Ábyrgðartími hefst frá söludegi og er 2 ár til einstaklinga og 1 ár til fyrirtækja, nema annað sé tilgreint. Ábyrgð vegna galla er í samræmi við lög um neytendakaup (lög nr.48/2003) og lög um lausafjárkaup (lög nr.50/2000).
Framvísa þarf sölureikningi þar sem fram kemur dagsetning kaupa, heiti tækis og raðnúmer (ef við á).
Ef tæki reynist ekki gallað eftir athugun eða ekki er um að ræða ábyrgðarviðgerð greiðir kaupandi skoðunargjald í samræmi við verðskrá og flutningskostnað ef við á (skoðunargjald fellur niður ef viðgerð á sér stað).
Ef tæki reynist gallað og innan ábyrgðar er alltaf fyrst kannaður möguleiki á viðgerð.
Í öllum tilfellum þarf verkstæðið að fá tækið til sín og skoða það. Ekki er hægt að fá nýtt tæki eða endurgreiðslu á staðnum.
Takmarkanir:
Þegar um eðlilegt slit er að ræða vegna notkunar.
Ef tæki hefur verið opnað eða átt við það.
Ef tæki er skemmt eða bilað vegna rangrar meðferðar, misnotkunar, breytinga, skorts á viðhaldi eða eðlilegri þjónustu.
Ábyrgð nær ekki til rakaskemmdar eða vatnstjóns, skoða nánar
Ábyrgðin nær ekki til óbeins tjóns og er kaupanda bent á að skoða sínar tryggingar.
Ábyrgðin nær ekki yfir tap á gögnum og því hvetjum við alla til að afrita gögn reglulega.
Rafhlöður eru flokkaðar sem rekstrarvörur og því með styttri ábyrgðartíma eða 1 ár.