Verkstæði Mi búðarinnar í Ármúla 21 gerir við allar tegundir af rafmagnshlaupahjólum. Ekki þarf að panta tíma: þú kemur með hjólið, við skoðum það og látum þig vita hvað þarf að gera og hvað það kostar.

Hvaða hlaupahjól gerum við við?

Öll rafmagnshlaupahjól, bæði lítil og stór. Til dæmis Mi Electric Scooter, og stærri hjól eins og Zero 10X, Apollo Phantom og Kaabo Wolf.

Hvað gerum við?

  • Dekkjaskipti og slönguskipti, bæði á litlum og stórum hlaupahjólum
  • Bremsur, rafhlöður, mótorar, stýringar og hleðslutæki
  • Bilanagreining
  • Tjónamatsgerð
  • Varahlutir og aukahlutir á staðnum

Verð á vinnu, dekkjum og slöngum er í verðskrá verkstæðisins. Varahluti má líka kaupa í vefversluninni.

Svona gengur þetta fyrir sig

  • Þú kemur með hjólið í móttöku verkstæðisins í Ármúla 21. Gengið er inn á vesturhlið hússins.
  • Við skoðum hjólið og höfum samband við þig með hvað þarf að gera og hvað það kostar.
  • Þú færð smáskilaboð eða tölvupóst þegar hjólið er tilbúið og framvísar beiðnanúmerinu þegar þú sækir það.

Opnunartími og staðsetning

  • Mánudaga til föstudaga: 11:00–18:00
  • Laugardaga: 12:00–16:00
  • Sunnudaga: lokað

Mi búðin, Ármúla 21, 108 Reykjavík. Móttaka verkstæðisins er í sömu byggingu og verslunin.

Býrðu úti á landi?

Þú getur sent hjólið til okkar. Láttu fylgja blað með greinargóðri lýsingu á því hvað er að og hvað á að gera, ásamt nafni og símanúmeri. Viljir þú fá hjólið sent til baka eftir viðgerð greiðir þú sendingarkostnaðinn. Við berum aldrei ábyrgð á hnjaski eða tjóni sem hjól verða fyrir í sendingu, hvorki á leiðinni til okkar né til baka.

Hafa samband við verkstæðið · Nánar um verkstæðið og skilmála