229.990 kr.
Navee Birdie 3X rafmagnsgolfkerra er rafknúin golfkerra sem eltir þig sjálf um völlinn með UWB tækni, eða er stýrt með fjarstýringu eða appi. Tveir afturmótorar skila allt að 240 W hvor og ráða við allt að 25% halla og 220 Wh rafhlaðan dugar í allt að 36 holur.
Upplýsingar
Ýtt er á hnapp, fjarstýringin fest á beltið og gengið af stað. Kerran notar UWB tækni til að staðsetja fjarstýringuna og heldur sig við hliðina á þér, svo hendurnar eru lausar og athyglin á leiknum.
Með fjarstýringunni er kerran send af stað, stöðvuð eða beygt með einni snertingu. Í appinu er henni líka stýrt úr símanum í allt að 200 m fjarlægð, hraðinn stilltur, staða rafhlöðu skoðuð og skorið skráð.
Tveir sjálfstæðir afturmótorar skila allt að 240 W hvor. Þeir halda gripi á hörðum brautum, í leðju utan brautar og í allt að 25% halla.
Þegar kerrunni er ýtt stillir SmartBoost stuðninginn jafnóðum eftir gönguhraðanum, svo hún er létt upp brekkur og á ójöfnu undirlagi.
Rafhlaðan er 220 Wh og dugar í tvo fulla 18 holu hringi, eða allt að 36 holur, á einni hleðslu.
Að aftan eru tvö breið 28 cm hjól sem grípa vel og hlífa brautinni og að framan tvö 15 cm hjól sem snúast í allar áttir. Aukahjól að aftan kemur í veg fyrir að kerran velti aftur fyrir sig í brekku.
Skjárinn er 14 × 3,5 cm og læsilegur í sólskini. Á stýrinu er hraðinn stilltur í níu þrepum og þar er líka USB-C tengi til hleðslu.
Kerran er brotin saman með einu handtaki og er þá 68 × 56,5 × 38,4 cm, um 0,15 m³, minni en venjulegur golfpoki. Hún fer því í skottið á bílnum eða í geymsluna í klúbbnum.
Í kassanum fylgir:
Í kassanum fylgir:
Nánari upplýsingar
Algengar spurningar