nákvæmni í sundtökum við bringusund.
Úrið vegur 27,8 grömm án ólar og er 9,9 mm þunnt með 2.5D bogadregnu gleri. Með úrinu fylgir TPU-ól með hraðfestingu sem passar á úlnliði með 135–205 mm ummál.
Úrið keyrir á Xiaomi HyperOS stýrikerfinu og tengist Mi Fitness appinu. Það styður snjallsíma með Android 8.0 eða nýrra og iOS 14.0 eða nýrra.
Í kassanum fylgir:
Í kassanum fylgir:
Nánari upplýsingar
Algengar spurningar