39.990 kr.
Xiaomi Mijia Smart Audio gleraugun sameina snjalla tækni og klassíska hönnun. Þau eru Aviator gerð og með opnum hljóðbúnaði, sem gerir þér kleift að hlusta á tónlist, taka símtöl og nota raddstýringu án þess að loka á umhverfið. Einnig er hægt að taka upp samtöl með innbyggðum míkrófónum. Hægt er að skipta um glerið sjálft og setja í t.d sjóngler.
Upplýsingar
Gleraugun tengjast snjalltækjum með Bluetooth 5.4 og styðja tengingu við tvö tæki í einu, sem gerir þægilegt að skipta á milli t.d. síma og fartölvu. Rafhlaðan dugar fyrir allt að 13 klukkustundir af tónlistarspilun eða 9 klukkustundir í símtölum. Full hleðsla tekur um 1 klukkustund og 10 mínútna hleðsla gefur 4 klukkustunda notkun.
Gleraugun eru með fjórum hljóðnemum og snjöllum reikniritum sem draga úr umhverfishljóðum í símtölum, jafnvel í allt að 4.5 m/s vindi. Þetta tryggir skýr símtöl og raddstýringu. Hljóðkerfið er opið, sem þýðir að þú heyrir í umhverfinu þínu á meðan þú hlustar á hljóð.
Hægt er að stjórna gleraugunum með snertiflötum á báðum spöngum. Þú getur svarað símtölum, stjórnað tónlist, stillt hljóðstyrk og virkjað raddstýringu eins og Gemini eða Siri. Gleraugun skynja einnig þegar þau eru tekin af og gera þá hlé á tónlist.
Gleraugun eru með IP54 vottun sem gerir þau ryk- og skvettuvarin, sem þýðir að þau þola léttan raka og ryk. Þetta gerir þau hentug til notkunar utandyra og í ýmsum aðstæðum.
Hægt er að skipta um fremri ramma gleraugnanna, sem gerir þér kleift að breyta um stíl eða setja í sjóngler. Lamirnar hafa verið prófaðar til að þola allt að 2.000 inn- og úrtengingar og 15.000 beygjur.
Gleraugun eru með innbyggðum skynjurum sem greina þegar þau eru tekin af höfðinu og gera þá sjálfkrafa hlé á tónlist. Þegar þau eru sett aftur á, heldur tónlistin áfram, sem eykur þægindi og sparar rafhlöðu.
Gleraugun eru með sérstakri tækni sem minnkar hljóðleka, þar á meðal með öfugum hljóðbylgjum og hljóðeinangrandi himnu. Þetta hjálpar til við að halda hljóðinu fyrir þig og minnkar líkur á að aðrir heyri hvað þú ert að hlusta á.
Gleraugun eru einstaklega létt en raminn sjálfur vegur einungis 27.6gr.
Með því að ýta og halda á hlið gleraugnanna hefst raddupptaka með innbyggðum hljóðnemum, upptakan vistast sjálfkrafa án þess að þurfa að opna og aflæsa símanum þínum. Þegar upptaka er í gangi kviknar ljós svo að öryggi allra sé virt.
Aviator gleraugun eru með HD TAC pólaríseruðum sólglerjum sem að blokka yfir 99.9% af UV ljósi. Þau minnka einnig glampa.
Í Xiaomi Glasses appinu er hægt að skoða raddupptökur, stjórna tengdum tækjum, aðlaga snertistillingar, finna gleraugun og margt fleira.
Þegar gleraugun eru tengd við Android síma er hægt að tengja þau hratt og örugglega með Google Fast Pair. Gleraugun tengjast við Android tæki með Android 10.0 eða nýrra og iOS tæki með iOS 14 og nýrra.
Í kassanum fylgir:
Í kassanum fylgir:
Nánari upplýsingar
Algengar spurningar




