Xiaomi Tag staðsetningartæki 4 Pack

Xiaomi Tag staðsetningartæki 4 Pack

11.990 kr.

Frí heimsending ef keypt er fyrir 15.000 kr. eða meira Karfan þín er yfir 15.000 kr. og þú færð fría heimsendingu

Xiaomi Tag staðsetningartæki 4 Pack er pakki með fjórum merkjum sem eru sett á lykla, í veski eða í ferðatösku og sýna staðsetninguna í Apple Find My eða Google Find Hub. Hvert merki vegur 10 g, er með IP67 vörn og gengur fyrir CR2032 rafhlöðu í allt að eitt ár.

– Virkar með Apple Find My eða Google Find Hub
– Finnur lykla, veski og töskur
– Týndur hlutur skilar sér með skilaboðum
– Viðvörun ef ókunnugt merki fylgir þér
– CR2032 rafhlaða sem endist í allt að eitt ár
– IP67 ryk- og vatnsvörn
– 4,65 × 3,1 × 0,72 cm og 10 g

Á lager

Vörunúmer: 72748
Strikamerki: 727486932554480745

Upplýsingar

Virkar með Apple Find My eða Google Find Hub

Merkið er tengt við annað hvort Apple Find My (iPhone og iPad með iOS eða iPadOS 14.5 eða nýrra) eða Google Find Hub (Android 9 eða nýrra). Ekki er hægt að nota bæði kerfin samtímis á sama merki.

Finnur lykla, veski og töskur

Merkið er sett í veskið eða töskuna eða hengt á lyklana. Það sendir dulkóðað Bluetooth merki sem nálæg tæki í sama neti nema og senda staðsetninguna nafnlaust áfram, svo hún sést á korti í appinu. Innbyggður hljóðgjafi pípir þegar leitað er að merkinu í nágrenninu.

Týndur hlutur skilar sér með skilaboðum

Hægt er að merkja hlut sem týndan og skrá símanúmer og skilaboð. Sá sem finnur hlutinn getur þá séð hvernig á að ná í eigandann. Einnig má deila merkinu með fjölskyldu og vinum svo fleiri geti hjálpað til við leitina.

Viðvörun ef ókunnugt merki fylgir þér

Staðsetningin er dulkóðuð svo enginn annar en eigandinn sér hana. Ef ókunnugt merki ferðast með þér í lengri tíma sendir kerfið viðvörun. Í Apple Find My er líka hægt að fá tilkynningu þegar hlutur verður eftir.

CR2032 rafhlaða sem endist í allt að eitt ár

Merkið gengur fyrir venjulegri CR2032 rafhlöðu sem endist í allt að eitt ár, miðað við að leitað sé með hljóði fjórum sinnum á dag. Auðvelt er að skipta um hana og appið lætur vita þegar hún er að tæmast.

IP67 ryk- og vatnsvörn

Merkið er með IP67 ryk- og vatnsvörn. Sjá nánar um IP-vottun

4,65 × 3,1 × 0,72 cm og 10 g

Merkið er 4,65 × 3,1 × 0,72 cm og vegur 10 g. Í pakkanum eru fjögur merki.

Í kassanum fylgir:

Í kassanum fylgir:

  • Xiaomi Tag × 4
  • Leiðbeiningar
  • Xiaomi Tag × 4
  • Leiðbeiningar

Nánari upplýsingar

Algengar spurningar

Tengdar vörur