Xiaomi 18 Pro 12+256GB 5G Leica snjallsími

Xiaomi 18 Pro 12+256GB 5G Leica snjallsími

229.990 kr.

Frí heimsending um allt land

Xiaomi 18 Pro 5G er nettur snjallsími með 6,4″ aðalskjá, 2,7″ aukaskjá á baki og Leica Vario-Summilux myndavélakerfi. Síminn er búinn Snapdragon 8 Elite Gen 6 örgjörva, 12GB vinnsluminni og 256GB geymsluplássi. Hann er með 6.000mAh rafhlöðu, styður 90W hraðhleðslu og er með IP68 ryk- og vatnsvörn.

– 6,4″ 120Hz LTPO Xiaomi Privacy skjár
– Snapdragon 8 Elite Gen 6 5G örgjörvi
– 12GB + 256GB minni
– 200MP + 200MP + 50MP Leica myndavélar
– 6.000 mAh rafhlaða
– Wi-Fi 7, Bluetooth 6.0, Dual SIM
– IP68 vottun
– 2,7″ AMOLED aukaskjár á baki
– Xiaomi HyperAI og Google Gemini
– Dolby Atmos stereo hátalarar
– Xiaomi 3D IceLoop kælikerfi
– Fingrafaraskanni í skjá og nett hönnun
Tækjatrygging er í boði fyrir þessa vöru
Nánar um tækjatrygginguna

Oft keypt með

Xiaomi 90W Hypercharge Combo hleðslutæki

  • Hleðslukubbur og snúra
  • Styður 90W hraðhleðslu
  • USB-C snúra
  • Snúran er 1m á lengd

Uppselt

Xiaomi 90W HyperCharge GaN (3-port) hleðslutæki

Xiaomi 90W HyperCharge GaN (3-port) hleðslutæki skilar 90 W úr hvoru USB-C tengi og hleður þrjú tæki í einu um tvö USB-C tengi og eitt USB-A tengi. Það styður PD, PPS og QC hraðhleðslu fyrir síma, spjaldtölvur og fartölvur.

Xiaomi 100W Charging Combo USB-A hleðslutæki

Uppselt

Xiaomi 120W HyperCharge Combo hleðslutæki

  • Hleðslukubbur og snúra
  • Styður 120W hraðhleðslu
  • USB-C snúra
  • Snúran er 1m á lengd

Upplýsingar

6,4″ 120Hz LTPO Xiaomi Privacy skjár

Xiaomi 18 Pro er með 6,4″ Xiaomi Privacy skjá (HyperRGB 2.0) með 2.436 x 1.120 upplausn og 1–120Hz LTPO endurnýjunartíðni sem aðlagar sig efninu á skjánum. Hámarksbirtustig nær 4.000 nits svo það sést vel á skjáinn úti í dagsbirtu. Skjárinn styður 12-bita litadýpt, HDR10+, Dolby Vision og DC dimming sem dregur úr flökti, auk Wet touch tækni sem nemur snertingu þótt skjárinn sé blautur. Glerið er varið með Xiaomi Shield Glass 3.0 og skjárinn er með TÜV Rheinland vottun fyrir persónuvernd og minni bláa birtu.

Snapdragon 8 Elite Gen 6 5G örgjörvi

Síminn er knúinn af Snapdragon 8 Elite Gen 6 5G örgjörva sem er framleiddur með 2nm tækni. Átta kjarna örgjörvinn nær allt að 5GHz klukkuhraða og vinnur með Adreno skjástýringu og Qualcomm AI Engine við gervigreindarvinnslu, leiki og myndvinnslu. 2nm framleiðsluferlið skilar góðri orkunýtni í daglegri notkun og 5G tengingin býður upp á hraða gagnatengingu í streymi og niðurhali.

12GB + 256GB minni

Með 12GB LPDDR5X vinnsluminni og 256GB UFS 4.1 geymsluplássi er síminn snöggur að opna og skipta á milli forrita. UFS 4.1 geymslutæknin hraðar lestri og vistun á stórum skrám, forritum og háupplausnarmyndböndum.

200MP + 200MP + 50MP Leica myndavélar

Leica Vario-Summilux myndavélakerfi með þremur linsum á baki og 50MP selfie myndavél með sjálfvirkum fókus (f/2.2). OIS tækni hjálpar til við að minnka titring og truflun í myndatöku á bæði aðal- og aðdráttarlinsu. Hægt er að taka upp myndbönd í allt að 8K við 30fps eða 4K við 120fps í Dolby Vision.

  • 200MP Leica 23mm aðalmyndavél (f/1.67, 1/1.28″ Light Fusion 960 myndflaga, OIS)
  • 200MP Leica 75mm telefoto aðdráttarlinsa (f/2.4, 1/1.56″ myndflaga, OIS, 12cm telemacro)
  • 50MP Leica ultra-wide víðlinsa (f/2.4, 102° sjónsvið)
  • 50MP selfie myndavél (f/2.2, 4K 60fps Dolby Vision myndbandsupptaka)
6.000 mAh rafhlaða

Xiaomi 18 Pro er með 6.000 mAh rafhlöðu sem styður bæði 90W USB-C hleðslu (HyperCharge) og 50W þráðlausa HyperCharge hleðslu. Einnig er stuðningur við algenga hleðslustaðla á borð við PD3.0 og QC3+ (hleðslukubbur er seldur sér).

  • 90W USB-C hraðhleðsla
  • 50W þráðlaus hleðsla
Wi-Fi 7, Bluetooth 6.0, Dual SIM

Síminn styður Wi-Fi 7 (með Multi-Link Operation, Wi-Fi Direct og Miracast) ásamt Bluetooth 6.0 með Dual-Bluetooth og stuðningi við helstu hljóðkódeka (m.a. AAC, AptX Adaptive, LDAC og LHDC 5.0). Hægt er að hafa tvö SIM-kort í símanum í einu og er bæði stuðningur við nano-SIM og eSIM. Einnig er NFC fyrir snertilausar greiðslur, innbyggður IR blaster sem nýtist sem fjarstýring og nákvæm staðsetningartækni (GPS L1+L5, Galileo, GLONASS, QZSS og NavIC).

IP68 vottun

IP68 ryk- og vatnsvörn gerir símann betur í stakk búinn fyrir daglega notkun og óvæntar aðstæður. Vottunin þýðir að síminn er rykþéttur og vatnsvarinn, en hann hefur verið prófaður í kyrrstæðu ferskvatni á allt að 1,5 metra dýpi í allt að 30 mínútur. Því er síður ástæða til að hafa áhyggjur af rigningu, skvettum eða ryki á ferðinni. Sjá nánari upplýsingar um IP vottun

2,7″ AMOLED aukaskjár á baki

Á bakhlið símans er 2,7″ AMOLED aukaskjár með 912 x 596 upplausn (400 ppi) og 1–120Hz LTPO endurnýjunartíðni. Aukaskjárinn nær allt að 4.000 nits hámarksbirtustigi og er varinn með Corning Gorilla Glass Victus 2 gleri.

Xiaomi HyperAI og Google Gemini

Síminn keyrir á Xiaomi HyperOS 4 (Android 17) með innbyggðum Xiaomi HyperAI gervigreindareiginleikum. Þar á meðal eru AI Writing fyrir textavinnslu, AI Speech Recognition sem breytir tali í texta, AI Interpreter fyrir rauntímaþýðingar og AI Search. Einnig fylgir Google Gemini aðstoðarmaður, Circle to Search með Google og sérstakur AI hnappur á hlið símans sem hægt er að stilla fyrir flýtiaðgerðir.

Dolby Atmos stereo hátalarar

Innbyggðir stereo hátalarar styðja Dolby Atmos og skila skýrum og víðum hljómi í myndböndum, tónlist og leikjum. Síminn er með Hi-Res Audio og Hi-Res Audio Wireless vottun fyrir hljóð í hárri upplausn í gegnum heyrnartól, auk fjögurra hljóðnema (4-Mic array) sem nema rödd skýrt í símtölum og upptökum.

Xiaomi 3D IceLoop kælikerfi

Xiaomi 3D IceLoop kælikerfið dreifir varma frá örgjörvanum og innri íhlutum. Það heldur hitastigi símans stöðugu við krefjandi vinnslu, svo sem í leikjum eða við upptöku á 8K myndböndum.

Fingrafaraskanni í skjá og nett hönnun

Ultrasonic fingrafaraskanni í skjá og AI andlitsopnun aflæsa símanum fljótt og örugglega. Umgjörðin er úr áli með Golden Arc hönnun og 0,99 mm þunnum skjáramma.

Í kassanum fylgir:

Í kassanum fylgir:

  • Xiaomi 18 Pro
  • Hlífðarhulstur
  • USB-C hleðslusnúra (hleðslukubbur seldur sér)
  • Pinni til að losa SIM-kortið
  • Leiðbeiningabæklingur
  • Xiaomi 18 Pro
  • Hlífðarhulstur
  • USB-C hleðslusnúra (hleðslukubbur seldur sér)
  • Pinni til að losa SIM-kortið
  • Leiðbeiningabæklingur

Nánari upplýsingar

Algengar spurningar

Tengdar vörur