Xiaomi Electric Scooter 4 Ultra rafmagnshlaupahjól

119.990 kr.

  • 120 kg burðargeta
  • Hármarkshraði 25 km/klst
  • Allt að 70 km drægni
  • 500W (940w hámarksafköst) mótor, kemst upp allt að 25° halla
  • 24.5kg að þyngd og samanbrjótanlegt
  • IP55 vatnsvarið
  • E-ABS og trommubremsukerfi
  • Fjöðrun á fram- og afturdekki
  • 4 hraðastillingar
  • Kemur á 10″ DuraGel sjálfþéttandi slöngulausum dekkjum

Ekki til á lager

Fá tölvupóst þegar vara kemur á lager

Vörunúmer: 37829 Categories , ,

Electric Scooter 4 Ultra rafmagnshlaupahjól

Meiri kraftur | Meiri drægni | Meiri dempun | Meiri skemmtun

Dempun að framan og aftan

940W
Hámarksafköst mótors
70km
Löng drægni
DuraGel dekk
10″ sjálfþéttandi
slöngulaus dekk
IP55
Ryk- og vatnsvarið

Rafmagnshjól með dempun að framan og aftan

Xiaomi Electric Scooter 4 Ultra er með tvöföldu fjöðrunarkerfi sem minnkar til muna hristing og stuð og gerir ferðalagið þeim mun ánægjulegra.

Sjálfþéttandi 10″ slöngulaus dekk

Scooter 4 Ultra kemur með Xiaomi DuraGel dekkjum. DuraGel dekkin eru einstök á þann hátt að þau eru sjálfþéttandi sem minnkar hættu á að dekkið springi eða verði loftlaust. Eftir að hlutir undir 3.5mm í þvermáli festast í dekkinu og eru svo fjarlægðir þéttist dekkið sjálfkrafa með gellíku efni sem að tryggir lengri og áhyggjulausari endingu á dekkjunum.

Kröftugri mótor með meiri hröðun

Scooter 4 Ultra er með kröftugum burstalausum mótor með hámarksafköst í 940W. Mótorinn veitir kröftuga hröðun og er einungis 4 sekúndur að komast í 25 km/klst.

940w

Hámarksafköst*

25%

Klifurgeta

25

km/klst hraði

*Í viðvarandi keyrslu er mótorinn 500W, en við hámarksafköst er mótorinn 940W

Löng drægni og hröð hleðsla

Scooter 4 Ultra er með stórri lithium rafhlöðu sem skilar jöfnum krafti í mótorinn með einstaklegra langri drægni allt að 70km á einni hleðslu. Full hleðsla tekur einungis 6.5 klukkustundir.

Fleiri stillingar á hraða

Á Scooter 4 Ultra er komin ný hraðastilling sem að veitir mestu hröðunina. Í S+ stillingunni fer hjólið úr 0-25 km/klst á einungis 4 sekúndum.

S+

5-25 km/klst

Sport

5-25 km/klst

Drive

5-20 km/klst

Walk

5-6 km/klst

Stærra og meira rafmagnshlaupahjól

Scooter 4 Ultra er með stærri stigbretti og víðara og hærra stýri fyrir aukin þægindi og öryggi.

Uppfært og sterkbyggðara stell með aukinni burðargetu að 120kg

Rafmagnshlaupahjólið er úr sterkbyggðri álblöndu og hjólið er framleitt undir ýtrustu gæðakröfum. Ramminn er einstaklega endingargóður og getur staðið undir miklu álagi og 120kg burðargetu.

Vatns- og rykvarið

Scooter 4 Ultra er með IP55 vatns- og rykvörn sem þýðir að hjólið er betur í stakk búið í íslenska veðrið. IP55 veitir vörn gegn vatni úr öllum áttum en ekki að fara á kaf í vatn eða vera í vatni til lengri tíma. Það er því mælt með því að fara varlega í kringum polla og þegar rigning er úti.

Snjallari ferðalög

Skoðaðu upplýsingar um ferðirnar þínar, hversu marga kílómetra hjólið kemst áður en það verður batteríslaust og villumeldingar í Xiaomi Home appinu.

Ferðalög

Drægni eftir

Villumeldingar

Öryggi í öllum birtustigum

Þegar kveikt er á hjólinu er hægt að ýta einu sinni á Power takkann til þess að kveikja á framljósinu. Í Xiaomi Home appinu er einnig hægt að láta bremsuljósið ljósa liðlangann daginn fyrir aukið öryggi á kvöldin og þegar dimmt er úti.