Xiaomi Smart Standing Fan 2 Pro vifta

Xiaomi Smart Standing Fan 2 Pro vifta

24.990 kr.

Xiaomi Smart Standing Fan 2 Pro vifta er þráðlaus vifta á fæti með innbyggða rafhlöðu sem endist í allt að 18 klst. Hún er með tvöfalda spaða (7+5), blæs allt að 14 metra, snýst 140° og stendur á gólfi eða borði.

– Tvöfaldir spaðar, blæs allt að 14 metra
– Burstalaus jafnstraumsmótor og 100 hraðastig
– Snýst 140° og hallast 39°
– Líkir eftir náttúrulegri golu
– 28,1 dB á lægsta hraða
– Þráðlaus með rafhlöðu í allt að 18 klst.
– Hleðslustöð með segli
– Á gólfi eða borði, stýrt á viftunni eða í appinu
– 34,3 × 33 cm, 100,1 cm á hæð og 3,2 kg

Uppselt

Fá tölvupóst þegar vara kemur á lager

Vörunúmer: 38747
Strikamerki: 6934177775376

Upplýsingar

Tvöfaldir spaðar, blæs allt að 14 metra

Sjö ytri spaðar og fimm innri vinna saman og gefa mýkri og jafnari blástur en hefðbundnir spaðar. Blásturinn nær allt að 14 metra.

Burstalaus jafnstraumsmótor og 100 hraðastig

Burstalaus jafnstraumsmótor er hljóðlátur og sparneytinn. Á viftunni sjálfri eru fjögur hraðastig en í Xiaomi Home appinu er hraðinn stilltur á 100 stig, svo blásturinn verður nákvæmlega eins og óskað er.

Snýst 140° og hallast 39°

Viftan snýst allt að 140° til hliðanna og hausnum er hallað með hendinni, 23° upp og 16° niður, svo blásturinn nær um allt herbergið.

Líkir eftir náttúrulegri golu

Í stillingu fyrir náttúrulega golu breytist hraðinn óreglulega eins og vindur utandyra, sem er þægilegra til lengdar en stöðugur blástur.

28,1 dB á lægsta hraða

Á lægsta hraða án snúnings er hljóðið niður í 28,1 dB(A), svo viftan hentar í svefnherbergi. Á mesta hraða er það að hámarki 58 dB(A).

Þráðlaus með rafhlöðu í allt að 18 klst.

Innbyggð 33,6 Wh (2.800 mAh) rafhlaða knýr viftuna í allt að 18 klst. á lægsta hraða með snúningi og um 2,7 klst. á fjórða hraðastigi. Viftuna má því taka út á pall eða nota þótt rafmagnið fari.

Hleðslustöð með segli

Viftan stendur á hleðslustöð með segli og hleðslan stöðvast sjálfkrafa þegar rafhlaðan er full. Ljós sýnir hleðslustöðuna.

Á gólfi eða borði, stýrt á viftunni eða í appinu

Stöngin er tekin úr og þá stendur viftan á borði. Henni er stýrt með hnöppum efst eða í Xiaomi Home appinu, þar sem líka er hægt að stilla hvenær hún kveikir og slekkur á sér.

34,3 × 33 cm, 100,1 cm á hæð og 3,2 kg

Viftan er 34,3 × 33 × 100,1 cm og vegur 3,2 kg. Aflið er 24 W.

Í kassanum fylgir:

Í kassanum fylgir:

  • Viftueining (fremri hlíf, spaðar og aftari hlíf)
  • Mótor og efri stöng
  • Neðri stöng
  • Fótur með innbyggðri rafhlöðu
  • Hleðslustöð
  • Hetta á spaðana
  • Ró á aftari hlíf
  • Skrúfa í hlífina
  • Skiptilykill
  • Notendahandbók
  • Viftueining (fremri hlíf, spaðar og aftari hlíf)
  • Mótor og efri stöng
  • Neðri stöng
  • Fótur með innbyggðri rafhlöðu
  • Hleðslustöð
  • Hetta á spaðana
  • Ró á aftari hlíf
  • Skrúfa í hlífina
  • Skiptilykill
  • Notendahandbók

Nánari upplýsingar

Algengar spurningar

Upp, niður, hægri, vinstri

Mi Smart Standing Fan 2 hermir eftir náttúrulegum lofthreyfingum. Viftan blæs fersku lofti á 140° breiðu svæði og 39° upp og niður. Auðvelt er að lækka standinn og nota viftuna á skrifborði, ofaná kommóðunni eða inní hillu með einum smell.

Tvöfalt viftublað
Gefur náttúrulega golu

14 metra drægni
Hreint loft alltstaðar

Rafhlaða
Dugir í allt að 18 tíma

100 stig
Fínstilltu vindhraðann

Raddstýring
Notaðu röddinna

Borð eða gólf
Staðsettu hvar sem er

140° loftræsting
Fer um allt herbergið

Hljótt í alla nótt
Hljóðstig niður í 28.1dB

Frelsi frá innstungunni

Mi Smart Standing Fan 2 er með innbyggðri rafhlöðu sem að endist í allt að 18 tíma. Viftan er því ekki alltaf bundin við innstunguna sem að gerir hana mikið þæginlegri í notkun.

Stjórnað með símanum

Með Xiaomi Home appinu getur þú stýrt viftunni eftir þínu höfði, hvort sem það sé vindhraði, snúningur á viftunni eða stilla tímaplan.

Tengdar vörur