289.990 kr.
Xiaomi 18 Pro Max 5G er snjallsími með Leica Summilux myndavélakerfi, tveimur skjáum og Snapdragon 8 Elite Extreme Gen 6 örgjörva. Síminn er með 12GB vinnsluminni, 512GB geymsluplássi og 7.050 mAh rafhlöðu sem styður 100W hraðhleðslu. Hann hentar vel í krefjandi ljósmyndun, myndbandstöku í allt að 8K og daglega notkun þar sem hraði og langur rafhlöðutími skipta máli.
Upplýsingar
Xiaomi 18 Pro Max er með 6,9″ Xiaomi Privacy skjá (M11 skjáeiningu) með 2.624 x 1.208 upplausn (419 PPI) og 1–120Hz LTPO endurnýjunartíðni. Hámarksbirtustig nær allt að 4.000 nits svo það sést vel á skjáinn úti í dagsbirtu. Skjárinn styður 12-bita litadýpt, HDR10+, Dolby Vision, DC dimming og Wet touch tækni. Hann er varinn með Xiaomi Shield Glass 3.0 og hefur TÜV Rheinland vottanir, meðal annars fyrir persónuvernd á skjá og minnkaða bláa birtu.
Síminn er knúinn af átta kjarna Snapdragon 8 Elite Extreme Gen 6 (2nm) 5G örgjörva með klukkuhraða allt að 5GHz, Adreno skjástýringu og Qualcomm AI Engine. 2nm framleiðsluferlið skilar hraðri vinnslu í leikjum, myndbandstöku og gervigreindarverkefnum ásamt góðri orkunýtingu. Xiaomi 3D IceLoop kælikerfið dreifir varma jafnt og heldur hitastigi stöðugu undir álagi.
Með 12GB LPDDR5X vinnsluminni og 512GB UFS 4.1 geymsluplássi er síminn snöggur að opna og skipta á milli forrita. Hraðvirkt geymsluplássið nýtist vel þegar unnið er með stór skjöl, leiki, 200MP ljósmyndir og 8K myndbönd.
Leica Vario-Summilux myndavélakerfi með þremur linsum á bakhlið og 50MP selfie myndavél:
OIS tækni hjálpar til við að minnka titring og truflun í myndatöku. Kerfið býður upp á allt að 120x stafrænan aðdrátt, tvö Leica litasnið (Authentic og Vibrant) og myndbandsupptöku í allt að 8K (30fps) eða 4K (120fps) með Dolby Vision.
Xiaomi 18 Pro Max er með 7.050 mAh rafhlöðu sem styður bæði hraðhleðslu með snúru og þráðlausa hleðslu:
Einnig er stuðningur við algenga hleðslustaðla á borð við PD 3.0 og QC 3+.
Hægt er að hafa tvö SIM-kort í símanum í einu. Síminn styður Wi-Fi 7 (2,4GHz, 5GHz og 6GHz), Wi-Fi Direct, Miracast og Bluetooth 6.0 með Dual-Bluetooth ásamt hljóðkódekum á borð við AAC, AptX Adaptive, LDAC og LHDC 5.0. Hann er með NFC fyrir snertilausar greiðslur, IR blaster fjarstýringu og nákvæma staðsetningartækni (GPS L1+L5, Galileo, GLONASS, QZSS og NavIC).
IP68 ryk- og vatnsvörn gerir símann betur í stakk búinn fyrir daglega notkun og óvæntar aðstæður. Vottunin þýðir að síminn er rykþéttur og vatnsvarinn, en hann hefur verið prófaður í ferskvatni á allt að 6 metra dýpi í allt að 30 mínútur samkvæmt IEC 60529 staðli. Hann þolir því betur rigningu, skvettur og ryk í daglegu amstri. Sjá nánari upplýsingar um IP vottun
Á bakhlið símans er 2,9″ AMOLED aukaskjár með 976 x 596 upplausn (400 PPI), 1–120Hz endurnýjunartíðni og allt að 4.000 nits hámarksbirtustigi. Bakskjárinn er varinn með Corning Gorilla Glass Victus 2 og nýtist meðal annars sem forskoðunarskjár (Back Display Preview) við myndatöku með Leica myndavélunum á bakhlið.
Síminn er búinn þremur stereo hátölurum og fjórum innbyggðum hljóðnemum (4-Mic array). Hljóðkerfið styður Dolby Atmos og er vottað fyrir Hi-Res Audio og Hi-Res Audio Wireless.
Xiaomi HyperOS 4 stýrikerfið inniheldur Xiaomi HyperAI verkfæri á borð við AI Writing fyrir textavinnslu, AI Speech Recognition fyrir tal-í-texta og AI Interpreter fyrir þýðingar í rauntíma. Einnig fylgja Google Gemini og Circle to Search með Google, auk þess sem sérstakur AI-hnappur á hlið símans veitir flýtivirkni með stuttu eða löngu ýti (0,5 sek.).
Síminn er með ultrasonic fingrafaraskanna í skjá og AI andlitsopnun til að aflæsa tækinu.
Í kassanum fylgir:
Í kassanum fylgir:
Nánari upplýsingar
Algengar spurningar