10.990 kr.
Redmi Buds 8 eru þráðlaus heyrnartól með 11 mm hátölurum, Bluetooth 5.4 tengingu og allt að 50 dB virkri hljóðeinangrun (ANC). Rafhlaðan endist í allt að 11 klukkustundir á einni hleðslu og allt að 44 klukkustundir með hleðsluhulstrinu þegar slökkt er á hljóðeinangrun. Heyrnartólin vega 5,0 g hvort um sig, eru með IP54 ryk- og skvettuvörn og nota þrjá hljóðnema með gervigreind til að draga úr vindgnauði í símtölum.
Upplýsingar
Heyrnartólin tengjast með Bluetooth 5.4 og hafa allt að 10 metra drægni í opnu rými. Hægt er að tengja þau við tvö tæki samtímis, deila hljóði með öðru pari af heyrnartólum og para þau fljótt með Google Fast Pair.
Á einni hleðslu endast heyrnartólin í allt að 11 klukkustundir og allt að 44 klukkustundir samtals með hleðsluhulstrinu þegar slökkt er á virkri hljóðeinangrun. Með kveikt á hljóðeinangrun (ANC) er endingin 6,5 klukkustundir á einni hleðslu og 28 klukkustundir með hulstrinu.
Hleðsluhulstrið er með 475 mAh rafhlöðu og USB-C tengi. Tíu mínútna hraðhleðsla gefur allt að 4 klukkustundir af tónlistarspilun eða 1,5 klukkustundir í símtölum, og LED-ljósarönd á hulstrinu sýnir stöðu rafhlöðunnar þegar það er opnað.
Í Xiaomi Earbuds appinu er hægt að sérsníða virkni heyrnartólanna, taka Sound ID heyrnarpróf til að aðlaga hljóminn og virkja hljóðleit ef heyrnartólin týnast. Á Xiaomi og REDMI snjallsímum er einnig hægt að breyta stillingum beint í Bluetooth-valmynd símans.
Heyrnartólin sjálf eru með IP54 vottun gegn ryki og vatnsskvettum. Sjá nánari upplýsingar um IP vottun
Virk hljóðeinangrun (ANC) dregur úr umhverfishljóðum um allt að 50 dB, hefur þrjú aðlögunarstig og greinir lögun eyrnaganga. Einnig er hægt að velja á milli þriggja umhverfishljóðstillinga (Transparency mode), þar á meðal stillingar sem skerpir á mannsröddum eða umhverfishljóðum.
Í heyrnartólunum eru 11 mm hátalarar og stuðningur við SBC, AAC og LHDC hljóðstaðla. Þau eru með Hi-Res Audio Wireless vottun sem virkjast með hugbúnaðaruppfærslu (OTA) þegar þau eru notuð með tækjum sem styðja LHDC.
Þriggja hljóðnema kerfi með gervigreind (AI) síar út umhverfishávaða í símtölum og dregur úr vindgnauði í allt að 12 m/s vindi.
Hvert heyrnartól vegur 5,0 grömm og heildarþyngd með hleðsluhulstri er 44,5 grömm. Þrjú pör af eyrnapúðum í stærðum S, M og L fylgja með svo hægt sé að velja þá stærð sem passar best.
Í kassanum fylgir:
Í kassanum fylgir:
Nánari upplýsingar
Algengar spurningar