Redmi 15 4+128GB 5G snjallsími

Redmi 15 4+128GB 5G snjallsími

34.990 kr.

Redmi 15 5G er öflugur snjallsími með stórum 6.9″ Full-HD+ IPS LCD skjá og 7.000mAh rafhlöðu sem endist lengi. Hann er knúinn af Qualcomm Snapdragon 6s Gen 3 örgjörva og styður 5G tengingu fyrir hraðvirka notkun. Síminn er með 50MP myndavél og 4GB vinnsluminni ásamt 128GB geymsluplássi, sem hægt er að stækka með allt að 2TB SD korti.

– 6.9″ FHD+ 144Hz skjár
– Qualcomm Snapdragon 6s Gen 3 5G örgjörvi
– 4GB + 128GB minni
– 50MP AI tvöföld myndavél
– 7.000mAh rafhlaða
– 5G, Wi-Fi 5, Bluetooth 5.1, Hybrid SIM
– IP64 vottun
– Andlitsskanni + fingrafaraskanni á hlið
– Dolby-vottaðir hátalarar

Upplýsingar

6.9″ FHD+ 144Hz skjár

Redmi 15 5G er með stóran 6.9″ Full-HD+ (1080×2340 pixlar) IPS LCD skjá með 144Hz endurnýjunartíðni fyrir mjúkar hreyfingar. Hámarksbirtustig skjásins er 850 nits sem gerir hann auðlesinn í björtu umhverfi. Skjárinn er einnig með TÜV Rheinland vottun fyrir lága bláa birtu og flöktlausa upplifun.

Qualcomm Snapdragon 6s Gen 3 5G örgjörvi

Redmi 15 5G er knúinn af Qualcomm Snapdragon 6s Gen 3 örgjörva sem er byggður á 6nm ferli. Þessi áttakjarna örgjörvi skilar góðum afköstum fyrir dagleg verkefni, leiki og streymi. Hann tryggir stöðuga og hraða tengingu við 5G farsímanet.

4GB + 128GB minni

Síminn kemur með 4GB vinnsluminni (LPDDR4x) sem gerir hann snöggan að opna og skipta á milli forrita. Með 128GB geymsluplássi (UFS 2.2) er nóg pláss fyrir myndir, myndbönd og öpp. Hægt er að setja allt að 2TB microSD kort í símann til að auka geymsluplássið.

50MP AI tvöföld myndavél

Redmi 15 5G er með öflugu myndavélakerfi sem tekur skýrar og litríkar myndir.

  • 50MP aðalmyndavél (f/1.8) með AI stuðningi
  • Auka linsa
  • 8MP selfie myndavél (f/2.0)
7.000mAh rafhlaða

Síminn er með stóra 7.000mAh (typical) sílikon-kolefnis rafhlöðu sem tryggir langan notkunartíma. Hann styður 33W hraðhleðslu með snúru til að hlaða hratt upp og 18W öfuga hleðslu með snúru, sem gerir þér kleift að hlaða önnur tæki.

5G, Wi-Fi 5, Bluetooth 5.1, Hybrid SIM

Redmi 15 5G býður upp á fjölbreytta tengimöguleika. Hann styður 5G og 4G farsímanet, Wi-Fi 5 (802.11ac) á 2.4GHz og 5GHz tíðnum, og Bluetooth 5.1. Síminn er með USB Type-C tengi. Hægt er að hafa tvö SIM-kort í símanum í einu (Hybrid SIM, annaðhvort 2x SIM eða SIM + microSD kort). Einnig er til staðar NFC og IR Blaster.

IP64 vottun

Redmi 15 5G er með IP64 ryk- og skvettuvörn sem gerir hann hentugan fyrir daglega notkun og óvæntar aðstæður. Þó síminn sé varinn gegn ryki og skvettum er mikilvægt að kynna sér ábyrgðarskilmála varðandi högg- og vatnstjón. Sjá nánari upplýsingar um IP vottun.

Andlitsskanni + fingrafaraskanni á hlið

Til að tryggja öryggi og auðveldan aðgang er síminn búinn andlitsskanna og fingrafaraskanna sem er staðsettur á hliðinni. Þetta gerir þér kleift að opna símann fljótt og örugglega með einni snertingu.

Dolby-vottaðir hátalarar

Redmi 15 5G er með Dolby-vottuðum hátölurum sem skila ríkulegu og jafnvægislegu hljóði. Þú getur notið þess að hlusta á tónlist og horfa á myndbönd með betri hljóðgæðum. Síminn býður einnig upp á 200% hljóðstyrksaukningu.

Í kassanum fylgir:

  • Redmi 15 5G
  • Hleðslusnúra (USB Type-C)
  • Pinni til að losa SIM-kortið
  • Leiðbeiningabæklingur

Nánari upplýsingar

Algengar spurningar

Tengdar vörur