139.990 kr.
Dreame H14 Dual skúringarvél og handryksuga er 5-í-1 tæki sem ryksugar og blautmoppar í sömu umferð með 18.000 Pa sogkraft og breytist í þráðlausa skaftryksugu með þremur hausum. Stöðin þvær rúlluna með 60 °C heitu vatni og þurrkar hana með heitu lofti á 5 mín.
Upplýsingar
Vélin tekur blaut og þurr óhreinindi í sömu umferð með 18.000 Pa sogkrafti. Rúllan er stöðugt skoluð með hreinu vatni og óhreina vatnið sogað upp, svo gólfið er ekki þvegið með skítugu vatni og nánast engir vatnsblettir sitja eftir.
Rafhlaðan er 6 × 5.000 mAh. Á sjálfvirkri stillingu endist hún í allt að 40 mín. við blautmoppun, sem nær yfir allt að 300 fermetra. Sem ryksuga gengur tækið í allt að 75 mín. á venjulegri stillingu með samsetta stútnum. Full hleðsla tekur 4 klst.
Tankurinn fyrir hreint vatn tekur 880 ml. Óhreini tankurinn tekur 650 ml þegar vélin er upprétt og 450 ml þegar hún liggur flöt. Vélin blandar sápuna sjálf eftir því hve óhreint gólfið er, frá 1:200 upp í 1:30, og ein 120 ml áfylling endist í allt að 30 daga.
Rúllan nær út að köntum báðum megin, svo ekki þarf að snúa vélinni til að þrífa meðfram listum, í hornum og í kringum borðfætur. Sveigjanleg skafa með kambi vindur óhreina vatnið úr rúllunni og greiðir hár af henni, og rúllan snýst í báðar áttir til að losa flækjur.
Með einum hnappi þvær stöðin rúlluna með allt að 60 °C heitu vatni. Síðan er hún þurrkuð með 60 °C heitu lofti: hraðþurrkun tekur 5 mín. og hljóðlát þurrkun um 1 klst. með um 50 dB hljóði.
Vélin leggst alveg flöt og heldur fullu sogi. Öll vélin kemst undir húsgögn með 14 cm bili og hausinn undir 9,8 cm. Hjól aftan á henni lætur hana renna til hliðanna þegar hún liggur og GlideWheel drifið léttir undir þegar hún er dregin aftur á bak.
Vélin skynjar hve óhreint gólfið er og stillir sogið eftir því. Ljóshringur sýnir stöðuna: grænt er lítið, appelsínugult í meðallagi og rautt mikið. LED ljós framan á hausnum lýsir upp dimm svæði. Í Dreame appinu má stilla sog og vatnsmagn, setja upp áætlun og fá áminningar um síu og rúllu.
Með framlengingarrörinu og ryksuguhausunum verður tækið að þráðlausri skaftryksugu með 350 W mótor og tveimur stillingum, venjulegri og Turbo. Rykhólfið er tvískipt og skilur hár frá ryki svo það stíflist síður. Veggfesting fyrir fylgihlutina fylgir.
Gólfhausinn hentar bæði á teppi og hörð gólf, er með ljósi og hannaður til að hár flækist ekki í honum.
Litli rafknúni burstinn tekur hár, ryk og óhreinindi úr sófum, dýnum og bílsætum. Samsetti stúturinn er annars vegar mjór stútur fyrir horn og rifur og hins vegar mjúkur bursti fyrir lyklaborð, hillur og borð.
Vélin vegur 5,9 kg og málaflið er 380 W.
Í kassanum fylgir:
Í kassanum fylgir:
Nánari upplýsingar
Algengar spurningar