Redmi Watch 6 Lite snjall- og heilsuúr

Redmi Watch 6 Lite snjall- og heilsuúr

14.990 kr.

Frí heimsending ef keypt er fyrir 15.000 kr. eða meira Karfan þín er yfir 15.000 kr. og þú færð fría heimsendingu

Redmi Watch 6 Lite er létt snjall- og heilsuúr með björtum AMOLED skjá, innbyggðu GPS og yfir 150 íþróttastillingum. Úrið fylgist með heilsunni allan sólarhringinn, styður símtöl í gegnum Bluetooth og endist í allt að 18 daga á einni hleðslu.

– 1.96″ AMOLED 1.500 nit skjár
– Allt að 18 daga rafhlöðuending
– 150+ íþróttastillingar og innbyggt GPS
– Bluetooth-símtöl beint úr úrinu
– Heilsuvöktun allan sólarhringinn
– 5ATM vatnsvörn og ítarleg sundmæling
– Létt hönnun og TPU-ól með hraðfestingu
– Xiaomi HyperOS og Mi Fitness appið

Upplýsingar

1.96″ AMOLED 1.500 nit skjár

Skjárinn er með 410 × 502 díla upplausn (332 PPI), 73,2% skjáhlutfall og yfir 50 Hz endurnýjunartíðni. Innbyggður birtuskynjari aðlagar birtuna sjálfkrafa að umhverfinu og hægt er að hafa kveikt á Always-on Display (AOD).

Allt að 18 daga rafhlöðuending

470 mAh rafhlaðan endist í allt að 18 daga við létta notkun og allt að 12 daga við hefðbundna notkun. Við mikla notkun með Always-on Display virkt er endingin allt að 6 dagar.

150+ íþróttastillingar og innbyggt GPS

Innbyggt staðsetningarkerfi (GNSS) styður fimm gervihnattakerfi (GPS, Galileo, Glonass, BeiDou og QZSS) ásamt rafrænum áttavita. Úrið er með yfir 150 íþróttastillingar.

Bluetooth-símtöl beint úr úrinu

Úrið er með innbyggðan hátalara og hljóðnema og styður símtöl í gegnum Bluetooth þegar það er tengt við síma. Bluetooth 5.3 tengingin nær allt að 200 metra drægni á opnu svæði og allt að 50 metrum þar sem fyrirstöður eru.

Heilsuvöktun allan sólarhringinn

Innbyggðir skynjarar fylgjast með hjartslætti, súrefnismettun í blóði (SpO₂), streitu og svefni allan sólarhringinn. Einnig er hægt að skrá og fylgjast með tíðahring.

5ATM vatnsvörn og ítarleg sundmæling

Úrið er 5ATM vatnsvarið og með sérstaka sundstillingu sem nýtir 9-ása hreyfiskynjara. Stillingin mælir meðalhraða, breytingar á hjartslætti í vatni og SWOLF-skilvirkni, með 94,4% nákvæmni í ferðatalningu og 97,5% nákvæmni í sundtökum við bringusund.

Létt hönnun og TPU-ól með hraðfestingu

Úrið vegur 27,8 grömm án ólar og er 9,9 mm þunnt með 2.5D bogadregnu gleri. Með úrinu fylgir TPU-ól með hraðfestingu sem passar á úlnliði með 135–205 mm ummál.

Xiaomi HyperOS og Mi Fitness appið

Úrið keyrir á Xiaomi HyperOS stýrikerfinu og tengist Mi Fitness appinu. Það styður snjallsíma með Android 8.0 eða nýrra og iOS 14.0 eða nýrra.

Í kassanum fylgir:

Í kassanum fylgir:

  • Redmi Watch 6 Lite
  • Segulhleðslusnúra
  • Leiðbeiningabæklingur
  • Redmi Watch 6 Lite
  • Segulhleðslusnúra
  • Leiðbeiningabæklingur

Nánari upplýsingar

Algengar spurningar

Tengdar vörur