Ulefone Armor 25T Pro 256GB 5G vinnusími m. hitamyndavél

Ulefone Armor 25T Pro 256GB 5G vinnusími m. hitamyndavél

79.990 kr.

Ulefone Armor 25T Pro er harðgerður 5G vinnusími sem er hannaður til að þola erfiðar aðstæður. Hann er með hitamyndavél, nætursjónarmyndavél og öflugan örgjörva. Síminn býður upp á 6GB vinnsluminni og 256GB geymslupláss, ásamt möguleika á allt að 2TB SD korti.

– 6.78″ IPS LCD 120Hz skjár
– MediaTek Dimensity 6300 5G örgjörvi
– 6GB + 256GB minni
– 50MP + 64MP + hitamyndavél
– 6.500 mAh rafhlaða
– Wi-Fi 5, Bluetooth 5.2, Dual SIM
– IP68/IP69K og MIL-STD-810H vottun
– Innbyggð hitamyndavél
– Öflug nætursjónarmyndavél

Á lager

Oft keypt með

Ulefone 50W þráðlaus hleðslustandur

  • Þráðlaus hleðslustandur frá Ulefone
  • Hleður með allt að 50W hraða
  • Virkar fyrir tæki sem styðja við Qi þráðlausa hleðslu
  • Hljóðlátt innbyggt kælikerfi

Ulefone Armor Mount farsímastandur

  • Símahaldari fyrir Ulefone síma með hulstri
  • Ath. það þarf Ulefone hulstur til að nota haldarann

Ulefone case - Armor 25T Pro Hulstur

  • Hulstur á Ulefone Armor 25 series
  • Hulstrið er hannað og framleitt af Ulefone
  • Eykur enn frekar vörn gegn falli og rispum
  • Óhindrað aðgengi að hnöppum, myndavél og hleðslutæki
  • Inniheldur hulstur, klemmu og karabínu
Vörunúmer: 736127
Strikamerki: 69377487361276975326660907

Upplýsingar

6.78″ IPS LCD 120Hz skjár

Síminn er með 6.78″ IPS LCD skjá með 1080 x 2460 upplausn og 120Hz endurnýjunartíðni, sem gerir upplifunina mýkri og skýrari. Skjárinn er varinn með Corning Gorilla Glass Victus.

MediaTek Dimensity 6300 5G örgjörvi

Ulefone Armor 25T Pro er knúinn af MediaTek Dimensity 6300 (6nm) Octa-Core örgjörva sem skilar góðum afköstum í daglegri notkun og styður 5G tengingu fyrir hraðvirkt net. Örgjörvinn er orkunýtur og tryggir stöðugan rekstur.

6GB + 256GB minni

Með 6GB vinnsluminni (hægt að stækka upp í 12GB með sýndarminni) og 256GB geymsluplássi (UFS 2.2) er síminn snöggur að opna og skipta á milli forrita. Hægt er að setja allt að 2TB microSDXC kort í sérstakt rauf til að auka geymsluplássið.

50MP + 64MP + hitamyndavél

Ulefone Armor 25T Pro er með öflugu myndavélakerfi sem hentar vel í ýmsar aðstæður:

  • 50MP aðalmyndavél (Samsung S5KGN1, f/1.7)
  • 64MP nætursjónarmyndavél (OV64B1B, f/1.8) með tveimur innrauðum ljósum
  • Innbyggð hitamyndavél (ThermoVue, 160 x 120 upplausn, -20°C til 550°C)
  • 32MP selfie myndavél (Samsung GD1, f/2.5)

OIS tækni hjálpar til við að minnka titring og truflun í myndatöku.

6.500 mAh rafhlaða

Síminn er með stóra 6.500 mAh rafhlöðu sem endist lengi. Hann styður 33W hraðhleðslu með snúru og 30W þráðlausa hleðslu, auk öfugrar þráðlausrar hleðslu til að hlaða önnur tæki. Hleðsla fer fram í gegnum USB-C tengi.

Wi-Fi 5, Bluetooth 5.2, Dual SIM

Ulefone Armor 25T Pro býður upp á fjölbreytta tengimöguleika. Hann styður Wi-Fi 802.11 a/b/g/n/ac (tvíband), Bluetooth 5.2, NFC fyrir snertilausar greiðslur og Dual SIM (nano-SIM). Einnig er til staðar USB 2.0 Type-C tengi og 3.5 mm hljóðtengi. Staðsetningartækni felur í sér GPS, GLONASS, Galileo og BeiDou.

IP68/IP69K og MIL-STD-810H vottun

Ulefone Armor 25T Pro er með IP68/IP69K ryk- og vatnsvörn, auk MIL-STD-810H hernaðarvottunar. Þetta þýðir að síminn er hannaður til að þola fall, vatnsdýfingu, ryk, högg og mikinn hita (-20°C til 55°C). Hann er með ál-títan ramma og Corning Gorilla Glass Victus skjávörn. Gott er að kynna sér ábyrgðarskilmála varðandi högg- og vatnstjón.
Sjá nánari upplýsingar um IP vottun.

Innbyggð hitamyndavél

Síminn er með innbyggða ThermoVue hitamyndavél sem getur greint hitastig á bilinu -20°C til 550°C með ±3°C nákvæmni. Hún er með 160 x 120 pixla upplausn og 25Hz endurnýjunartíðni, sem gerir hana hentuga til að greina hitaleika, finna fólk í myrkri eða skoða rafmagnstöflur.

Öflug nætursjónarmyndavél

Með 64MP nætursjónarmyndavél og tveimur innrauðum ljósum getur síminn tekið skýrar myndir í algjöru myrkri. Þetta er sérstaklega gagnlegt fyrir útivist, öryggisvörslu eða vinnu í litlu ljósi.

Í kassanum fylgir:

  • Ulefone Armor 25T Pro
  • USB-C hleðslusnúra
  • 33W hleðslukubbur
  • Pinni til að losa SIM-kortið
  • Leiðbeiningabæklingur

Nánari upplýsingar

Algengar spurningar

ThermoVue™ hitamyndavél

Ulefone Armor 25T Pro er léttur og nettur sími með innbyggða hitamyndavél frá ThermoVue™. Hitamyndavélin mælir hita á milli -20° og 550° með einungis 3° skekkjumörkum. Hitamyndavélin drífur einnig allt að 1.000m, er næm og með 25Hz endurnýjunartíðni. 

Ulefone Armor 25T Pro vinnusími með hitamyndavél
Ulefone Armor 25T Pro vinnusími með hitamyndavél

Tvöfalt myndavélakerfi

Ulefone Armor 25T Pro er með tvöfalt myndavélakerfi sem að gerir alla myndatöku skarpa og skýra, hvernig sem birtuskilyrðin eru. Aðalmyndavélin er 50MP og nær frábærri upplausn, við litla birtu tekur svo 64MP næturmyndavélin við.

IP68/IP69K, MIL-STD-810H

Með IP68/IP69K og MIL-STD-810H vottun er síminn vel varinn og tilbúinn í flestallar aðstæður. Skjár símans er einnig með Gorilla Glass Victus gleri sem að ver hann vel gegn rispum og öðrum óhöppum.

Ulefone Armor 25T Pro vinnusími með hitamyndavél
Ulefone Armor 25T Pro vinnusími með hitamyndavél

Afkastamikill 5G örgjörvi

Ulefone Armor 25T Pro er með MediaTek Dimensity 6300 örgjörva. Örgjörvinn er afkastamikill og vinna og leikir verða leikur einn með kraftinum. Örgjörvinn býður einnig uppá 5G farsímatengingu. Vinnsluminni símans er svo 6GB en ef þörf krefur getur síminn fengið önnur 6GB „lánað“ frá geymsluplássi símans. Geymsluplássið er 256GB en hægt er einnig að bæta við SD korti allt að 2TB að stærð.

Ulefone Armor 25T Pro vinnusími með hitamyndavél

Rafhlaða í lengri tíma

Ulefone Armor 25T Pro er með stórri 6.500mAh rafhlöðu sem dugar í lengri tíma án þess að þurfa alltaf að vera að pæla hvar næsta innstunga sé. Þegar kemur svo að því að hlaða símann þá hleðst hann með 33W hraðhleðslu eða 30W þráðlausri hleðslu. Stór rafhlaðan leyfir einnig símanum að virka sem hleðslubanka, en með því að setja tæki sem styðja einnig þráðlausa hleðslu við bakhlið símans getur síminn gefið frá sér kraft til að hlaða tækin.

Ulefone Armor 25T Pro vinnusími með hitamyndavél

FHD+ 120Hz skjár

Skjárinn á Armor 25T Pro er með 1080×2460 upplausn og 120Hz endurnýjunartíðni. Samfélagsmiðlaskrun, leikir eða bíómyndir líta einstaklega vel út í skjánum og veita saumlausa upplifun.

Ulefone Armor 25T Pro vinnusími með hitamyndavél

Android 14 stýrikerfi

Android 14 stýrikerfið veitir möguleikann á fjölda persónusniðnum stillingum, miklu öryggi og þægilegri notendaupplifun. 

Ulefone Armor 25T Pro vinnusími með hitamyndavél

Tengdar vörur