Xiaomi Mesh AX3000 NE netbeinir – 1 pack

Xiaomi Mesh AX3000 NE netbeinir – 1 pack

12.989 kr.

Xiaomi Mesh AX3000 NE netbeinir – 1 pack er Wi-Fi 6 Mesh kerfi með allt að 3.000 Mbps þráðlausum hraða sem dreifir netinu um allt heimilið undir einu nafni. Í pakkanum er einn netbeinir með fjórum gígabita nettengjum.

– Wi-Fi 6 með allt að 3.000 Mbps
– Mesh net um allt heimilið
– Eitt nafn á netinu og síminn skiptir sjálfur
– Fjögur gígabita nettengi á hverjum
– Kerfi með fleiri netbeinum ræður við allt að 250 tæki
– Tengst með því að leggja símann að
– Stjórnað í Xiaomi Home appinu
– 9 × 9 × 21,4 cm

Uppselt

Fá tölvupóst þegar vara kemur á lager

Vörunúmer: 56994
Strikamerki: 6941948703094

Upplýsingar

Wi-Fi 6 með allt að 3.000 Mbps

Netbeinirinn sendir á 2,4 GHz (574 Mbps) og 5 GHz (2.402 Mbps) með 160 MHz bandvídd. 2,4 GHz sviðið nær betur í gegnum veggi og 5 GHz sviðið er hraðara, og tækin velja sjálf. Það nægir fyrir streymi, leiki og fjarfundi á mörgum tækjum í einu.

Mesh net um allt heimilið

Í pakkanum er einn netbeinir. Hann má nota einan eða bæta honum við Xiaomi Mesh kerfi sem fyrir er. Þannig hverfa dauðir blettir í stórum íbúðum og húsum á fleiri hæðum.

Eitt nafn á netinu og síminn skiptir sjálfur

Allir netbeinarnir mynda eitt net með einu nafni. Þegar gengið er á milli herbergja eða hæða færist síminn sjálfkrafa yfir á þann sem gefur besta sambandið, án þess að sambandið slitni. Ef einn dettur út lagar kerfið sig sjálft að því. Hægt er að tengja saman allt að tíu netbeina.

Fjögur gígabita nettengi á hverjum

Hver netbeinir er með fjögur 1.000 Mbps nettengi sem skynja sjálf hvort þau eru notuð fyrir netið inn eða fyrir tæki. Þar má tengja sjónvarp, leikjatölvu eða borðtölvu með snúru, og netbeinana má líka tengja saman með snúru.

Kerfi með fleiri netbeinum ræður við allt að 250 tæki

Netbeinirinn er með 256 MB minni. Kerfi með tveimur eða þremur netbeinum ræður við allt að 250 tengd tæki, svo snjalltæki heimilisins, símar og tölvur komast öll fyrir án þess að hægist á netinu.

Tengst með því að leggja símann að

Með innbyggðu NFC er nóg að leggja Android síma með NFC að netbeininum til að tengjast, án þess að slá inn lykilorð. Þegar lykilorði netsins er breytt uppfærist það sjálfkrafa í þeim Xiaomi snjalltækjum heimilisins sem styðja það.

Stjórnað í Xiaomi Home appinu

Í Xiaomi Home appinu sést staða netsins og hvaða tæki eru tengd, og þar er netinu stjórnað hvar sem þú ert. Netið styður WPA3 dulkóðun.

9 × 9 × 21,4 cm

Hver netbeinir er 8,95 × 8,95 × 21,35 cm, hvítur og stendur uppréttur. Hann vinnur við 0 til 40 °C.

Í kassanum fylgir:

Í kassanum fylgir:

  • 1 netbeinir
  • 1 straumbreytir
  • Netsnúra
  • Notendahandbók
  • Upplýsingar um ábyrgð
  • 1 netbeinir
  • 1 straumbreytir
  • Netsnúra
  • Notendahandbók
  • Upplýsingar um ábyrgð

Nánari upplýsingar

Algengar spurningar

AX3000 NE netbeinir með möskvakerfi

Gott netsamband á öllu heimilinu

Xiaomi Mesh System AX3000 NE netbeinir með möskvakerfi

Öflugt möskvakerfi fyrir frábært netsamband

Xiaomi AX3000 NE netbeinirinn er með innbyggt svokallað möskvakerfi, það þýðir að hægt er að vera með fleiri en einn turn sem að talar saumlaust við aðra turna á svæðinu. Turnarnir gefa frá sér netsamband eins og við þekkjum frá hefðbundnum netbeinum en sérstaða þeirra liggur í því að hægt er að stækka netsvæðið töluvert meira heldur en með einum netbeini. Möskvakerfið vinnur saman til þess að tækin sem tengd eru við það séu alltaf með sem mesta hraðann og besta sambandið. T.d er hægt að vera með einn turn í forstofunni og annann í hinum enda hússins og jafnvel annann turn í kjallaranum, möskvakerfið reiknar svo sjálfkrafa út hvernig besta netsambandið fæst án þess að maður finni fyrir því. Þannig er hægt að vera að nýta netsamband frá öllum turnunum í einu svo að sama hvar maður er á heimilinu er alltaf góð tenging.

*Hægt er að hafa allt að 10 turna samtengda

Netsamband í öllum krókum og kimum

Þegar keyptur er pakki með 2 eða 3 turnum þá eru þeir fortengdir saman í verksmiðju til þess að auðvelda uppsetningu þegar heim er komið. Notandi velur „aðal“ netbeini, klárar uppsetningu á honum eins og við venjulegan netbeini, því næst þarf einfaldlega að kveikja á hinum turnunum til þess að þeir samtengist og myndi möskvakerfi. Með fleiri turnum er svo hægt að fá ennþá betri dreifingu netsambandsins þangað til ekkert svæði heimilisins er án netsambands.

Xiaomi Mesh System AX3000 NE netbeinir með möskvakerfi

Margir/þykkir veggir

1 aðal netbeinir + 1 aukaturn

Xiaomi Mesh System AX3000 NE netbeinir með möskvakerfi

Rúmgóð íbúð (3-4 herbergi), allt að 100-150fm*

1 aðal netbeinir + 1 aukaturn

Xiaomi Mesh System AX3000 NE netbeinir með möskvakerfi

Pallíbúð (3-6 herbergi), allt að 200fm*

1 aðal netbeinir + 2 aukaturnar

Xiaomi Mesh System AX3000 NE netbeinir með möskvakerfi

Hús á nokkrum hæðum

1 aðal netbeinir + 3 aukaturnar

*með 3 turnum er hægt að fá dreifingu yfir allt að 600fm í beinni línu, þykkir veggir, truflanir frá raftækjum/vírum og aðrir aðskotahlutir draga úr dreifigetu

*Fermetratala er gróflega metin útfrá áætlaðri uppsetningu íbúða, þykkt veggja o.s.frv.

Sjálfaðlagandi gígabit ethernet tengi

Fjögur fullhraða netsnúrutengi með LAN port aggregation og WAN/LAN skynjun skilar áreiðanlegri tengingu til tækja.

*Aðal netbeinir þarf að nýta eitt tengið fyrir inntak frá ljósleiðara

Xiaomi Mesh System AX3000 NE netbeinir með möskvakerfi
Xiaomi Mesh System AX3000 NE netbeinir með möskvakerfi

Auðveld uppsetning í gegnum Xiaomi Home appið

Uppsetning netbeinisins er einstaklega þægileg, en með Xiaomi Home appinu er leikur einn að koma tækjunum í gang og byrja að njóta betra netsambands.

*Sum símfyrirtæki þurfa að opna fyrir tengingu á nýjum netbeinum, þá þarf að hafa samband við sitt fyrirtæki, lesa upp MAC tölu aðal netbeinisins (límmiði á undirhlið) og biðja þau um að opna fyrir tenginguna

Pikkaðu símanum í tækið til að tengjast með NFC

Með innbyggðri NFC flögu hefur aldrei verið auðveldara að tengjast við netbeininn. Pikkaðu símanum einfaldlega við netbeininn og hann tengir símann við netið, án þess að þurfa að slá inn lykilorð.

Xiaomi Mesh System AX3000 NE netbeinir með möskvakerfi

*Virkar bara á aflæstum Android tækjum sem eru með NFC flögu

Fleiri sniðugir eiginleikar

Xiaomi Mesh System AX3000 NE netbeinir með möskvakerfi

OFDMA

Fjöldi tækja tengd samtímis

Xiaomi Mesh System AX3000 NE netbeinir með möskvakerfi

Beamforming

Hnitmiðuð tenging og stærri dreifisvæði

Xiaomi Mesh System AX3000 NE netbeinir með möskvakerfi

BSS colouring

Minnkar truflanir frá öðrum tengingum

Xiaomi Mesh System AX3000 NE netbeinir með möskvakerfi

DualBand snjall aðlögun

Skiptir á milli 2.4GHz og 5GHz eftir því hvort hentar betur

Xiaomi Mesh System AX3000 NE netbeinir með möskvakerfi

WPA3

Dulkóðun fyrir aukið netöryggi

Xiaomi Mesh System AX3000 NE netbeinir með möskvakerfi

IPv6

Aukið áframkast og öryggi

Tengdar vörur