Xiaomi Water Flosser 2 tannhreinsir

Xiaomi Water Flosser 2 tannhreinsir

Upprunalegt verð var: 8.990 kr.
Núverandi verð er: 8.091 kr.
Þú sparar 899 kr.

Original price was: 8.990 kr..Current price is: 8.091 kr..

Xiaomi Water Flosser 2 tannhreinsir hreinsar milli tanna með vatni sem er sprautað í örum slögum og heldur jöfnum þrýstingi. Hann er með þremur stillingum, tveimur stútum, 200 ml vatnstanki og rafhlöðu sem endist í allt að 90 daga.

– Vatn í örum slögum hreinsar milli tanna
– Jafn þrýstingur hlífir tannholdinu
– Þrjár stillingar: mild, venjuleg og kraftmikil
– Tveir stútar: venjulegur og fyrir spangir
– 200 ml vatnstankur
– Allt að 90 dagar á einni hleðslu
– IPX7 vatnsvörn og slekkur sjálft á sér

Uppselt

Fá tölvupóst þegar vara kemur á lager

Vörunúmer: 61341
Strikamerki: 6932554412937

Upplýsingar

Vatn í örum slögum hreinsar milli tanna

Mótorinn sprautar vatni í örum slögum sem nær inn í bilin milli tanna og skolar burt matarleifar sem tannburstinn nær ekki.

Jafn þrýstingur hlífir tannholdinu

Tækið heldur þrýstingnum á vatninu stöðugum, líka þegar lítið er eftir á rafhlöðunni. Bunan er því nógu kröftug til að hreinsa en ekki svo hvöss að hún erti tannholdið.

Þrjár stillingar: mild, venjuleg og kraftmikil

Mild stilling fyrir byrjendur og viðkvæmt tannhold, venjuleg stilling til að skola eftir máltíðir og kraftmikil stilling fyrir fastar leifar milli tanna.

Tveir stútar: venjulegur og fyrir spangir

Venjulegi stúturinn gefur fína bunu sem hittir nákvæmlega. Hinn stúturinn er fyrir spangir og burstar um leið og hann skolar.

200 ml vatnstankur

Tankurinn tekur 200 ml, nóg fyrir allan munninn í einni umferð. Hann er dreginn af til að þrífa hann og smellt aftur á. Tækið nær vatninu upp þótt því sé hallað og lítið sé eftir í tankinum.

Allt að 90 dagar á einni hleðslu

Rafhlaðan endist í allt að 90 daga á mildu stillingunni miðað við 1 mín. á dag. Full hleðsla tekur um 4 klst.

IPX7 vatnsvörn og slekkur sjálft á sér

Tækið er með IPX7 vatnsvörn og er skolað undir krananum eftir notkun. Það slekkur sjálft á sér eftir 2 mínútur. Sjá nánar um IP-vottun

Í kassanum fylgir:

Í kassanum fylgir:

  • Tannhreinsir
  • Venjulegur stútur
  • Stútur fyrir spangir
  • Hleðslusnúra
  • Hleðslutæki
  • Notendahandbók
  • Tannhreinsir
  • Venjulegur stútur
  • Stútur fyrir spangir
  • Hleðslusnúra
  • Hleðslutæki
  • Notendahandbók

Nánari upplýsingar

Algengar spurningar

Tengdar vörur