49.990 kr. Original price was: 49.990 kr..44.991 kr.Current price is: 44.991 kr..
Ulefone Armor X16 Pro er 5G vinnusími með 10.360 mAh rafhlöðu, 64 MP myndavél með nætursjón og bjartan 6,56″ skjá. Hann er með IP68/IP69K vörn, MIL-STD-810H og Corning Gorilla Glass 5 á skjánum.
Upplýsingar
Skjárinn er 6,56″ af gerðinni IPS LCD með HD+ upplausn, 720 × 1.612 punkta. Endurnýjunartíðnin er 120 Hz, svo skrun, myndbönd og leikir verða mýkri á skjánum. Mesta birta er 910 nit. Svona bjartur skjár sést vel úti í sól.
Örgjörvinn er MediaTek Dimensity 6300 með átta kjarna, þeir hröðustu 2,4 GHz og styður 5G. Hann ræður vel við dagleg verk, myndbönd og leiki. Android 16 fæst með uppfærslu yfir netið.
Að aftan eru þrjár myndavélar: 64 MP myndavél með Sony IMX682 skynjara, 25 MP myndavél með nætursjón (Sony IMX550) sem tekur myndir í algjöru myrkri og 2 MP linsa fyrir nærmyndir. Nætursjónin nýtist til dæmis við eftirlit, leit og til að fylgjast með dýrum í myrkri.
Myndavélin að framan er 16 MP. Að aftan tekur síminn upp myndbönd í 2K. Með sérstakri stillingu má líka taka myndir og myndbönd í vatni.
Rafhlaðan er 10.360 mAh. Hún endist í allt að 555 klst. í biðstöðu (um 23 daga) og allt að 56 klst. í tali. Hún dugar því vel í langa vinnudaga og ferðir þar sem langt er í rafmagn.
Síminn hleður með 33 W um USB-C tengi. Hann nýtist líka sem hleðslubanki og hleður önnur tæki um snúru með 5 W.
Vinnsluminnið er 8 GB og geymslan 256 GB. Minniskort (microSD) allt að 2 TB bætir við plássi fyrir myndir og myndbönd og hefur sitt eigið hólf, svo hægt er að nota tvö SIM-kort og minniskort á sama tíma.
Síminn er með IP68 og IP69K ryk- og vatnsvörn og er prófaður samkvæmt hernaðarstaðlinum MIL-STD-810H. Hann er smíðaður fyrir verkstað, sveit og útivist. Á skjánum er Corning Gorilla Glass 5. Sjá nánar um IP-vottun
Síminn er með 5G og tekur tvö nano-SIM kort sem geta bæði verið á 5G. Þannig má hafa vinnunúmer og einkanúmer í sama símanum, eða íslenskt kort og ódýrt ferðakort erlendis. Með NFC má borga með símanum í posa, til dæmis með Google Pay. Þráðlaust net er á 2,4 og 5 GHz, Bluetooth er 5.2 og á símanum er heyrnartólatengi.
Í símanum er sérstakt vasaljós sem gefur allt að 133 lm og birtan er stillanleg. Það kemur sér vel í myrkri á verkstað eða í útihúsum. Sérhnapp má stilla á þá aðgerð sem þú notar mest, til dæmis vasaljósið eða myndavélina, svo ekki þarf að leita á skjánum með hanska á höndum.
Hæð 17,38 cm, breidd 8,34 cm og þykkt 1,8 cm. Síminn vegur 394,5 g.
Í kassanum fylgir:
Í kassanum fylgir:
Nánari upplýsingar
Algengar spurningar