79.990 kr. Original price was: 79.990 kr..71.991 kr.Current price is: 71.991 kr..
Redmi Note 15 Pro 5G 8+256GB snjallsími er með 200 MP aðalmyndavél með hristivörn og 6,83″ AMOLED-skjá. Rafhlaðan er 6.580 mAh með 45 W hleðslu, örgjörvinn MediaTek Dimensity 7400-Ultra og síminn er með IP68 ryk- og vatnsvörn.
Upplýsingar
Skjárinn er 6,83″ með upplausnina 2772 × 1280 og allt að 120 Hz endurnýjunartíðni, svo skrun og leikir verða mýkri. Hámarksbirtan er 3.200 nit og skjárinn styður Dolby Vision og HDR10+.
Örgjörvinn er átta kjarna MediaTek Dimensity 7400-Ultra, smíðaður með 4 nm tækni og vinnsluminnið er 8 GB. Hann ræður vel við dagleg forrit, myndbönd og leiki.
Aðalmyndavélin er 200 MP með myndflögu sem er 1/1,4 tommur, ljósopi f/1,7 og hristivörn (OIS). Víðlinsan er 8 MP með ljósopi f/2,2. Myndbönd eru tekin upp í 4K við 30 ramma á sekúndu. Hristivörnin gefur skarpari myndir í lítilli birtu og stöðugri upptökur.
Myndavélin að framan er 20 MP með ljósopi f/2,2 og tekur upp 1080p myndbönd við allt að 60 ramma á sekúndu.
Rafhlaðan er 6.580 mAh og endist í allt að tvo daga, eða allt að 27 klst. af myndbandsspilun. Rafhlaðan heldur 80% eða meira af rýmd sinni eftir 1.600 hleðslur, sem samsvarar um sex ára notkun.
Síminn tekur við 45 W hleðslu um USB-C. Hann getur líka hlaðið önnur tæki með snúru með 22,5 W afli, til dæmis heyrnartól eða úr.
Síminn er með 8 GB vinnsluminni og 256 GB geymslu (UFS 2.2). Litirnir eru Black, Glacier Blue og Titanium.
Skjárinn er varinn með Corning Gorilla Glass Victus 2. Síminn er með IP66 og IP68 ryk- og vatnsvörn. Sjá nánar um IP-vottun
Stýrikerfið er Xiaomi HyperOS 2 og síminn fær öryggisuppfærslur í 6 ár, svo hann helst öruggur í notkun árum saman.
Síminn styður 5G, tvö SIM-kort (tvö nano-SIM eða nano-SIM og eSIM), NFC, Wi-Fi 6 og Bluetooth 5.4. Fingrafaralesarinn er í skjánum og síminn er með innrauðan sendi, svo hann getur verið fjarstýring fyrir sjónvarpið. Með tveimur SIM-kortum má hafa vinnunúmer og einkanúmer í sama símanum og eSIM er rafrænt SIM-kort sem er sótt í símann, t.d. ferðakort fyrir útlönd. Með NFC er hægt að borga með símanum í posa. Með tvöföldu rými (Second space) má hafa tvö aðskilin svæði í símanum með sínu lykilorði hvort, til dæmis eitt fyrir þig og annað fyrir barnið, eða eitt persónulegt og annað fyrir vinnuna.
Myndflagan í aðalmyndavélinni sameinar 16 díla í einn þegar birtan er lítil, svo myndir verða bjartari og með minna suði. Í góðri birtu nýtist full 200 MP upplausn þegar þú vilt klippa myndina til eftir á.
Síminn er 16,4 cm á hæð, 7,8 cm á breidd og 0,80 cm á þykkt. Þyngdin er 210 g.
Í kassanum fylgir:
Í kassanum fylgir:
Nánari upplýsingar
Algengar spurningar