Dreame MatriX 10 Ultra ryksuguvélmenni með sjálftæmingarstöð

Dreame MatriX 10 Ultra ryksuguvélmenni með sjálftæmingarstöð

Upprunalegt verð var: 299.990 kr.
Núverandi verð er: 209.993 kr.
Þú sparar 89.997 kr.

Original price was: 299.990 kr..Current price is: 209.993 kr..

Frí heimsending um allt land

Dreame MatriX 10 Ultra ryksugar og blautmoppar og skiptir sjálf um moppur eftir því hvaða herbergi hún er að þrífa. Stöðin geymir þrjú pör af moppum og þrjár tegundir af sápu. Sogkrafturinn er 30.000 Pa og vélin kemst yfir allt að 8 cm tvískiptan þröskuld.

– 30.000 Pa sogkraftur
– Allt að 260 mín. á einni hleðslu
– Ryksugar og blautmoppar með snúningsmoppum
– Kemst yfir allt að 8 cm þröskuld
– 8,9 cm á hæð
– Sér hindranir og óhreinindi á gólfinu
– Bursti sem hár flækist síður í
– Skiptir sjálf um moppur eftir herbergjum
– Þrjár tegundir af sápu í stöðinni
– Raddstýring, Siri, Alexa og Google Assistant
– Stöð sem þvær moppurnar með 100°C heitu vatni
– Vél 35 × 35,1 × 8,9 cm, stöð 41,6 × 45,7 × 59 cm
Tækjatrygging er í boði fyrir þessa vöru
Nánar um tækjatrygginguna

Oft keypt með

Aukahlutapakki - Dreame Matrix10

  • Aukahlutapakki fyrir Dreame Matrix10 ryksuguvélmennið
  • Inniheldur:
    • Tvöfaldan aðalbursta
    • 2stk filter í rykhólf
    • 2stk ryksugupoka
    • 2 hliðarbursta
    • 6 skúringarmoppur (3 pör)
      • 2x Skrúbbmoppur
      • 2x Svampmoppur
      • 2x Hitamoppur

Moppur 4stk/pk - Dreame Matrix10 / X60 Ultra hitamoppur

  • Skúringarmoppur fyrir Dreame Matrix10 ryksuguvélmenni
  • 4stk í pakka (2 pör)
  • Heldur hita í lengri tíma en hefðbundnar moppur

Moppur 4stk/pk - Matrix10 skrúbbmoppur

  • Skúringarmoppur fyrir Dreame Matrix10 ryksuguvélmenni
  • 4stk í pakka (2 pör)
  • Hentar í eldhúsum og á erfiða bletti

Svampmoppur 4stk/pk - Dreame Matrix10

  • Skúringarmoppur fyrir Dreame Matrix10 ryksuguvélmenni
  • 4stk í pakka (2 pör)
  • Dregur í sig vatn

Aðalbursti Duo - Dreame X50 Ultra / L50 / L40s / D20 / D20 Plus / Aqua10 / Matrix10

  • Eitt par af aðalburstum fyrir Dreame ryksuguvélmenni

Ryksía 2stk/pk - Dreame Matrix10 /L60 Pro Ultra / X50 / L50 Ultra / L40 Ultra / L10s Ultra

  • HEPA filter í rykhólf fyrir Dreame ryksuguvélmenni
  • 2stk í pakka

Uppselt

Rykpokar 3stk/pk - Dreame X40 / X50 / L40 / L10s Ultra / o.fl

  • Ryksugupokar fyrir Dreame sjálftæmingarstöðvar
  • Passar fyrir:
    • Dreame Matrix10 Ultra
    • Dreame Aqua10 Ultra
    • Dreame X40 Ultra
    • Dreame X50 Ultra
    • Dreame X60 Ultra
    • Dreame L10s Ultra Gen 2
    • Dreame L10s Ultra Gen 3
    • Dreame L40 Ultra
    • Dreame L50 Ultra

Upplýsingar

30.000 Pa sogkraftur

Sogkrafturinn er 30.000 Pa og nær ryki, sandi og hárum upp af gólfum og úr teppum.

Dreame MatriX 10 Ultra: 30.000 Pa sogkraftur
Allt að 260 mín. á einni hleðslu

6.400 mAh rafhlaða endist í allt að 260 mínútur. Ef vélin nær ekki að klára fer hún sjálf í stöðina, hleður sig og heldur svo áfram þar sem frá var horfið.

Dreame MatriX 10 Ultra: rafhlaða og hleðsla
Ryksugar og blautmoppar með snúningsmoppum

Tvær moppur snúast 165 hringi á mínútu og teygja sig út að veggjum og listum. Á teppum lyftir vélin moppunum um 10,5 mm svo teppið blotni ekki.

Dreame MatriX 10 Ultra: snúningsmoppur
Kemst yfir allt að 8 cm þröskuld

Vélin fer yfir 4,2 cm háan þröskuld í einu þrepi og allt að 8 cm ef þröskuldurinn er tvískiptur, svo hún kemst sjálf á milli herbergja.

8,9 cm á hæð

Skanninn ofan á vélinni fellur niður þegar hún fer undir lág húsgögn, svo hún kemst undir sófa og rúm með um 9 cm bil frá gólfi. Með skannann uppi er hún 11,1 cm.

Dreame MatriX 10 Ultra: hæð vélarinnar
Sér hindranir og óhreinindi á gólfinu

Myndavél og þrívídarskynjarar sjá hluti á gólfinu, svo vélin keyrir fram hjá þeim í stað þess að festast. Hún greinir líka sérlega óhrein svæði og fer aftur yfir þau.

Dreame MatriX 10 Ultra: greinir óhreinindi á gólfi
Bursti sem hár flækist síður í

Aðalburstinn er tvöfaldur og hannaður til að hár flækist síður í honum. Hliðarburstinn teygir sig út í horn og meðfram listum.

Skiptir sjálf um moppur eftir herbergjum

Stöðin geymir þrjú pör af moppum, hvert fyrir sitt hlutverk, t.d. svampmoppur og moppur með nælonburstum fyrir fasta bletti. Vélin skiptir sjálf á milli þeirra eftir því hvort hún er í stofunni, eldhúsinu eða baðherberginu.

Dreame MatriX 10 Ultra: stöð sem skiptir um moppur
Þrjár tegundir af sápu í stöðinni

Í stöðinni eru þrjú hólf: gólfsápa, viðargólfsápa og lyktareyðir fyrir heimili með gæludýr. Allar þrjár fylgja með í kassanum.

Dreame MatriX 10 Ultra: gólfsápa, viðargólfsápa og lyktareyðir
Raddstýring, Siri, Alexa og Google Assistant

Vélin er með innbyggða raddstýringu og virkar líka með Siri, Alexa og Google Assistant.

Dreame MatriX 10 Ultra: raddstýring
Stöð sem þvær moppurnar með 100°C heitu vatni

Stöðin tæmir rykið í 3,2 l rykpoka, þvær moppurnar með 100°C heitu vatni og þurrkar þær. Vatnstankarnir eru 5,5 l fyrir hreint vatn og 4 l fyrir óhreint.

Dreame MatriX 10 Ultra: sjálftæmingarstöð
Vél 35 × 35,1 × 8,9 cm, stöð 41,6 × 45,7 × 59 cm

Vélin vegur 4,7 kg og stöðin 16,6 kg. Með skannann uppi er vélin 11,1 cm á hæð.

Dreame MatriX 10 Ultra: stærð vélar og stöðvar

Í kassanum fylgir:

Í kassanum fylgir:

  • Dreame MatriX 10 Ultra ryksuguvélmenni
  • Sjálftæmingarstöð
  • 12 moppur og 6 moppuhaldarar
  • 2 hliðarburstar
  • 3 rykpokar
  • 1 l gólfsápa, 200 ml viðargólfsápa og lyktareyðir
  • Hreinsiverkfæri og leiðbeiningar
  • Dreame MatriX 10 Ultra ryksuguvélmenni
  • Sjálftæmingarstöð
  • 12 moppur og 6 moppuhaldarar
  • 2 hliðarburstar
  • 3 rykpokar
  • 1 l gólfsápa, 200 ml viðargólfsápa og lyktareyðir
  • Hreinsiverkfæri og leiðbeiningar

Nánari upplýsingar

Algengar spurningar

Tengdar vörur