2.990 kr.
Xiaomi Smart Temperature and Humidity Monitor 3 Mini er snjall mælir sem fylgist með hitastigi og rakastigi í herberginu. Hann sýnir upplýsingar á skýrum LCD skjá og hægt er að tengja hann við Xiaomi Home appið til að fylgjast með gögnum og setja upp snjallar sjálfvirknisenur.
Upplýsingar
Mælirinn er með skýran 2.1″ LCD skjá sem sýnir hitastig og rakastig samtímis. Skjárinn hefur þunnan 5.1mm ramma og uppfærir gögn á 6 sekúndna fresti. Hann sýnir einnig þægindastig með táknum og getur sýnt dagsetningu, dag, tíma, hitastig og rakastig.
Tækið tengist snjallsímanum þínum með Bluetooth 5.0 Low Energy. Þetta gerir þér kleift að skoða gögn í rauntíma og fylgjast með sögulegum gögnum í allt að 3 mánuði í Xiaomi Home appinu. Hægt er að tengja skynjarann við önnur Xiaomi tæki sem eru með innbyggt BLE gateway (t.d C300 og C500 öryggismyndavélar) og þannig geta skoðað upplýsingar frá mælinum að heiman. Einnig er hægt að setja upp snjallsenur við þessa samtengingu, t.d kveikja á viftum ef hitastig verður ákveðið hátt.
Í kassanum fylgir:
Í kassanum fylgir:
Nánari upplýsingar
Algengar spurningar




