84.990 kr.
Þessi vara er á leiðinni og er væntanleg 14. janúar 2027
Skráðu þig á biðlistann hér að neðan til að fá tölvupóst þegar varan kemur aftur á lager.
Xiaomi Electric Scooter 6 rafmagnshlaupahjól er með drægni allt að 45 km, 25 km/klst. hámarkshraða og mótor sem skilar mest 800 W. Það er á 12″ slöngulausum dekkjum, með fjöðrun að framan og aftan og ber 120 kg.
Upplýsingar
Drægnin er allt að 45 km á fullri hleðslu miðað við jafnan 15 km/klst. hraða á sléttu malbiki, 75 kg á hjólinu og um 25 °C hita. Á meiri hraða, í brekkum, kulda og mótvindi verður drægnin styttri.
Þrjár stillingar eru á hjólinu: stilling fyrir gönguhraða með 6 km/klst., venjuleg stilling með 15 km/klst. og Sport með 25 km/klst. Skipt er á milli þeirra eftir því hvar ekið er og hve vanur ökumaðurinn er.
Mótorinn er með 400 W stöðugt afl og fer mest í 800 W þegar á reynir, til dæmis í brekkum. Hjólið ræður við allt að 18% halla miðað við 75 kg á hjólinu.
Grindin er úr sterku stáli og hjólið ber allt að 120 kg. Aftast á pallinum er upphækkun sem styður við aftari fótinn og gefur betra jafnvægi þegar gefið er í eða bremsað. Hjólið er ætlað ökumönnum sem eru 140–200 cm á hæð.
Dekkin eru 12″ og slöngulaus. Stór dekk rúlla betur yfir hraðahindranir og möl. Að framan er fjöðrun með tveimur gormum sem gefa eftir um 3 cm og að aftan er einn gormur, svo höggin skila sér síður upp í fætur og hendur.
Á framhjólinu er lokuð bremsa með tromlu sem þolir vel bleytu og óhreinindi. Á afturhjólinu er rafræn E-ABS bremsa í mótornum. Þær vinna saman þegar tekið er í bremsuna.
Rafhlaðan er 360 Wh (10 Ah) og full hleðsla tekur um 8 klst., svo þægilegast er að hlaða yfir nótt. Rafhlaðan er með sex þátta vörn (BMS), meðal annars gegn of mikilli hleðslu, ofhitnun og skammhlaupi.
Hjólið vegur um 26,3 kg. Stöngin með stýrinu er losuð með handfangi, lögð niður og krækt föst. Samanbrotið er hjólið 61,9 cm á hæð.
Framljósið er 2,5 W og lýsir um 15 m fram fyrir hjólið og afturljósið blikkar þegar bremsað er. Hraðinn sést á skjá hjólsins. Í Xiaomi Home appinu má sjá drægni sem eftir er, læsa mótornum og skoða yfirlit yfir ferðir.
Hjólið er með IPX5 vatnsvörn og rafhlaðan sjálf er með IPX6 eða betra. Sjá nánar um IP-vottun
Útbreitt er hjólið 127,4 × 59,5 × 129,2 cm (lengd × breidd × hæð). Samanbrotið er það 127,4 × 59,5 × 61,9 cm. Þyngdin er um 26,3 kg.
Í kassanum fylgir:
Í kassanum fylgir:
Nánari upplýsingar
Algengar spurningar