Xiaomi Smart Band 9 Active snjall- og heilsuúr

Xiaomi Smart Band 9 Active snjall- og heilsuúr

6.990 kr.

Frí heimsending ef keypt er fyrir 15.000 kr. eða meira Karfan þín er yfir 15.000 kr. og þú færð fría heimsendingu

Xiaomi Smart Band 9 Active snjall- og heilsuúr er létt og einfalt armband sem vegur 16,5 g, með 1,47″ litaskjá. Rafhlaðan endist í allt að 18 daga og armbandið mælir púls, súrefnismettun, svefn og streitu.

– 1,47″ litaskjár
– Rafhlaða endist í allt að 18 daga
– Púls, súrefnismettun, svefn og streita
– 50 íþróttagreinar
– 5 ATM vatnsvörn
– Tilkynningar, tónlist og veður
– Létt og þunnt, 16,5 g
– Ólar í mörgum litum og yfir 100 skífur
– Virkar með Android og iPhone
– Stærð og þyngd

Upplýsingar

1,47″ litaskjár

Skjárinn er TFT-skjár, 172 × 320 dílar, undir hertu gleri. Myndin uppfærist 60 sinnum á sekúndu svo flett er mjúklega á milli skjámynda.

Rafhlaða endist í allt að 18 daga

Rafhlaðan er 300 mAh og endist í allt að 18 daga í dæmigerðri notkun og um 9 daga í mikilli notkun. Armbandið er hlaðið með hleðslusnúru með segli og full hleðsla tekur innan við 120 mín.

Púls, súrefnismettun, svefn og streita

Armbandið mælir púls og súrefnismettun allan sólarhringinn og getur látið vita með titringi ef gildin fara út fyrir mörk. Það greinir djúpan svefn, léttan svefn og REM-svefn, mælir streitu og heldur utan um tíðahring.

50 íþróttagreinar

Armbandið skráir 50 íþróttagreinar, meðal annars hlaup, hjólreiðar úti og róður.

5 ATM vatnsvörn

Armbandið er með 5 ATM vatnsvörn. Sjá nánar um IP-vottun

Tilkynningar, tónlist og veður

Armbandið sýnir tilkynningar og áminningar úr dagatali, stýrir tónlist í símanum og sýnir veðurspá. Í því eru líka vekjari, skeiðklukka og vasaljós.

Létt og þunnt, 16,5 g

Armbandið vegur 16,5 g án ólar og er 1 cm á þykkt, svo það finnst varla á úlnliðnum, hvorki í vinnu, á æfingu né í svefni.

Ólar í mörgum litum og yfir 100 skífur

Ólin er úr mjúku TPU og passar á úlnlið sem er 13,5–21,5 cm að ummáli. Hægt er að skipta um bæði ól og ramma og í Mi Fitness appinu eru yfir 100 skífur.

Virkar með Android og iPhone

Armbandið tengist símanum með Bluetooth 5.3 í gegnum Mi Fitness appið og virkar með Android 8.0 eða nýrra og iOS 14.0 eða nýrra.

Stærð og þyngd

Armbandið er 4,59 × 2,69 × 1 cm og vegur 16,5 g án ólar. Það fæst með ól í litunum Black, Beige White, Pink, Purple og Green.

Í kassanum fylgir:

Í kassanum fylgir:

  • Xiaomi Smart Band 9 Active
  • Ól
  • Hleðslusnúra
  • Leiðbeiningar
  • Xiaomi Smart Band 9 Active
  • Ól
  • Hleðslusnúra
  • Leiðbeiningar

Nánari upplýsingar

Algengar spurningar

Tengdar vörur