149.990 kr.
Xiaomi 17T Pro er öflugur flaggskips snjallsími með 6.83 tommu AMOLED skjá, 144Hz endurnýjunartíðni og MediaTek Dimensity 9500 örgjörva. Hann er með þrefaldt Leica VARIO Summilux myndavélakerfi sem gerir þér kleyft að taka stórfenglegar myndir með Leica áhrifum og allt að 120x aðdrætti og stórri og endingargóðri 7.000 mAh rafhlöðu með 100W hraðhleðslu eða 50W þráðlausri hleðslu.
Upplýsingar
Skjárinn er 6.83″ AMOLED með 144Hz endurnýjunartíðni sem gerir allt efni mjúkt og fljótandi. Hámarks birtustigið er 3.500nits og upplausnin er 1280×2772 pixlar. Síminn hann styður Dolby Vision og HDR10+ fyrir skærar og líflegar myndir. Skjárinn er svo varinn með Corning Gorilla Glass 7i skjágleri.
Síminn er með MediaTek Dimensity 9500 örgjörva sem skilar miklum afköstum fyrir leiki, fjölverkavinnsla og kröfuharða notkun. Með 12GB af vinnsluminni er síminn fljótur og fær um að keyra mörg forrit í einu án þess að hægja á sér.
Með 12GB vinnsluminni (LPDDR5x) og 512GB geymsluplássi (UFS 4.1) er Xiaomi 17T Pro snöggur að opna og skipta á milli forrita. Þetta mikla minni tryggir einnig að síminn ræður vel við stórar skrár og krefjandi verkefni án þess að hægja á sér.
Myndavélakerfið er þróað í samstarfi við Leica og er með þremur linsum: 50 MP 23mm aðalmyndavél með OIS og f/1.67, 50 MP 115mm periscopic aðdráttarlinsu með f/3.0 og OIS, og 12 MP 15mm gleiðhornslinsu með f/2.2. Aðalmyndavélin notar Light Fusion 950 myndflögu fyrir framúrskarandi myndgæði. Myndavélin er með Leica Vario Summilux ljósfræði. Aðdrátturinn er allt að 10x optískur og allt að 120x með digital aðdrætti.
Stór 7.000 mAh rafhlaða tryggir langan notkunartíma á einni hleðslu. Þegar kemur að hleðslu styður síminn 100W HyperCharge hraðhleðslu með snúru og 50W þráðlausa hleðslu. Þú getur hlaðið símann hratt og örugglega.
Síminn styður Wi-Fi 7 (802.11 be) fyrir hraðvirkar og stöðugar þráðlausar tengingar. Hann er einnig með Bluetooth 6.0, NFC og GPS fyrir ýmsar tengingar og staðsetningarþjónustu. Hægt er að nota tvö SIM-kort í einu eða eitt SIM kort og eitt eSIM.
Með IP68 vottun er Xiaomi 17T Pro varinn gegn ryki og vatni. Þetta þýðir að síminn þolir að vera á kafi í allt að 1,5 metra djúpu vatni í allt að 30 mínútur. Þú þarft því síður að hafa áhyggjur af skvettum eða ryki. Gott er að kynna sér ábyrgðarskilmála varðandi högg- og vatnstjón. Sjá nánari upplýsingar um IP vottun.
Síminn er með tvöföldum hljómtækjum sem styðja Dolby Atmos og eru Hi-Res vottaðir fyrir bæði þráðlaust og snúrutengt hljóð. Hljóðgæðin eru framúrskarandi, hvort sem þú hlustar á tónlist eða horfir á myndbönd.
Xiaomi 17T Pro er með innbyggða gervigreind (AI) sem er samþætt í Xiaomi HyperOS 3.0. Þetta felur í sér AI Writing fyrir textagerð og leiðréttingar, AI Speech Recognition fyrir tal-í-texta og samantektir, og AI Interpreter fyrir rauntímaþýðingar. Einnig eru öflug mynd- og myndbandsverkfæri eins og AI Erase Pro og AI Image Expansion. Google Gemini er innbyggður aðstoðarmaður og „Circle to Search“ gerir kleift að leita á skjánum með einföldum hring.
Xiaomi HyperOS 3.0 er stýrikerfið sem Xiaomi 17T Pro keyrir á, byggt á Android 16. Það er hannað til að vera hraðvirkara, sléttara og meira samþætt við önnur Xiaomi tæki. HyperOS leggur áherslu á kerfishagræðingu, betri tengingu milli tækja og innbyggða gervigreindareiginleika fyrir aukna virkni og öryggi.
Síminn er með innbyggðum IR Blaster sem gerir þér kleift að stjórna heimilistækjum eins og sjónvörpum og loftræstingu beint úr símanum. Þetta er þægilegur eiginleiki sem einfaldar daglegt líf.
Í kassanum fylgir:
Í kassanum fylgir:
Nánari upplýsingar
Algengar spurningar




