Ulefone Armor Mini 20 Pro 256GB 5g vinnusími

Ulefone Armor Mini 20 Pro 256GB 5g vinnusími

Upprunalegt verð var: 64.990 kr.
Núverandi verð er: 55.242 kr.
Þú sparar 9.748 kr.

Original price was: 64.990 kr..Current price is: 55.242 kr..

Frí heimsending um allt land

Ulefone Armor Mini 20 Pro er lítill 5G vinnusími með 4,7″ skjá sem fer vel í annarri hendi. Hann er með 50 MP myndavél, 64 MP nætursjón og 6.200 mAh rafhlöðu með þráðlausri hleðslu. Síminn er með IP68/IP69K vörn, MIL-STD-810H og Corning Gorilla Glass Victus.

– 4,7″ IPS LCD skjár, 90 Hz
– MediaTek Dimensity 6300 örgjörvi
– 50 MP myndavél og 64 MP nætursjón
– 32 MP myndavél að framan
– 6.200 mAh rafhlaða
– 33 W hleðsla og 15 W þráðlaus hleðsla
– 8 GB vinnsluminni og 256 GB geymsla
– IP68/IP69K og MIL-STD-810H
– 5G, NFC og tvö SIM-kort
– 500 lm ljós og viðvörunarljós
– Stærð 13,3 × 6,3 × 2,5 cm, 301 g
Tækjatrygging er í boði fyrir þessa vöru
Nánar um tækjatrygginguna

Á lager

Oft keypt með

Ulefone case - Armor Mini 20 series hulstur

  • Hulstur á Ulefone Armor 20 Mini seríuna
  • Hulstrið er hannað og framleitt af Ulefone
  • Eykur enn frekar vörn gegn falli og rispum
  • Óhindrað aðgengi að hnöppum, myndavél og hleðslutæki
  • Inniheldur hulstur og klemmu
  • ATH: hulstrið fer yfir skjáinn á símanum og er aðallega ætlað til að festa símann á klæði ef nota á ljósið að aftan

Ulefone 15W Wireless Charging Pad

  • Þráðlaus hraðhleðsluplatti
  • Qi þráðlaus hleðsla
  • Vörn gegn ofhitnun og spennu
  • Ofurþunn hönnun
Vörunúmer: 663243
Strikamerki: 6975326663243

Upplýsingar

4,7″ IPS LCD skjár, 90 Hz

Skjárinn er 4,7″ af gerðinni IPS LCD með HD+ upplausn, 720 × 1.600 punkta. Endurnýjunartíðnin er 90 Hz, svo skrun, myndbönd og leikir verða mýkri á skjánum. Skjárinn er lítill, svo síminn fer vel í annarri hendi og í vasa.

MediaTek Dimensity 6300 örgjörvi

Örgjörvinn er MediaTek Dimensity 6300 með átta kjarna, þeir hröðustu 2,4 GHz og styður 5G. Hann ræður vel við dagleg verk, myndbönd og leiki. Android 16 fæst með uppfærslu yfir netið.

50 MP myndavél og 64 MP nætursjón

Að aftan er 50 MP myndavél með stórum skynjara og 64 MP myndavél með nætursjón sem notar innrautt ljós og tekur myndir í algjöru myrkri. Myndbönd eru tekin upp í 2K. Nætursjónin nýtist til dæmis við eftirlit, leit og til að fylgjast með dýrum í myrkri.

32 MP myndavél að framan

Myndavélin að framan er 32 MP og tekur upp myndbönd í 2K. Með sérstakri stillingu má líka taka myndir og myndbönd í vatni.

6.200 mAh rafhlaða

Rafhlaðan er 6.200 mAh. Hún endist í allt að 336 klst. í biðstöðu (um 14 daga) og allt að 34 klst. í tali. Það er mikið fyrir svona lítinn síma.

33 W hleðsla og 15 W þráðlaus hleðsla

Síminn hleður með 33 W um USB-C tengi og með 15 W þráðlaust á hleðslutæki. Hann getur líka hlaðið önnur tæki þráðlaust, til dæmis heyrnartól.

8 GB vinnsluminni og 256 GB geymsla

Vinnsluminnið er 8 GB og geymslan 256 GB. Minniskort (microSD) allt að 2 TB bætir við plássi fyrir myndir og myndbönd, en það notar sama hólf og seinna SIM-kortið.

IP68/IP69K og MIL-STD-810H

Síminn er með IP68 og IP69K ryk- og vatnsvörn og er prófaður samkvæmt hernaðarstaðlinum MIL-STD-810H. Hann er smíðaður fyrir verkstað, sveit og útivist. Á skjánum er Corning Gorilla Glass Victus. Sjá nánar um IP-vottun

5G, NFC og tvö SIM-kort

Síminn er með 5G og tekur tvö nano-SIM kort sem geta bæði verið á 5G. Þannig má hafa vinnunúmer og einkanúmer í sama símanum, eða íslenskt kort og ódýrt ferðakort erlendis. Með NFC má borga með símanum í posa, til dæmis með Google Pay. Þráðlaust net er á 2,4 og 5 GHz, Bluetooth er 5.2 og á símanum er heyrnartólatengi.

5G, NFC og tvö SIM-kort
500 lm ljós og viðvörunarljós

Í kringum myndavélarnar er ljós með 130 díóðum sem gefur 500 lm og nýtist sem vasaljós eða ljós við vinnu. Það getur líka blikkað rauðu og bláu sem viðvörunarljós, með hljóði ef vill.

Stærð 13,3 × 6,3 × 2,5 cm, 301 g

Hæð 13,35 cm, breidd 6,33 cm og þykkt 2,49 cm. Síminn vegur 301 g. Hann er stuttur og mjór en þykkur og liggur vel í lófa.

Í kassanum fylgir:

Í kassanum fylgir:

  • Sími
  • Hleðslutæki
  • USB-C snúra (1 m)
  • Filma á skjá (ásett)
  • Hert gler á skjá
  • SIM-nál
  • Band
  • Leiðarvísir
  • Sími
  • Hleðslutæki
  • USB-C snúra (1 m)
  • Filma á skjá (ásett)
  • Hert gler á skjá
  • SIM-nál
  • Band
  • Leiðarvísir

Nánari upplýsingar

Algengar spurningar

Tengdar vörur