Xiaomi Mijia Smart Audio snjall gleraugu – Browline

Xiaomi Mijia Smart Audio snjall gleraugu – Browline

39.990 kr.

Xiaomi Mijia Smart Audio gleraugun sameina snjalla tækni og klassíska hönnun. Þau eru Browline gerð og með opnum hljóðbúnaði, sem gerir þér kleift að hlusta á tónlist, taka símtöl og nota raddstýringu án þess að loka á umhverfið. Einnig er hægt að taka upp samtöl með innbyggðum míkrófónum. Hægt er að skipta um glerið sjálft og setja í t.d sjóngler.

– Bluetooth 5.4, 13 klst. hlustun
– 4 hljóðnemar, AI hávaðaminnkun
– Snerti- og raddstýring
– IP54 ryk- og skvettuvarin
– Skiptanlegir rammar og sjóngler
– Sjálfvirk pása á tónlist
– Minnkar hljóðleka og eykur næði
– 27.6gr þyngd
– Tekur upp samtöl
– Bláljósasía
– Xiaomi Glasses appið
– Google Fast Pair

Á lager

Vörunúmer: 73607
Strikamerki: 6932554487126

Upplýsingar

Bluetooth 5.4, 13 klst. hlustun

Gleraugun tengjast snjalltækjum með Bluetooth 5.4 og styðja tengingu við tvö tæki í einu, sem gerir þægilegt að skipta á milli t.d. síma og fartölvu. Rafhlaðan dugar fyrir allt að 13 klukkustundir af tónlistarspilun eða 9 klukkustundir í símtölum. Full hleðsla tekur um 1 klukkustund og 10 mínútna hleðsla gefur 4 klukkustunda notkun.

4 hljóðnemar, AI hávaðaminnkun

Gleraugun eru með fjórum hljóðnemum og snjöllum reikniritum sem draga úr umhverfishljóðum í símtölum, jafnvel í allt að 4.5 m/s vindi. Þetta tryggir skýr símtöl og raddstýringu. Hljóðkerfið er opið, sem þýðir að þú heyrir í umhverfinu þínu á meðan þú hlustar á hljóð.

Snerti- og raddstýring

Hægt er að stjórna gleraugunum með snertiflötum á báðum spöngum. Þú getur svarað símtölum, stjórnað tónlist, stillt hljóðstyrk og virkjað raddstýringu eins og Gemini eða Siri. Gleraugun skynja einnig þegar þau eru tekin af og gera þá hlé á tónlist.

IP54 ryk- og skvettuvarin

Gleraugun eru með IP54 vottun sem gerir þau ryk- og skvettuvarin, sem þýðir að þau þola léttan raka og ryk. Þetta gerir þau hentug til notkunar utandyra og í ýmsum aðstæðum.

Skiptanlegir rammar og sjóngler

Hægt er að skipta um fremri ramma gleraugnanna, sem gerir þér kleift að breyta um stíl eða setja í sjóngler. Lamirnar hafa verið prófaðar til að þola allt að 2.000 inn- og úrtengingar og 15.000 beygjur.

Sjálfvirk pása á tónlist

Gleraugun eru með innbyggðum skynjurum sem greina þegar þau eru tekin af höfðinu og gera þá sjálfkrafa hlé á tónlist. Þegar þau eru sett aftur á, heldur tónlistin áfram, sem eykur þægindi og sparar rafhlöðu.

Minnkar hljóðleka og eykur næði

Gleraugun eru með sérstakri tækni sem minnkar hljóðleka, þar á meðal með öfugum hljóðbylgjum og hljóðeinangrandi himnu. Þetta hjálpar til við að halda hljóðinu fyrir þig og minnkar líkur á að aðrir heyri hvað þú ert að hlusta á.

27.6gr þyngd

Gleraugun eru einstaklega létt en raminn sjálfur vegur einungis 27.6gr.

Tekur upp samtöl

Með því að ýta og halda á hlið gleraugnanna hefst raddupptaka með innbyggðum hljóðnemum, upptakan vistast sjálfkrafa án þess að þurfa að opna og aflæsa símanum þínum. Þegar upptaka er í gangi kviknar ljós svo að öryggi allra sé virt.

Bláljósasía

Browline gleraugun eru með bláljósasíu sem sía út 25% af bláljósum sem getur dregið úr þreytu í augum við lengri tölvusetur, sjónvarpsgláp og vinnu.

Xiaomi Glasses appið

Í Xiaomi Glasses appinu er hægt að skoða raddupptökur, stjórna tengdum tækjum, aðlaga snertistillingar, finna gleraugun og margt fleira.

Google Fast Pair

Þegar gleraugun eru tengd við Android síma er hægt að tengja þau hratt og örugglega með Google Fast Pair. Gleraugun tengjast við Android tæki með Android 10.0 eða nýrra og iOS tæki með iOS 14 og nýrra.

Í kassanum fylgir:

Í kassanum fylgir:

  • Xiaomi Mijia Smart Audio gleraugu (Browline)
  • Segulhleðslusnúra
  • Leiðbeiningabæklingur
  • Xiaomi Mijia Smart Audio gleraugu (Browline)
  • Segulhleðslusnúra
  • Leiðbeiningabæklingur

Nánari upplýsingar

Algengar spurningar

Tengdar vörur