39.990 kr.
Dreame Pocket Pro er nettur og samanbrjótanlegur 1.300 W hárblásari og mótunartæki. Hann er með 110.000 RPM mótor, fimm hitastillingar og losar 300 milljónir neikvæðra jóna á cm³.
Upplýsingar
Hægt er að brjóta hárblásarann saman um 180° í þrjár mismunandi stöður („N“, „1“ og „7“). „N“-staðan er ætluð til geymslu, en „1“- og „7“-stöðurnar henta við þurrkun og mótun.
Hraðvirkur mótor með 110.000 snúningum á mínútu skilar allt að 50 m³/klst. loftflæði. Blásarinn þurrkar stutt hár á 40 sekúndum, meðalsítt hár á 2 mínútum og sítt hár á 3–4 mínútum.
Hægt er að velja á milli tveggja hraðastillinga og fimm hitastillinga: kalt loft, volgt loft, heitt loft, lotubundið heitt og kalt loft ásamt snöggkælingu.
Innbyggður NTC-hitaskynjari og örgjörvi vakta hitastigið 300 sinnum á sekúndu þegar blásið er með heitu lofti. Blásarinn heldur þannig stöðugu og öruggu hitastigi við 57 °C.
Blásarinn er með jónatækni sem losar 300 milljónir neikvæðra jóna á hvern rúmsentimetra við þurrkun.
Innbyggt 6 laga hljóðdempunarkerfi dregur úr hávaða við notkun. Ytra byrði blásarans er með leðuráferð.
Í kassanum fylgir:
Í kassanum fylgir:
Nánari upplýsingar
Algengar spurningar