64.990 kr.
Ulefone Armor 24 Pro er öflugur og harðgerður sími með gríðarstórri 22.000 mAh rafhlöðu og 66W hraðhleðslu. Hann er hannaður til að standast erfiðar aðstæður með IP68, IP69K og MIL-STD-810H vottun. Síminn er með 6.78″ 120Hz FHD+ skjá og öflugu 64MP myndavélakerfi, þar á meðal nætursjónarmyndavél. MediaTek Helio G200 örgjörvinn og 12GB vinnsluminni tryggja snögga og áreiðanlega frammistöðu.
Upplýsingar
Ulefone Armor 24 Pro er með stóran 6.78″ FHD+ (1080 x 2460) IPS LCD skjá með 120Hz endurnýjunartíðni, sem gerir upplifunina mjúka og þægilega. Skjárinn er með 240Hz snertinæmni og hámarksbirtustig upp á 460 nits. Hann er varinn með Corning Gorilla Glass 5 fyrir aukna endingu.
Síminn er knúinn af MediaTek Helio G200 átta-kjarna örgjörva (2x Cortex-A76 2.2GHz + 6x Cortex-A55 2.0GHz, 6nm ferli) með Arm Mali-G57 MC2 GPU (1.0GHz). Þessi örgjörvi skilar góðri frammistöðu í daglegri notkun og leikjum, en styður ekki 5G farsímanet.
Ulefone Armor 24 Pro kemur með 12GB vinnsluminni (LPDDR4X) og 256GB geymsluplássi (UFS2.2). Þetta minni gerir símann snöggann að opna og skipta á milli forrita. Hægt er að stækka geymsluplássið með allt að 2TB microSD korti.
Ulefone Armor 24 Pro er með öflugu myndavélakerfi sem hentar vel í ýmsar aðstæður. OIS tækni hjálpar til við að minnka titring og truflun í myndatöku. Myndavélarnar eru:
Að framan er 16MP selfie myndavél (Samsung S5K3P8, ƒ/2.2).
Síminn er búinn gríðarstórri 22.000 mAh Li-polymer rafhlöðu sem tryggir langan endingartíma. Hún styður 66W hraðhleðslu með USB-C snúru og einnig 10W öfuga hleðslu með snúru, sem gerir þér kleift að hlaða önnur tæki.
Ulefone Armor 24 Pro styður Wi-Fi (2.4G/5G) og Bluetooth 5.2 fyrir hraðvirkar og stöðugar tengingar. Hægt er að hafa tvö SIM-kort í símanum í einu (Dual Nano-SIM + eSIM). Síminn er einnig með NFC og staðsetningartækni (GPS, GLONASS, Beidou, Galileo, QZSS).
Ulefone Armor 24 Pro er með IP68, IP69K og MIL-STD-810H vottun, sem þýðir að hann er ryk-, vatns- og höggvarinn. Þetta gerir símann afar endingargóðan og hentugan fyrir notkun í erfiðu umhverfi. Hann þolir að vera á allt að 1.5 metra dýpi í allt að 30 mínútur. Sjá nánari upplýsingar um IP vottun.
Á bakhlið símans er fjölhæft LED ljós sem getur skilað allt að 1000 lúmenum og notar 512 ljósperlur. Þetta öfluga ljós er mjög gagnlegt í myrkri, hvort sem er til vinnu eða útivistar.
Ulefone Armor 24 Pro er búinn uSmart stækkunartengi sem gerir kleift að tengja ýmsa Ulefone uSmart aukahluti, eins og endoscope eða smásjá, til að auka virkni símans í sérhæfðum verkefnum.
Í kassanum fylgir:
Í kassanum fylgir:
Nánari upplýsingar
Algengar spurningar




