Rawbike 4 750W rafmagnshjól

Rawbike 4 750W rafmagnshjól

Upprunalegt verð var: 499.990 kr.
Núverandi verð er: 299.994 kr.
Þú sparar 199.996 kr.

Original price was: 499.990 kr..Current price is: 299.994 kr..

Frí heimsending um allt land

Rawbike 4 750W rafmagnshjól er kröftugt hjól frá sænska merkinu Rawbike, með 750 W mótor og inngjöf á stýri. Drægnin er allt að 60 km á inngjöfinni einni og allt að 80 km ef stigið er með. Það er á breiðum 20″ dekkjum og leggst saman.

– Drægni allt að 80 km
– Hámarkshraði 25 km/klst.
– 750 W mótor
– Stórt og sterkbyggt stell
– 20 tommu breið dekk frá Kenda
– 48 V og 19 Ah rafhlaða frá LG, hleðsla um 6 klst.
– Leggst saman
– Skjár á stýri og USB-tengi
– Fæst í sjö litum
– Bögglaberi og aurbretti
Tækjatrygging er í boði fyrir þessa vöru
Nánar um tækjatrygginguna

Oft keypt með

Rawbike - Cargo geymslukerra

  • Burðargeta 49kg
  • Geymslusvæði: 58B x 73L x 23H
  • Vind/regnkápa fylgir ásamt fána
  • Festist á afturfelgu Rawbike
  • Hægt að taka af dekk, fána og stöng til að auðvelt sé að ferðast með kerruna

Mijia Compact Portable loftdæla

Mijia Compact Portable loftdæla er nett 240 g loftdæla sem er fyrst og fremst ætluð í reiðhjól, rafhjól, rafhlaupahjól, mótorhjól og bolta. Hún nær allt að 10,3 börum, stoppar sjálf við valinn þrýsting og dælir í allt að 8 tóm reiðhjóladekk á hleðslu.

Yeelight YeeTag staðsetningartæki

  • Lítið og nett staðsetningartæki frá Yeelight
  • Tengist við Find My forritið í iOS (virkar ekki með Android)
  • Hægt að staðsetja hluti hvar sem er
  • 100dB hljóð þegar leitað er að hlut
  • C2032 rafhlaða dugar í ca. 1 ár
  • Leður lyklakippa fylgir með

Upplýsingar

Drægni allt að 80 km

Á inngjöfinni einni, án þess að stíga, kemst hjólið allt að 60 km á hleðslu. Ef stigið er með mótornum fer drægnin í allt að 80 km. Þyngd ökumanns, brekkur og hitastig hafa áhrif á raunverulega drægni.

Hámarkshraði 25 km/klst.

Mótorinn kemur hjólinu upp í 25 km/klst. Á stýrinu er inngjöf og með henni má sleppa því alveg að stíga.

750 W mótor

Mótorinn er 750 W og gefur gott afl í brekkum, í mótvindi og með farangur. Hann má nota með inngjöfinni einni eða sem stuðning þegar stigið er á fótstigin.

Stórt og sterkbyggt stell

Stellið er stórt og sterkbyggt og hjólið er gert til að nota allt árið, líka á malarvegum og utan malbiks.

20 tommu breið dekk frá Kenda

Hjólið er á 20″ breiðum dekkjum frá Kenda sem gefa gott grip og mýkja aksturinn á möl, í snjó og á ósléttum stígum. Nagladekk fyrir veturinn fást líka.

48 V og 19 Ah rafhlaða frá LG, hleðsla um 6 klst.

Rafhlaðan er frá LG, 48 V og 19 Ah og full hleðsla tekur um 6 klst. Rafhlaðan endist í um 800–1.000 hleðslur. Rafhlaðan situr á stellinu aftan við sætisstöngina og hana má taka úr hjólinu og hlaða inni, sem kemur sér vel ef hjólið er geymt í bílskúr eða hjólageymslu án innstungu.

Leggst saman

Stellið er brotið saman um miðjuna og stýrið lagt niður, svo hjólið tekur minna pláss í geymslu og kemst frekar með í bíl eða húsbíl.

Skjár á stýri og USB-tengi

Á stýrinu er skjár sem sýnir hraða og stöðu rafhlöðu. Á rafhlöðunni og skjánum er USB-tengi þar sem hægt er að hlaða síma og aukahluti á ferðinni.

Fæst í sjö litum

Litirnir eru Army Green, Grey, Matte Black, Sandstorm, Sky Team Edition, Snowstorm og Titanium. Hjólið kemur 95% samsett úr kassanum; setja þarf framhjólið, sætisstöngina og fótstigin á. Leiðbeiningar fylgja.

Bögglaberi og aurbretti

Hjólið er með bögglabera að aftan og aurbretti á báðum hjólum. Hægt er að prófa hjólið í Mi búðinni.

Í kassanum fylgir:

Í kassanum fylgir:

  • Rawbike 4 750W
  • Rafhlaða
  • Hleðslutæki
  • Leiðbeiningar
  • Rawbike 4 750W
  • Rafhlaða
  • Hleðslutæki
  • Leiðbeiningar

Nánari upplýsingar

Algengar spurningar

Rawbike er glæsilegt rafmagnshjól hannað og framleitt í Svíþjóð. Rawbike er stórt, kröftugt og sterkbyggt og hentar í akstur hvar sem er og hvernig sem viðrar. Rawbike kemur á 20″ stórum og breiðum dekkjum frá Kenda en einnig er hægt að fá nagladekk sem eru seld sér. Á stýri hjólsins er inngjöf og með því er hægt að sleppa alfarið að nota pedalana. Hámarkshraðinn sem 750W mótorinn kemst uppí er 25 km/klst. Drægnin á hjólinu er frábær, með inngjöf nær Rawbike að ferðast allt að 60km, en með því að pedala með fer drægnin uppí allt að 80km.

Rawbike hjólin eru sterklega byggð og endingargóð hjól gerð úr umhverfisvænu efni sem veita þér mörg ár af ánægjulegum ferðum.

Rafhlaðan kemur frá LG og er framleidd eftir ströngum gæðakröfum. Hægt er að taka rafhlöðuna úr hjólinu til þess að hlaða hana sér.

Hvert einasta Rawbike er kolefnisjafnað hjá framleiðanda og lagt er mikið upp úr því að bæta enn frekar framleiðsluferlið.

Hefur þig langað til þess að hjóla upp Esjuna?

Rawbike er ekki eins og hvert annað götuhjól. Þér eru allir vegir færir og þú getur farið hvert sem þig dreymir um á góðum og þykkum dekkjum á traustu stelli. Farðu þína eigin leið á kröftugu, umhverfisvænu og fallegu rafmagnshjóli frá Rawbike

Ekki hafa áhyggjur af því að verða rafmagnslaus! Bæði er frábær drægni á rafhlöðunni í hjólinu sjálfu en það er líka hægt að stinga símanum í hleðslu í USB innstungu á hjólinu.

Ef þú vilt leyfa vindunum að blása í gegnum hárið og njóta þess að leyfa hjólinu að koma þér hvert sem þú vilt þá kemstu allt að 60 km án þess að pedala.

Ef þú vilt aðstoða hjólið með því að pedala, þá getur þú farið allt að 80 km áður en það þarf að hlaða hjólið á ný.

Rawbike 4 kemur 95% samsett úr kassanum og tekur aðeins nokkrar mínútur að klára samsetninguna. Það þarf einungis að festa sætið og stýrið í rétta hæð og draga út pedalana. 

Rawbike opnar á nýja möguleika í ferðalögum. Hjólið er samanbrjótanlegt þannig það er auðveldara að ferðast með það. Rawbike 4 hefur innbyggðan skjá sem sýnir þér mikilvægar upplýsingar eins og hraða og stöðuna á rafhlöðunni. Njóttu frelsisins, farðu ótroðnar slóðir og upplifðu náttúruna á nýjan hátt með Rawbike

Samanbrjótanlegt

Frábært úrval af aukahlutum í boði

Geymslukassar, geymslukerrur, rafhlöður, vettlingar og allt þar á milli. Skoðaðu úrvalið með því að smella á hnappinn hér fyrir neðan.

Langar þig að prufukeyra? Komdu við í Mi búðinni, Ármúla 21 og prófaðu Rawbike rafmagnshjólin hjá okkur.

Tengdar vörur