18.990 kr.
Xiaomi Smart Desktop Air Circulation Fan borðvifta er 2 kg vifta með handfangi sem flytur allt að 1.180 rúmmetra af lofti á klukkustund og blæs allt að 10 metra. Hún snýst til hliðanna og upp og niður, gengur fyrir USB-C og má tengja við hleðslubanka.
Upplýsingar
Viftan flytur allt að 1.180 rúmmetra af lofti á klukkustund og blásturinn nær allt að 10 metra. Í 20 fermetra herbergi með 2,8 m lofthæð fer allt loftið einu sinni í gegn á um þremur mínútum.
Jafnstraumsmótorinn gengur mjúkt og stöðugt. Í Xiaomi Home appinu er valið á milli 100 hraðastiga, svo blásturinn verður nákvæmlega eins og óskað er.
Viftan snýst sjálf 120° til hliðanna og 100° upp og niður, svo svalt loft nær í hvert horn herbergisins.
Með ofni dreifir viftan hitanum jafnt, með rakatæki rakanum og með loftkælingu eykur hún kælinguna. Ef henni er beint að opnum glugga eða dyrum flýtir hún loftskiptum á milli herbergja og út.
Á lægsta stigi í beinni stillingu er hljóðið 28,4 dB(A), svo viftan getur staðið á náttborði yfir nóttina. Á mesta hraða er hljóðið allt að 60 dB(A).
Viftan fær rafmagn um USB-C, frá 18 W straumbreytinum sem fylgir eða frá hleðslubanka. Með 10.000 mAh hleðslubanka gengur hún í allt að 26 klst. á lægsta stigi án snúnings, til dæmis á pallinum eða í útilegu. Hleðslubankinn þarf að styðja hraðhleðslu og skila minnst 18 W.
Á lægsta stigi án snúnings notar viftan 1,75 W. Það gerir um 1,3 kWh yfir heilt sumar miðað við 8 klst. á dag í 90 daga.
Viftan tekur álíka pláss og hálft A4-blað og er með handfang að aftan, svo auðvelt er að taka hana með sér á milli herbergja eða út.
Viftan er 32,4 × 20 × 33,4 cm og vegur 2 kg. Aflið er 18 W og snúran er 1,8 m.
Í kassanum fylgir:
Í kassanum fylgir:
Nánari upplýsingar
Algengar spurningar