Xiaomi Oscillation Electric Toothbrush Pro rafmagnstannbursti

Xiaomi Oscillation Electric Toothbrush Pro rafmagnstannbursti

Upprunalegt verð var: 11.990 kr.
Núverandi verð er: 9.592 kr.
Þú sparar 2.398 kr.

Original price was: 11.990 kr..Current price is: 9.592 kr..

Xiaomi Oscillation Electric Toothbrush Pro rafmagnstannbursti þekkir hvaða flöt tannanna er verið að bursta og stillir sveifluna sjálfur. Hann er með litaskjá sem sýnir hvaða svæði eru búin, varar við of miklum þrýstingi og endist í allt að 180 daga á hleðslu.

– Þekkir hvaða hlið tannanna er burstuð og stillir sig sjálfur
– Sveiflast allt að 20°
– Fjórar stillingar: mild, venjuleg, djúp og snjöll
– Litaskjár sýnir hvaða svæði eru búin
– Varar við of miklum þrýstingi
– Tveir burstahausar fylgja
– Allt að 180 dagar á einni hleðslu
– IPX8 vatnsvörn
– 25,1 cm langur

Uppselt

Fá tölvupóst þegar vara kemur á lager

Vörunúmer: 66115
Strikamerki: 6932554436056

Upplýsingar

Þekkir hvaða hlið tannanna er burstuð og stillir sig sjálfur

Á snjöllu stillingunni greinir burstinn í hvaða stöðu hann er og breytir sveiflunni eftir því: kröftugri titringur með minni sveiflu ofan á jöxlunum og stærri sveifla á hliðum tannanna. Hver hlið er þannig burstuð eins og henni hentar.

Sveiflast allt að 20°

Á djúpu stillingunni sveiflast burstahausinn allt að 20°, tvöfalt meira en á þeirri venjulegu. Hreyfingin fer þvert yfir tennurnar og bilin á milli þeirra og losar skán af tönnunum.

Fjórar stillingar: mild, venjuleg, djúp og snjöll

Mild stilling fyrir byrjendur og viðkvæmt tannhold, venjuleg fyrir daglega notkun, djúp fyrir bil milli tanna og svæði sem erfitt er að ná til og snjöll stilling sem lagar sig að hverri hlið tannanna.

Litaskjár sýnir hvaða svæði eru búin

Sex ása skynjari greinir hvar í munninum burstinn er og skjárinn sýnir á mynd af tönnunum, með sex svæðum, hvað er búið og hvað varð út undan. Skjárinn kviknar þegar burstanum er lyft og sýnir þá hvernig gekk síðast og hve fast var burstað.

Varar við of miklum þrýstingi

Ef burstað er of fast kviknar ljós og burstinn dregur sjálfur úr titringnum til að hlífa tannholdinu.

Tveir burstahausar fylgja

Annar hausinn er með stífari hárum til að hreinsa vel daglega og hinn með fínum og mjúkum hárum fyrir viðkvæmar tennur og tannhold. Bakið er klætt mjúku gúmmíi, hárin eru fest án kopars og græni liturinn á þeim dofnar þegar skipta á um haus, á um þriggja mánaða fresti.

Allt að 180 dagar á einni hleðslu

Rafhlaðan endist í allt að 180 daga á mildu stillingunni og allt að 100 daga á þeirri venjulegu, miðað við tvær mínútur tvisvar á dag. Hann hleðst með USB-C á um 6 klst.

IPX8 vatnsvörn

Burstinn er með IPX8 vatnsvörn og er skolaður undir krananum eftir notkun. Sjá nánar um IP-vottun

25,1 cm langur

Skaftið er 2,78 × 2,95 × 25,1 cm. Burstinn eykur hraðann smám saman fyrstu 3 sekúndurnar svo tannkremið slettist ekki, man síðustu stillingu og er með ferðalás.

Í kassanum fylgir:

Í kassanum fylgir:

  • Skaft
  • 2 burstahausar
  • Hleðslusnúra
  • Hleðslutæki
  • Notendahandbók
  • Leiðbeiningar
  • Skaft
  • 2 burstahausar
  • Hleðslusnúra
  • Hleðslutæki
  • Notendahandbók
  • Leiðbeiningar

Nánari upplýsingar

Algengar spurningar

Tengdar vörur