Redmi A7 Pro 4+128GB 4G snjallsími

Redmi A7 Pro 4+128GB 4G snjallsími

29.990 kr.

Redmi A7 Pro er öflugur 4G snjallsími með stórum 6.9″ HD+ skjá og 120Hz endurnýjunartíðni fyrir mjúka upplifun. Hann er knúinn af UNISOC T7250 örgjörva og er með 6.000mAh rafhlöðu sem endist lengi. Síminn býður upp á 13MP AI myndavélakerfi og 128GB geymslupláss, sem er hægt að stækka enn frekar með allt að 2TB SD korti.

– 6.9″ HD+ 120Hz IPS LCD skjár
– UNISOC T7250 Octa-core 4G örgjörvi
– 4GB + 128GB minni
– 13MP AI tvöföld myndavél
– 6.000mAh rafhlaða + 15W hleðsla
– Wi-Fi 5, Bluetooth 5.2, Dual SIM
– IP52 vottun
– Fingrafaraskanni á hlið
– Android 16 með Xiaomi HyperOS 3

Oft keypt með

Redmi A7 Pro - Svart Leðurhulstur m. loki

Redmi A7 Pro - Glært Sílikon hulstur

Redmi A7 Pro - Svart Sílikon hulstur

Xiaomi 22.5W hleðslukubbur

  • 22.5W hleðslukubbur
  • USB-A tengi

Upplýsingar

6.9″ HD+ 120Hz IPS LCD skjár

Redmi A7 Pro er með stóran 6.9″ IPS LCD skjá með HD+ upplausn (1600 x 720 pixlar) og 120Hz endurnýjunartíðni. Hámarksbirtustig er allt að 800 nits, sem gerir skjáinn skýran jafnvel í björtu umhverfi. Skjárinn er einnig með TÜV Rheinland vottun fyrir augnvernd (Low Blue Light, Flicker Free, Circadian Friendly) og Wet Touch Technology 2.0 sem gerir hann móttækilegan fyrir snertingu jafnvel með rökum fingrum.

UNISOC T7250 Octa-core 4G örgjörvi

Síminn er með UNISOC T7250 Octa-core örgjörva sem er framleiddur með 12nm tækni og keyrir á allt að 1.8GHz. Þessi örgjörvi veitir góðan jafnvægi milli afkasta og orkunýtingar, sem tryggir snögga og þægilega notkun í daglegum verkefnum og leikjum. Mali-G57 GPU sér um grafíkina og skilar flottri myndvinnslu.

4GB + 128GB minni

Með 4GB vinnsluminni (LPDDR4X) og 128GB geymsluplássi (UFS 2.2) er Redmi A7 Pro snöggur að opna og skipta á milli forrita. Hægt er að stækka vinnsluminnið allt að 8GB með minnisaukningu. Geymsluplássið er hægt að stækka enn frekar með allt að 2TB microSD korti, sem gefur mikið rými fyrir myndir, myndbönd og forrit.

13MP AI tvöföld myndavél

Redmi A7 Pro er með 13MP AI tvöfalt myndavélakerfi að aftan sem tekur skýrar og fallegar myndir. Myndavélin styður HDR+, næturstillingu, portrettstillingu, tímamyndatöku og skjalastillingu. Myndbandsupptaka er í 1080p og 720p á 30fps. Að framan er 8MP selfie myndavél með f/2.0 ljósopi, sem styður fegrunaraðgerðir, fyllingarljós, HDR og næturstillingu fyrir frábærar selfie myndir og myndbönd. Myndavélarnar eru:

  • 13MP aðalmyndavél (f/2.2)
  • 8MP selfie myndavél (f/2.0)
6.000mAh rafhlaða + 15W hleðsla

Redmi A7 Pro er með stóra 6.000mAh Li-Po rafhlöðu sem endist lengi í notkun. Hún styður 15W hraðhleðslu, svo síminn er fljótur að hlaðast upp aftur þegar þess þarf. Rafhlaðan er hönnuð til að halda yfir 80% af upprunalegri getu sinni eftir yfir 1.000 hleðsluferli, sem tryggir langan líftíma.

Wi-Fi 5, Bluetooth 5.2, Dual SIM

Redmi A7 Pro býður upp á fjölbreytta tengimöguleika. Hann styður Wi-Fi 5 (802.11a/b/g/n/ac) á bæði 2.4GHz og 5GHz tíðnisviðum, ásamt Wi-Fi Direct og Miracast. Bluetooth 5.2 er til staðar fyrir þráðlausa tengingu við önnur tæki. Hægt er að hafa tvö SIM-kort (nano + nano) í símanum í einu, auk microSD korts til að stækka geymsluplássið. Staðsetningartækni er með GPS, A-GPS og QZSS stuðningi.

IP52 vottun

Síminn er með IP52 vottun fyrir ryk- og vatnsþol. Því er mikilvægt að gæta vel að símanum í kringum vatn eða mikinn raka til að forðast skemmdir. Sjá nánari upplýsingar um IP vottun.

Fingrafaraskanni á hlið

Síminn er með fingrafaraskanni á hliðinni sem veitir örugga og þægilega leið til að opna tækið. Einnig er hægt að nota AI Face Unlock, sem er andlitsgreiningartækni, til að opna símann fljótt og auðveldlega.

Android 16 með Xiaomi HyperOS 3

Redmi A7 Pro keyrir á Android 16 stýrikerfinu með Xiaomi HyperOS 3 notendaviðmótinu. Þetta kerfi býður upp á slétta og notendavæna upplifun með ýmsum nýjum eiginleikum og hagræðingum. HyperOS er hannað til að veita betri afköst, orkunýtingu og samþættingu við önnur Xiaomi tæki.

Í kassanum fylgir:

Í kassanum fylgir:

  • Redmi A7 Pro
  • Hleðslusnúra (hleðslukubbur seldur sér)
  • Pinni til að losa SIM-kortið
  • Leiðbeiningabæklingur
  • Redmi A7 Pro
  • Hleðslusnúra (hleðslukubbur seldur sér)
  • Pinni til að losa SIM-kortið
  • Leiðbeiningabæklingur

Nánari upplýsingar

Algengar spurningar

Tengdar vörur