Xiaomi Robot Vacuum 6 Max ryksuguvélmenni m. sjálftæmingarstöð

Frí heimsending um allt land

Xiaomi Robot Vacuum 6 Max ryksuguvélmenni m. sjálftæmingarstöð

219.990 kr.

Xiaomi Robot Vacuum 6 Max er snjallt ryksuguvélmenni sem ryksugar og moppar heimilið af mikilli nákvæmni. Með allt að 35.000 Pa sogkrafti og snúningsmoppu kerfi, ásamt sjálftæmingarstöð, tryggir þetta ryksuguvélmenni djúphreinsun á öllum gólfflötum. Háþróað leiðarkerfi og gervigreind tryggja að vélin forðast hindranir og þrífur skilvirkt.

– 35.000 Pa sogkraftur
– 180 mín vinnutími á hleðslu
– Ryksugar og moppar með snúningsmoppu
– Kemst yfir allt að 6 cm þröskulda
– Hæð frá 9.0 cm – 9.3 cm
– 360° LiDAR + þrefalt myndavélakerfi
– Sjálfvirk lyfting á moppu
– Útdraganleg moppupúði
– AI myndavélaeftirlit
– Sjálftæmingarstöð með 2.5 L rykpoka
– Stærð
– Sjálftæmingarstöð
Tækjatrygging er í boði fyrir þessa vöru
Nánar um tækjatrygginguna

Á lager

Vörunúmer: 73480
Strikamerki: 6932554486198

Upplýsingar

35.000 Pa sogkraftur

Ryksuguvélmennið býður upp á allt að 35.000 Pa sogkraft, sem tryggir að það hreinsar á áhrifaríkan hátt ryk, óhreinindi og hár af ýmsum gólfflötum.

180 mín vinnutími á hleðslu

Með 6.400mAh rafhlöðu getur Xiaomi Robot Vacuum 6 Max unnið í allt að 180 mínútur á einni hleðslu. Þetta gerir því kleift að þrífa stór svæði án þess að þurfa að hlaða sig oft.

Ryksugar og moppar með snúningsmoppu

Vélin getur ryksugað, blautmoppað eða gert hvort tveggja samtímis. Snúningsmoppukerfið með 16 vatnsúttökum og stöðugum þrýstingi líkir eftir handmoppun og tryggir djúphreinsun. Hægt er að stilla hversu oft vélin fer í sjálftæmingarstöðina til að þrífa moppurnar í hverri lotu.

Kemst yfir allt að 6 cm þröskulda

Ryksuguvélmennið er útbúið tvöföldum lífhermuðum vélfærafótum sem gera því kleift að klifra yfir þröskulda og teppi sem eru allt að 6 cm háir.

Hæð frá 9.0 cm – 9.3 cm

Með LiDAR skynjaranum uppi er vélin 9.0 cm á hæð en getur fellt skynjarann niður til að komast undir lægri húsgögn, þá er hún 9.3 cm á hæð.

360° LiDAR + þrefalt myndavélakerfi

Vélin notar 360° LiDAR skynjara og þrefalt myndavélakerfi með gervigreind til að kortleggja heimilið nákvæmlega og forðast hindranir. Hún getur greint yfir 300 tegundir af hlutum og rusli, þar á meðal yfir 280 tegundir af hlutum og 47 tegundir af óhreinindum.

Sjálfvirk lyfting á moppu

Þegar ryksuguvélmennið greinir teppi, lyftir það sjálfkrafa moppunum um 10 mm til að koma í veg fyrir að bleyta teppið, og eykur um leið sogkraftinn til að þrífa teppið betur.

Útdraganleg moppupúði

Vélin er með útdraganlegum moppupúða sem nær til að þrífa horn og kanta á áhrifaríkan hátt, ásamt snúningsmoppunni og hliðarburstanum, til að tryggja hámarksþrif á öllum gólfflötum.

AI myndavélaeftirlit

Með innbyggðri háskerpu gervigreindarmyndavél er hægt að fylgjast með heimilinu í rauntíma í gegnum Xiaomi Home appið, sem veitir aukna öryggistilfinningu.

Sjálftæmingarstöð með 2.5 L rykpoka

Sjálftæmingarstöðin sér um að tæma rykhólfið í ryksuguvélmenninu, þvo moppupúðana með allt að 85°C heitu vatni, þurrka þá með 50°C heitu lofti og fylla á hreinan vatnstankinn í vélinni. Rykpoki stöðvarinnar geymir ryk í allt að 75 daga.

Stærð

Ryksuguvélmenni: 35.0 mm (þvermál) x 9.0 cm (hæð)Sjálftæmingarstöð: 47.0 x 36.0 x 58.2 cm (með rampi), 28.9 x 36.0 x 58.2 cm (án ramps)

Sjálftæmingarstöð

Sjálftæmingarstöðin er ekki bara fyrir hleðslu, heldur tæmir hún rykhólfið sjálfkrafa, þvær moppurnar með heitu vatni og þurrkar þær, ásamt því að fylla á hreinan vatnstankinn í ryksuguvélmenninu.

Í kassanum fylgir:

Í kassanum fylgir:

  • Xiaomi Robot Vacuum 6 Max ryksuguvélmenni
  • Sjálftæmingarstöð (Omni Station)
  • Aðalbursti
  • Hliðarbursti
  • Moppupúðar
  • Rykhólf
  • Rykhólf fyrir vélmenni
  • Hreinn vatnstankur
  • Óhreinn vatnstankur
  • Rykpoki
  • Hleðslusnúra
  • Xiaomi Robot Vacuum 6 Max ryksuguvélmenni
  • Sjálftæmingarstöð (Omni Station)
  • Aðalbursti
  • Hliðarbursti
  • Moppupúðar
  • Rykhólf
  • Rykhólf fyrir vélmenni
  • Hreinn vatnstankur
  • Óhreinn vatnstankur
  • Rykpoki
  • Hleðslusnúra

Nánari upplýsingar

Algengar spurningar

Tengdar vörur