219.990 kr.
Dreame L60 Pro Ultra ryksugar og blautmoppar með 35.000 Pa sogkrafti og tveimur snúningsmoppum. Vélin lyftir sér yfir allt að 8,8 cm tvöfalda þröskulda og er 8,9 cm á hæð þegar skanninn er niðri. Stöðin tæmir rykið, fyllir á vatn og þvær moppurnar með 100°C heitu vatni.
Upplýsingar
Sogkrafturinn er 35.000 Pa og nær ryki, sandi og hárum upp af gólfum og úr teppum.
6.400 mAh rafhlaða endist í allt að 220 mínútur í hljóðlátustu stillingu og dugar fyrir allt að 205 m². Ef hleðslan klárast í miðjum þrifum fer vélin sjálf í stöðina, hleður sig og heldur svo áfram þar sem frá var horfið.
Tvær snúningsmoppur snúast 165 hringi á mínútu og þrýstast niður í gólfið með 15 N þrýstingi. Stöðin þvær þær með heitu vatni fyrir þrif, svo þær eru allt að 40°C heitar þegar vélin byrjar að blautmoppa. Hægt er að láta vélina ryksuga, blautmoppa eða gera hvort tveggja í einu.
Vélin lyftir sér á fótum yfir einfalda þröskulda sem eru allt að 4,5 cm á hæð og tvöfalda þröskulda sem eru samtals allt að 8,8 cm, svo hún kemst sjálf á milli herbergja.
Skanninn ofan á vélinni fer niður þegar hún fer undir húsgögn. Þá er vélin 8,9 cm á hæð og kemst undir sófa, rúm og skápa. Með skannann uppi er hún 11,1 cm.
Myndavél með gervigreind og þrívíddarskynjari þekkja yfir 280 tegundir hluta á gólfinu, svo vélin keyrir fram hjá þeim í stað þess að festast. Ljós á vélinni hjálpar henni að sjá í myrkri og skanni kortleggur heimilið.
Aðalburstinn er tvískiptur, svo hár renna út til hliðanna í stað þess að vefjast utan um hann. Hliðarburstinn og moppan teygja sig út til að ná inn í horn og meðfram veggjum.
Á þunnum teppum lyftir vélin moppunum um 1,05 cm. Fyrir þykk teppi getur hún skilið moppurnar eftir í stöðinni svo teppið blotni ekki. Einnig er hægt að láta hana sneiða alveg hjá teppum.
Vélinni er stjórnað í Dreamehome-appinu, þar sem þú velur herbergi, stillir tímaáætlun og fylgist með þrifunum. Einnig er hægt að nota raddstýringu með Alexa, Siri og Google Home.
Stöðin þvær moppurnar með 100°C heitu vatni, sem leysir upp fitu og óhreinindi, og þurrkar þær svo með heitu lofti svo þær lykti ekki.
Stöðin tæmir rykið í 3,2 l rykpoka sem dugar í allt að 100 daga og fyllir á vatnið í vélinni. Tankurinn fyrir hreint vatn er 4,5 l og tankurinn fyrir óhreint vatn 4 l. Stöðin skammtar líka gólfsápu sjálf.
Vélin vegur 4,5 kg og stöðin 9,3 kg.
Í kassanum fylgir:
Í kassanum fylgir:
Nánari upplýsingar
Algengar spurningar