11.990 kr.
Xiaomi Smart Band 11 er létt snjall- og heilsuúr með 1,72″ AMOLED snertiskjá, álramma og allt að 21 dags rafhlöðuendingu. Úrið er með yfir 150 íþróttastillingar, 5ATM vatnsvörn og vaktar hjartslátt, súrefnismettun, svefn og streitu allan sólarhringinn. Það tengist bæði Android og iOS símum í gegnum Mi Fitness appið.
Upplýsingar
Snertiskjárinn er með 212 × 520 díla upplausn, allt að 60 Hz endurnýjunartíðni og jafnan 2,0 mm ramma. Hámarksbirtustig er allt að 2.000 nit (1.500 nit HBM) og innbyggður birtuskynjari stillir birtuna sjálfkrafa eftir umhverfinu.
233 mAh rafhlaðan endist í allt að 21 dag í léttri notkun, allt að 10 daga í hefðbundinni notkun og allt að 6 daga þegar kveikt er á Always-On Display (AOD). Úrið er hlaðið með segulhleðslu og tekur u.þ.b. 90 mínútur að fullhlaða það.
Úrið styður yfir 150 íþróttastillingar og nýtir GPS úr tengdum snjallsíma fyrir staðsetningu. Það er 5ATM vatnsvarið (prófað samkvæmt ISO 22810:2010) og mælir einnig hjartslátt í sundi.
Tenging við snjallsíma fer fram með Bluetooth 5.4 og stutt er við bæði Android 8.0 eða nýrra og iOS 14.0 eða nýrra. Gögn um hreyfingu og heilsu eru aðgengileg í Mi Fitness appinu.
Hjartsláttar- og súrefnismettunarskynjari (dual-LED og dual-PD) mælir hjartslátt og súrefnismettun í blóði (SpO2) allan sólarhringinn. Úrið getur sent viðvörun ef hjartsláttur mælist óeðlilegur og gefið titringsviðvörun ef súrefnismettun mælist lág.
Úrið fylgist með svefngæðum og breytileika í hjartslætti (HRV) ásamt því að mæla streitustig yfir daginn. Einnig er hægt að skrá og fylgjast með tíðahring.
Hægt er að senda hjartsláttarmælingar í rauntíma yfir Bluetooth í samhæfðar hjólatölvur og önnur forrit.
Umgjörðin er smíðuð úr álblöndu, er 9,99 mm á þykkt (án hjartsláttarskynjara) og vegur aðeins 15,58 g án ólar. Í úrinu er línulegur titringsmótor, hröðunarmælir, snúningsmælir og rafrænn áttaviti.
Í kassanum fylgir:
Í kassanum fylgir:
Nánari upplýsingar
Algengar spurningar