27.990 kr.
Xiaomi Smart Camera C701 Pro er öryggismyndavél fyrir heimilið með tveimur linsum og 4K Ultra-HD upplausn. Myndavélin sameinar víðlinsu og aðdráttarlinsu með allt að 9x hybrid aðdrætti, hefur 360° sjónsvið lárétt og styður Wi-Fi 6. Innbyggð gervigreind greinir fólk, gæludýr og barnsgrát, og vélinni er stýrt í Xiaomi Home appinu.
Upplýsingar
Myndavélin er með tvær linsur: 8 MP víðlinsu (2,8 mm) og 5 MP aðdráttarlinsu (8 mm), báðar með f/1.6 ljósopi. Saman skila þær allt að 4K Ultra-HD upplausn (3.840 × 2.160) og allt að 9x hybrid aðdrætti svo smáatriði sjást skýrt bæði nær og fjær.
Víðlinsan hefur 127° sjónsvið sem nær yfir stórt svæði í einu. Með snúningi og halla nær sjónsvið myndavélarinnar 360° lárétt og 180° lóðrétt, svo hægt er að fylgjast með öllu herberginu með einni vél.
Innbyggður 1 TOPS gervigreindarörgjörvi greinir fólk, gæludýr, barnsgrát og óvenjuleg hljóð beint í tækinu. Þegar hreyfing greinist getur myndavélin elt viðfangsefnið sjálfkrafa og notað aðdráttinn til að halda því í mynd, auk þess sem hægt er að skilgreina afmörkuð vöktunarsvæði.
Myndavélin sýnir litmynd í mjög lítilli birtu þökk sé ljósnæmum myndflögum. Í myrkri taka við tíu 940 nm innrauð LED-ljós sem lýsa upp svæðið án sýnilegs rauðs ljóss.
Með innbyggðum hljóðnema og hátalara er hægt að eiga tvíhliða samtöl í gegnum myndavélina. Einnig er hægt að hringja úr myndavélinni með því að sýna linsunni „OK“-merki með hendinni.
Þegar ekki er þörf á vöktun er hægt að láta linsuna fela sig inni í umgjörð myndavélarinnar, annaðhvort í gegnum appið eða handvirkt. MJA1 öryggisflaga sér svo um AES 128-bita dulkóðun á gögnum sem send eru í skýið.
Myndavélin tengist þráðlaust með Wi-Fi 6 á bæði 2,4 GHz og 5 GHz tíðnisviðum og styður einnig Bluetooth 5.4.
Upptökur má vista á microSD-minniskort (16–256 GB, selt sér), á nettengdan gagnageymi (NAS) eða í skýinu. Myndskeið eru þjöppuð með H.265 kóðun.
Myndavélinni er stýrt í Xiaomi Home appinu og hún virkar einnig með Google Assistant og Amazon Alexa. Hægt er að láta hana standa á borði eða festa hana á vegg eða í loft með festingunni sem fylgir, og hún tengist í rafmagn með 2 metra USB-C snúru.
Í kassanum fylgir:
Í kassanum fylgir:
Nánari upplýsingar
Algengar spurningar