10.990 kr.
Redmi Watch 6 Active er létt snjall- og heilsuúr með 1.85″ AMOLED skjá og allt að 18 daga rafhlöðuendingu. Úrið fylgist með helstu heilsuþáttum allan sólarhringinn, býður upp á yfir 140 íþróttastillingar og styður símtöl í gegnum Bluetooth. Það keyrir á Xiaomi HyperOS og tengist bæði Android og iOS símum í gegnum Mi Fitness appið.
Upplýsingar
Skjárinn er með 390 × 450 díla upplausn (322 PPI) og allt að 1.200 nita hámarksbirtustig svo auðvelt er að lesa á hann utandyra. Yfir 50 Hz endurnýjunartíðni gerir hreyfingar á skjánum liprar og úrið styður einnig Always-on Display. Yfirborðið er varið með 2.5D sveigðu Panda MN228 gleri með ≥ 9H hörku.
Í úrinu er 470 mAh rafhlaða sem endist í allt að 18 daga við létta notkun og 12 daga við hefðbundna notkun. Við mikla notkun eða með Always-on Display virkt er endingin 6 dagar. Úrið er hlaðið með segulhleðslusnúru.
Úrið er með 142 íþróttastillingar og sjálfvirka greiningu á æfingum. Það er með IP68 ryk- og vatnsvörn fyrir daglega notkun, en er ekki ætlað til notkunar í sundlaugum, sturtu, heitum pottum eða gufubaði.
Með innbyggðum hátalara, hljóðnema og Bluetooth 5.3 tengingu við símann er hægt að svara símtölum og tala beint í gegnum úrið.
Optískur PPG-skynjari fylgist stöðugt með hjartslætti, súrefnismettun í blóði (SpO₂) og streitustigi yfir daginn. Á nóttunni greinir úrið svefnmynstur og veitir yfirsýn yfir svefngæði.
Stýrikerfið er Xiaomi HyperOS og úrið tengist Mi Fitness appinu þar sem æfinga- og heilsuupplýsingar eru teknar saman. Það styður síma með Android 8.0 eða nýrra og iOS 14.0 eða nýrra.
Umgjörðin er úr plasti með málmáferð, mælist 44,5 × 39,4 × 9,9 mm og er með einum hliðarhnappi. Úrið vegur 26 grömm án ólar, eða um 39 grömm með TPU-ólinni, svo lítið fer fyrir því á úlnliðnum.
TPU-ólin sem fylgir er með smellufestingu og passar á úlnliði sem eru 135–205 mm í ummáli. Festingin passar einnig við ólar fyrir Redmi Watch 4, Redmi Watch 5, Redmi Watch 6, 6 NFC og 6 Lite ásamt Xiaomi Smart Band 8 Pro, 9 Pro og 10 Pro.
Í kassanum fylgir:
Í kassanum fylgir:
Nánari upplýsingar
Algengar spurningar