Redmi Watch 6 Active snjall- og heilsuúr

Redmi Watch 6 Active snjall- og heilsuúr

10.990 kr.

Frí heimsending ef keypt er fyrir 15.000 kr. eða meira Karfan þín er yfir 15.000 kr. og þú færð fría heimsendingu

Redmi Watch 6 Active er létt snjall- og heilsuúr með 1.85″ AMOLED skjá og allt að 18 daga rafhlöðuendingu. Úrið fylgist með helstu heilsuþáttum allan sólarhringinn, býður upp á yfir 140 íþróttastillingar og styður símtöl í gegnum Bluetooth. Það keyrir á Xiaomi HyperOS og tengist bæði Android og iOS símum í gegnum Mi Fitness appið.

– 1.85″ AMOLED 1.200 nit skjár
– Allt að 18 daga rafhlöðuending
– Yfir 140 íþróttastillingar og IP68 vörn
– Bluetooth-símtöl beint úr úrinu
– Heilsumælingar allan sólarhringinn og ítarleg svefnvöktun
– Xiaomi HyperOS stýrikerfi og Mi Fitness appið
– Aðeins 26 grömm og 9,9 mm þunn umgjörð
– Fljótleg ólaskipti og samhæfni við fleiri Xiaomi ólar

Upplýsingar

1.85″ AMOLED 1.200 nit skjár

Skjárinn er með 390 × 450 díla upplausn (322 PPI) og allt að 1.200 nita hámarksbirtustig svo auðvelt er að lesa á hann utandyra. Yfir 50 Hz endurnýjunartíðni gerir hreyfingar á skjánum liprar og úrið styður einnig Always-on Display. Yfirborðið er varið með 2.5D sveigðu Panda MN228 gleri með ≥ 9H hörku.

Allt að 18 daga rafhlöðuending

Í úrinu er 470 mAh rafhlaða sem endist í allt að 18 daga við létta notkun og 12 daga við hefðbundna notkun. Við mikla notkun eða með Always-on Display virkt er endingin 6 dagar. Úrið er hlaðið með segulhleðslusnúru.

Yfir 140 íþróttastillingar og IP68 vörn

Úrið er með 142 íþróttastillingar og sjálfvirka greiningu á æfingum. Það er með IP68 ryk- og vatnsvörn fyrir daglega notkun, en er ekki ætlað til notkunar í sundlaugum, sturtu, heitum pottum eða gufubaði.

Bluetooth-símtöl beint úr úrinu

Með innbyggðum hátalara, hljóðnema og Bluetooth 5.3 tengingu við símann er hægt að svara símtölum og tala beint í gegnum úrið.

Heilsumælingar allan sólarhringinn og ítarleg svefnvöktun

Optískur PPG-skynjari fylgist stöðugt með hjartslætti, súrefnismettun í blóði (SpO₂) og streitustigi yfir daginn. Á nóttunni greinir úrið svefnmynstur og veitir yfirsýn yfir svefngæði.

Xiaomi HyperOS stýrikerfi og Mi Fitness appið

Stýrikerfið er Xiaomi HyperOS og úrið tengist Mi Fitness appinu þar sem æfinga- og heilsuupplýsingar eru teknar saman. Það styður síma með Android 8.0 eða nýrra og iOS 14.0 eða nýrra.

Aðeins 26 grömm og 9,9 mm þunn umgjörð

Umgjörðin er úr plasti með málmáferð, mælist 44,5 × 39,4 × 9,9 mm og er með einum hliðarhnappi. Úrið vegur 26 grömm án ólar, eða um 39 grömm með TPU-ólinni, svo lítið fer fyrir því á úlnliðnum.

Fljótleg ólaskipti og samhæfni við fleiri Xiaomi ólar

TPU-ólin sem fylgir er með smellufestingu og passar á úlnliði sem eru 135–205 mm í ummáli. Festingin passar einnig við ólar fyrir Redmi Watch 4, Redmi Watch 5, Redmi Watch 6, 6 NFC og 6 Lite ásamt Xiaomi Smart Band 8 Pro, 9 Pro og 10 Pro.

Í kassanum fylgir:

Í kassanum fylgir:

  • Redmi Watch 6 Active snjallúr
  • Segulhleðslusnúra
  • Notendahandbók
  • Redmi Watch 6 Active snjallúr
  • Segulhleðslusnúra
  • Notendahandbók

Nánari upplýsingar

Algengar spurningar

Tengdar vörur