Mijia er heimilislína Xiaomi. „Mi“ stendur fyrir Xiaomi og „jia“ fyrir heimili. Mijia þýðir því í raun „Xiaomi-heimilið“. Undir þessu merki hannar Xiaomi sniðug og stílhrein heimilistæki sem einfalda daglegt líf.
14.990 kr.
Mijia Tool Kit verkfærasett er verkfærataska fyrir heimilið með rafmagnsskrúfjárni, 22 bitum, klaufhamri, skiptilykli, töng, dúkahníf, sexkantasetti og 3 m málbandi. Rafmagnsskrúfjárnið skilar allt að 4 N·m og er hlaðið með USB-C.
Upplýsingar
Í töskunni er það helsta sem þarf í viðhald og dagleg verk á heimilinu. Hvert verkfæri á sinn stað og klemmur halda því föstu, svo ekkert týnist. Lítið hólf er fyrir skrúfur og nagla.
Skrúfjárnið er með þremur togstillingum, allt að 4 N·m, hnöppum fyrir áfram og aftur á bak og LED ljósi sem lýsir á skrúfuna. Ef rafhlaðan tæmist er það notað handvirkt og þolir þá allt að 8 N·m.
Rafhlaðan er 2.000 mAh og dugar í um 600 skrúfur á hleðslu, miðað við 0,3 × 1 cm skrúfur í mjúka furu. Hún er hlaðin með USB-C á um 3 klst.
Bitarnir eru úr S2 stáli: fjórir langir og átján stuttir. Sveigjanlegt skaft nær inn í þröng horn og 6 cm segulmögnuð framlenging í djúp göt.
Hamarshausinn er úr smíðuðu stáli og skaftið klætt stömu gúmmíi sem dempar högg. Klaufin dregur út nagla og gúmmíhetta sem fylgir hlífir húsgögnum þegar slegið er á þau.
Skiptilykillinn opnast í 2,5 cm og er krómhúðaður gegn ryði. Töngin afeinangrar, klemmir og klippir víra. Málbandið er 3 m, læsir sjálft og er með hallamáli.
Taskan er um 29,7 × 23 × 7 cm og vegur um 2,46 kg með öllu.
Í kassanum fylgir:
Í kassanum fylgir:
Nánari upplýsingar
Algengar spurningar