23.990 kr. Original price was: 23.990 kr..11.995 kr.Current price is: 11.995 kr..
Aqara U200 Lite snjalllás er settur innan á hurðina yfir lásinn sem fyrir er, án þess að bora og opnar með símanum, NFC merki eða úr fjarlægð. Hann notar Matter yfir Thread, læsir sjálfur þegar hurðin lokast og 2.000 mAh rafhlaða endist í allt að 6 mánuði.
Upplýsingar
Lásinn er opnaður með Bluetooth úr Aqara Home appinu þegar staðið er við hurðina, úr appinu hvar sem þú ert þegar hann er tengdur stjórnstöð, eða með því að leggja símann að NFC merki sem er límt upp við hurðina; tvö slík fylgja. Lykillinn virkar áfram. Þessi útgáfa er án talnaborðs og fingrafaralesara.
Lásinn er festur yfir sílinderinn sem fyrir er og hvorki þarf að bora né skipta um sílinder. Hann er gerður fyrir evrópska og skandinavíska sílindra sem hægt er að opna með lykli að utan þótt lykill sé í að innan.
Innbyggður skynjari finnur þegar hurðin lokast og lásinn læsir þá sjálfur og hann minnir á ef hurðin er skilin eftir opin. Velja má hljóðláta, venjulega eða hraða stillingu á mótornum; sú hljóðláta hentar á nóttunni og þar sem börn sofa.
Lásinn notar Thread og Matter og er samhæfður Aqara Home, Apple Home, Google Home, Alexa, SmartThings og Home Assistant. Til að opna úr fjarlægð og nota raddstýringu þarf stjórnstöð. Við hurðina er lásnum stýrt með Bluetooth.
Innbyggð endurhlaðanleg 2.000 mAh rafhlaða endist í allt að 6 mánuði á hleðslu. Hún er hlaðin með USB-C og appið lætur vita þegar lítið er eftir.
Lásinn er 6,23 × 6,06 × 15,25 cm og vegur 754 g. Hann vinnur við -15 til 55 °C og hlífinni framan á má skipta út.
Í kassanum fylgir:
Í kassanum fylgir:
Nánari upplýsingar
Algengar spurningar