Mijia Smart Standing Fan Pro Slim vifta

Mijia er heimilislína Xiaomi. „Mi“ stendur fyrir Xiaomi og „jia“ fyrir heimili. Mijia þýðir því í raun „Xiaomi-heimilið“. Undir þessu merki hannar Xiaomi sniðug og stílhrein heimilistæki sem einfalda daglegt líf.

Mijia Smart Standing Fan Pro Slim vifta

29.990 kr.

Frí heimsending um allt land

Mijia Smart Standing Fan Pro Slim vifta stendur á fæti, er með 8,7 cm þykkan haus og blæs allt að 14 metra og flytur allt að 25 rúmmetra af lofti á mínútu. Hún gengur fyrir USB-C, líka af hleðslubanka og henni fylgja Bluetooth-fjarstýring og geymslukassi.

– Blæs allt að 14 metra
– Hljóðlátur jafnstraumsmótor og 100 hraðastig
– Snýst 90° til hliðanna
– Átta gerðir af náttúrulegum vindi
– 26,8 dB á lægsta hraða
– Bluetooth-fjarstýring sem festist með segli
– Gengur fyrir USB-C og af hleðslubanka
– Notar niður í 1,9 W
– 8,7 cm þykkur haus, á gólfi eða borði
– Geymslukassi fylgir
– Hlíf sem er tekin af og barnalæsing
– 31 × 33,7 cm og 100 cm á hæð, 3,3 kg

Á lager

Vörunúmer: 73468
Strikamerki: 6932554486136

Upplýsingar

Blæs allt að 14 metra

Sjö spaðar skila stöðugum blæstri, allt að 25 rúmmetrum af lofti á mínútu og blásturinn nær allt að 14 metra. Viftan kemur loftinu á hreyfingu í öllu herberginu og dreifir svölu lofti jafnt.

Hljóðlátur jafnstraumsmótor og 100 hraðastig

Jafnstraumsmótorinn gengur mjúkt og stöðugt. Á viftunni sjálfri eru fjögur hraðastig og í Xiaomi Home appinu er hægt að velja á milli 100 stiga, svo blásturinn verður nákvæmlega eins og óskað er.

Snýst 90° til hliðanna

Viftan snýst 90° frá vinstri til hægri og dreifir blæstrinum um herbergið í stað þess að blása á einn stað.

Átta gerðir af náttúrulegum vindi

Viftan líkir eftir golu utandyra með breytilegum hraða. Í Xiaomi Home appinu er valið á milli átta gerða, til dæmis við vatn, á tjaldsvæði, á fjallstindi og á strönd og þar er líka hægt að búa til sína eigin.

26,8 dB á lægsta hraða

Á lægstu stillingu og án snúnings er hljóðið 26,8 dB(A), svo viftan getur gengið í svefnherbergi yfir nóttina án þess að trufla. Á mesta hraða er hljóðið allt að 63 dB(A).

Bluetooth-fjarstýring sem festist með segli

Með viftunni fylgir Bluetooth-fjarstýring sem dregur allt að 30 metra á opnu svæði og festist á viftuna með segli þegar hún er ekki í notkun. Á viftunni sjálfri eru snertihnappar.

Gengur fyrir USB-C og af hleðslubanka

Viftan fær rafmagn um USB-C, annaðhvort frá 18 W straumbreytinum sem fylgir eða frá hleðslubanka þar sem engin innstunga er. Með 10.000 mAh hleðslubanka gengur hún í allt að 22 klst. á lægsta hraða án snúnings, til dæmis á pallinum eða í útilegu. Hleðslubankinn þarf að styðja hraðhleðslu og skila minnst 18 W.

Notar niður í 1,9 W

Á lægsta hraða án snúnings notar viftan 1,9 W. Það gerir um 1,4 kWh yfir heilt sumar miðað við 8 klst. á dag í 90 daga.

8,7 cm þykkur haus, á gólfi eða borði

Hausinn er 8,7 cm þykkur og fóturinn er úr 0,3 cm þykkum málmi sem heldur viftunni stöðugri. Hæðin er stillanleg, svo viftan stendur ýmist á gólfi eða á borði.

Geymslukassi fylgir

Viftan er tekin í sundur í fáum skrefum og fer í sterkan geymslukassa sem fylgir. Hún tekur þá lítið pláss yfir veturinn og kemst í skottið á bílnum.

Hlíf sem er tekin af og barnalæsing

Hlífin er tekin af, sem auðveldar að taka viftuna í sundur og setja hana saman. Barnalæsing kemur í veg fyrir að börn breyti stillingum.

31 × 33,7 cm og 100 cm á hæð, 3,3 kg

Viftan er 31 × 33,7 × 100 cm og vegur 3,3 kg. Aflið er 15 W.

Í kassanum fylgir:

Í kassanum fylgir:

  • Haus viftunnar
  • Efri stöng
  • Neðri stöng
  • Fótur
  • Straumbreytir
  • Tengistykki fyrir fót
  • Sexkantur
  • Fjarstýring (rafhlaða fylgir ekki)
  • Bolti
  • Geymslukassi
  • Notendahandbók
  • Leiðbeiningar um geymslu
  • Haus viftunnar
  • Efri stöng
  • Neðri stöng
  • Fótur
  • Straumbreytir
  • Tengistykki fyrir fót
  • Sexkantur
  • Fjarstýring (rafhlaða fylgir ekki)
  • Bolti
  • Geymslukassi
  • Notendahandbók
  • Leiðbeiningar um geymslu

Nánari upplýsingar

Algengar spurningar

Tengdar vörur