Mijia er heimilislína Xiaomi. „Mi“ stendur fyrir Xiaomi og „jia“ fyrir heimili. Mijia þýðir því í raun „Xiaomi-heimilið“. Undir þessu merki hannar Xiaomi sniðug og stílhrein heimilistæki sem einfalda daglegt líf.
10.990 kr.
Mijia Rotary Tool Kit fræsari er grannur fræsari, í laginu eins og penni, 2 cm í þvermál, með kolalausum mótor sem snýst allt að 22.000 snúninga á mínútu. Hann gengur á rafhlöðu í allt að 60 mín. eða í sambandi við rafmagn og kemur í öskju með 16 fylgihlutum.
Upplýsingar
Kolalaus mótorinn snýst frá 15.000 upp í um 22.000 snúninga á mínútu án álags. Hraðinn er stilltur með snúningshnappi á endanum og einn hnappur kveikir og slekkur.
Fræsarinn er fyrir fíngerða vinnu: útskurð í tré, slípun á tré, málmi og módelum, borun á litlum götum, til dæmis í hálsmen og pússun á jaði, silfri og smáhlutum.
Skaftið er úr áli, 2 cm í þvermál og gripið er klætt mjúku gúmmíi, svo haldið er á honum eins og penna og auðvelt er að stýra honum nákvæmlega. Skipt er um fylgihlut með því að snúa oddinum, án lykils.
Innbyggð 800 mAh rafhlaða endist í allt að 60 mín. á fullri hleðslu og er hlaðin með USB-C á um 90 mín. Í lengri verkum má hafa fræsarann í sambandi við 5 V / 3 A hleðslutæki og vinna áfram; rafhlaðan hleðst þá ekki fyrr en hætt er að vinna.
Í öskjunni eru 16 fylgihlutir: filtskífa, bor, slípihausar með demanti, slípisteinar, gúmmíhausar og filthausar. Þegar askjan er opnuð lyftist haldarinn upp svo auðvelt er að grípa þann rétta. Askjan er úr ABS plasti.
Fræsarinn er um 18,4 × 2 × 2,06 cm. Þyngdin er um 310 g.
Í kassanum fylgir:
Í kassanum fylgir:
Nánari upplýsingar
Algengar spurningar