299.990 kr. Original price was: 299.990 kr..249.990 kr.Current price is: 249.990 kr..
Roborock Saros Z70 er með arm sem tekur upp sokka og smádót af gólfinu, svo hún geti þrifið allt gólfið. Sogkrafturinn er 22.000 Pa, vélin er 7,98 cm á hæð og kemst yfir allt að 4 cm þröskulda. Stöðin tæmir rykið, þvær moppurnar með allt að 80°C heitu vatni og þurrkar þær.
Upplýsingar
Sogkrafturinn er 22.000 Pa og nær ryki, sandi og hárum upp af gólfum og úr teppum.
6.400 mAh rafhlaða endist í allt að 180 mínútur. Ef hleðslan klárast fer vélin sjálf í stöðina, hleður sig og heldur svo áfram þar sem frá var horfið. Full hleðsla tekur um 2,5 klst.
Tvær moppur snúast og þrýstast niður í gólfið, og önnur þeirra teygir sig út að veggjum og inn í horn. Þegar vélin fer á teppi eða á bara að ryksuga skilur hún moppurnar eftir í stöðinni (stillt í appinu).
Vélin lyftir sér yfir allt að 4 cm tvískiptan þröskuld, svo hún kemst sjálf á milli herbergja.
Vélin er 7,98 cm á hæð og kemst því undir sófa, rúm og skápa sem eru með um 8 cm bil frá gólfi.
Vélin kortleggur heimilið og þekkir hluti á gólfinu niður í 2 cm að stærð, svo hún keyrir fram hjá þeim í stað þess að festast. Þú getur líka kennt henni að þekkja allt að 50 hluti til viðbótar.
Aðalburstinn er hannaður fyrir sítt hár og gæludýrahár, svo það flækist síður í honum. Hliðarburstinn teygir sig út í horn og meðfram listum.
Armur ofan á vélinni grípur sokka, sandala, bréfþurrkur og handklæði, allt að 300 g, og færir það á þann stað sem þú velur. Það þýðir að vélin getur þrifið allt gólfið þótt eitthvað liggi á því. Kveikt er á arminum í appinu og þar er líka hægt að stýra honum handvirkt.
Innbyggð raddstýring virkar án nettengingar, og vélin virkar líka með Alexa, Siri og Google Home.
Stöðin tæmir rykið úr vélinni, þvær moppurnar með allt að 80°C heitu vatni og þurrkar þær með 55°C heitu lofti. Hún skammtar sápu sjálf og fyllir á vatnstank vélarinnar. Rykpokinn dugar í allt að 60 daga. Botninn í stöðinni er laus, svo auðvelt er að skola hann.
Málin eru breidd × dýpt × hæð.
Í kassanum fylgir:
Nánari upplýsingar
Algengar spurningar
Mi búðin kynnir Saros Z70 — eitt fyrsta ryksuguvélmennið með samanbrjótanlegum vélar arm sem tekur hreinsunina á næsta plan.
Þessi hátæknilegi armur gerir Saros Z70 kleift að færa hluti úr vegi og hreinsa svæði sem áður voru óaðgengileg. Z70 gefur ekkert eftir í hreingerningareiginleikum þrátt fyrir þunna 7.98cm hönnun en vélin skartar 22.000Pa sogkrafti, VibraRise hljóðbylgjumoppun og glænýju StarSight leiðarkerfi.
OmniGrip vélararmur
Sér, hugsar og framkvæmir
Innbyggð gervigreind
Lærir að þrífa heimilið sem best
7.98cm ofurþunn hönnun til að komast undir fleiri húsgögn
StarSight 2.0 leiðarkerfi
Tvöfalt AntiTangle kerfi til að minnka hárflækjur
22.000Pa HyperForce sogkraftur
AdaptiLift tækni til að komast yfir allt að 4cm þröskulda
FlexiArm tækni i nær útí króka og kima
Sjálfvirk hreinsi- og sjálftæmingarstöð
Snjöll stjórnun með appi eða rödd
Framtíðin er mætt
Í fyrstu yfirferð merkir vélin við þá hluti sem hún getur lyft og fært til, við síðari yfirferð þá gengur vélin frá eða færir hlutina frá svo að hún komist á áður óaðgengilega staði.
Ekki bara ryksuga
Líka hjálparhönd
Þekkir og skipuleggur
Sokkar? Nálægt skápnum. Inniskór? Fram í forstofu. Krumpuð blaðþurrka? Beint í ruslakörfuna. Með síbætandi aðskotahlutagreiningu getur Saros Z70 tekið til á heimilinu, svo lengi sem hluturinn er 300gr eða minna getur armurinn lyft hlutnum og fært hann til.
*Kveikja þarf sérstaklega á aðskotahlutaskipulagningu
OmniGrip
Armurinn sem sér, hugsar og framkvæmir
OmniGrip er búin myndavél og LED-ljósi sem gera arminum kleift að ákvarða staðsetningu sína, umhverfi og þyngd hvers hlutar sem hún grípur.
Þetta tryggir að vélræna höndin starfi með einstakri nákvæmni.