259.990 kr.
Xiaomi 18 Pro Max 5G er snjallsími með 12GB vinnsluminni, 256GB geymsluplássi og Snapdragon 8 Elite Extreme Gen 6 örgjörva. Síminn er búinn 6,9″ aðalskjá að framan ásamt 2,9″ AMOLED aukaskjá á bakhliðinni og Leica Summilux myndavélakerfi með tveimur 200MP linsum. Stór 7.050mAh rafhlaða með 100W hraðhleðslu og IP68 ryk- og vatnsvörn gera símann vel búinn fyrir daglega notkun og myndatöku.
Upplýsingar
Xiaomi 18 Pro Max er með 6,9″ Xiaomi Privacy Display skjá (M11 panel) með 2.624 x 1.208 upplausn, 419 ppi þéttleika og 1–120Hz LTPO endurnýjunartíðni. Hámarksbirtustig nær allt að 4.000 nits svo það sést vel á skjáinn úti í dagsbirtu. Skjárinn styður 12-bita litadýpt, HDR10+, Dolby Vision og DC dimming til að draga úr flökti, auk þess sem hann er með TÜV Rheinland vottun fyrir persónuvernd og minna blátt ljós. Wet touch tækni nemur snertingu þótt skjárinn sé votur og Xiaomi Shield Glass 3.0 verndar glerið.
Síminn er knúinn af Snapdragon 8 Elite Extreme Gen 6 örgjörva sem er framleiddur með 2nm tækni. Örgjörvinn er með tvo Prime kjarna sem ná allt að 5GHz klukkuhraða og sex Performance kjarna, ásamt Adreno skjástýringu og Qualcomm AI vél. 2nm framleiðsluferlið stuðlar að góðri orkunýtni við þunga vinnslu, leiki og myndvinnslu, auk hraðrar 5G nettengingar.
Með 12GB LPDDR5X vinnsluminni og 256GB UFS 4.1 geymsluplássi er síminn snöggur að opna og skipta á milli forrita. Hraðvirkt minnið nýtist vel í þyngri vinnslu, til dæmis þegar unnið er með stór skjöl, leiki eða myndbönd í 4K og 8K upplausn.
Leica Vario-Summilux myndavélakerfi með tveimur Leica myndastílum (Authentic og Vibrant) og allt að 120x stafrænum aðdrætti. OIS tækni hjálpar til við að minnka titring og truflun í myndatöku á bæði aðalmyndavél og aðdráttarlinsu.
Aftari myndavélar taka upp myndbönd í allt að 8K (30fps) og 4K (allt að 120fps) með Dolby Vision, en selfie myndavélin styður 4K Dolby Vision upptöku á allt að 60fps.
Xiaomi 18 Pro Max er með 7.050 mAh (typ) rafhlöðu sem dugar í allt að 1,51 dag við almenna notkun. Síminn styður bæði hraðhleðslu með snúru og þráðlausa hraðhleðslu, auk algengra hleðslustaðla á borð við PD3.0 og QC3+.
Síminn styður Wi-Fi 7 ásamt Wi-Fi Direct og Miracast. Bluetooth 6.0 með Dual-Bluetooth styður helstu hljóðstaðla á borð við AAC, AptX Adaptive, LDAC og LHDC 5.0. Hægt er að hafa tvö SIM-kort í símanum í einu og einnig er stuðningur við eSIM. Tækið er með NFC fyrir snertilausar greiðslur, IR blaster fjarstýringu og nákvæma staðsetningartækni (GPS L1+L5, Galileo, GLONASS, QZSS og NavIC). Einnig styður síminn Xiaomi Offline Communication fyrir raddsímtöl án farsímasambands.
IP68 ryk- og vatnsvörn gerir símann betur í stakk búinn fyrir daglega notkun og óvæntar aðstæður. Vottunin þýðir að tækið er rykþétt og vatnsvarið, en það hefur verið prófað í ferskvatni á allt að 6 metra dýpi í allt að 30 mínútur samkvæmt IEC 60529 staðli. Hann þolir því vel rigningu, skvettur og ryk í daglegu amstri. Sjá nánari upplýsingar um IP vottun
Á bakhlið símans er 2,9″ AMOLED aukaskjár með 976 x 596 upplausn, 400 ppi þéttleika, 1–120Hz endurnýjunartíðni og allt að 4.000 nits hámarksbirtustigi. Skjárinn er varinn með Corning Gorilla Glass Victus 2 og sýnir tilkynningar, virkni og flýtiverkfæri, auk þess sem hægt er að festa mikilvægar upplýsingar á hann. Einnig nýtist aukaskjárinn sem gluggi við myndatöku svo auðvelt er að taka sjálfsmyndir og hópmyndir með aðalmyndavélunum.
Síminn er búinn þremur stereo hátölurum, þar á meðal sérstökum hátalara við aukaskjáinn á bakhliðinni með snjallri hljóðstýringu. Hljóðkerfið styður Dolby Atmos og er vottað fyrir bæði Hi-Res Audio og Hi-Res Audio Wireless. Fjórir innbyggðir hljóðnemar (4-Mic array) nema rödd og umhverfishljóð skýrt í símtölum og við myndbandsupptökur.
Á hlið símans er sérstillanlegur AI hnappur þar sem stutt ýting opnar samtalsþýðingu (AI Translate Conversation) og 0,5 sekúndna löng ýting ræsir raddglósur (AI Voice Note). Í stýrikerfinu er Xiaomi HyperAI með verkfærum fyrir textaskrif (AI Writing), talgreiningu (AI Speech Recognition), túlkun (AI Interpreter) og myndvinnslu, ásamt innbyggðum stuðningi við Google Gemini og Circle to Search með Google.
Xiaomi 3D IceLoop kælikerfið er með 5.513 mm² kæliflöt og sérhannaða koparbyggingu sem dreifir varma hratt frá örgjörvanum. Kælingin heldur hitastigi símans stöðugu þegar spilaðir eru kröfuharðir leikir eða tekin upp myndbönd í hárri upplausn.
Ultrasonic fingrafaraskanni í skjá og AI andlitsgreining aflæsa símanum hratt og örugglega. Síminn keyrir á Android með Xiaomi HyperOS 4 viðmóti og er smíðaður með rúnnuðum álramma (Golden Arc hönnun) sem liggur vel í hendi.
Í kassanum fylgir:
Í kassanum fylgir:
Nánari upplýsingar
Algengar spurningar