4.990 kr.
Xiaomi Smart Temperature and Humidity Monitor 3 hita- og rakamælir sýnir hita, raka, klukku, dagsetningu, vikudag og þægindastig á einum stórum LCD-skjá. Mælingin uppfærist á 6 sekúndna fresti og rafhlaðan endist í allt að eitt og hálft ár.
Upplýsingar
Skjárinn sýnir sex atriði í einu: hita, raka, klukku, dagsetningu, vikudag og þægindastig. Mælirinn nýtist því líka sem klukka á náttborði eða skrifborði.
Skjárinn er 6,26 × 5,32 cm og tölurnar eru stórar og skýrar. Með hnappi efst til hægri er skipt á milli þess hvort hitinn eða annað er sýnt stærst.
Nákvæmur stafrænn skynjari nemur breytingar niður í 0,1 °C og 1% raka og mælingin uppfærist á 6 sekúndna fresti. Hann mælir 0 til 60 °C og 0 til 99% raka.
Lítið andlit á skjánum breytir um svip eftir því hvort hiti og raki eru á þægilegu bili. Það sést því á augabragði hvort lofta þarf út, kynda eða bæta raka í loftið.
Mælirinn gengur fyrir einni CR2450 rafhlöðu sem fylgir í honum og endist í allt að eitt og hálft ár í bið, þegar hann er ekki tengdur appinu.
Mælirinn tengist með Bluetooth og geymir mælingar sem skoða má í Xiaomi Home appinu. Með Bluetooth Mesh gátt getur hann látið önnur snjalltæki bregðast við, til dæmis kveikt á ofni þegar kólnar eða á rakatæki þegar loftið þornar.
Mælirinn er 7,96 × 7,02 × 1,45 cm og vegur 72 g. Hann stendur á standi eða er límdur á vegg.
Í kassanum fylgir:
Í kassanum fylgir:
Nánari upplýsingar
Algengar spurningar